Fara í efni
Pistlar

Hollvinir minnast Sólveigar með gjöf

Rebekka Héðinsdóttir, deildarstjóri lyflækningadeildar SAk, Bjarni S. Jónasson, Hermann Haraldsson og Jóhannes G. Bjarnason, fulltrúar Hollvinasamtakanna, og Heiða Berglind Magnúsdóttir aðstoðardeildarstjóri lyflækningadeildar. Mynd: sak.is.

Fulltrúar úr stjórn Hollvinasamtaka Sjúkrahússins á Akureyri (SAk) heimsóttu lyflækningadeild SAk og afhentu starfsfólki blómvönd og samúðarkveðju, vegna fráfalls Sólveigar Huldu Valgeirsdóttur deildarstjóra.

Að því er fram kemur í frétt á vefsíðu SAk munu Hollvinasamtökin einnig gefa lyflækningadeild þá fjármuni sem starfsfólk deildarinnar safnaði í nafni Sólveigar, auk þeirra fjármuna sem fengust vegna sölu minningarkorta. Þar að auki ætla Hollvinir að afhenda deildinni eina milljón króna.

„Við erum Hollvinum ákaflega þakklát fyrir þessa gjöf og fyrir þann hlýhug sem Hollvinir og samfélagið allt hefur sýnt okkur á þessum erfiðu tímum,“ segir Rebekka Héðinsdóttir, deildarstjóri lyflækningadeildar í fréttinni.

Jóhannes G. Bjarnason, formaður stjórnar Hollvinasamtakanna segir að fráfall Sólveigar sé sannarlega reiðarslag fyrir fjölskyldu hennar, vini, samstarfsfélaga og okkar litla samfélag. „Af veikum mætti vildum við í Hollvinum leggja okkar af mörkum til stuðnings við lyflækningadeild, sem sannarlega þarf að standa vörð um,“ segir Jóhannes.

Tær var sú fegurð, A 7359

Orri Páll Ormarsson skrifar
20. mars 2026 | kl. 10:00

Öskubuska, Elle Woods og Sandy í Grease

Rakel Hinriksdóttir skrifar
19. mars 2026 | kl. 13:00

Tré ölrakóngsins – Fyrri hluti

Sigurður Arnarson skrifar
18. mars 2026 | kl. 08:30

Nafnalágin

Jóhann Árelíuz skrifar
15. mars 2026 | kl. 06:00

Að lesa um afa

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
14. mars 2026 | kl. 11:30

Birna berst líka við kerfið

Ólafur Þór Ævarsson skrifar
13. mars 2026 | kl. 13:00