Fara í efni
Pistlar

Nýir röntgenlæknar til starfa á SAk

Sigríður Margrét Möller og Bjarki Ívarsson bætast í hóp röntgenlækna á SAk. Mynd: sak.is.

Sjúkrahúsið á Akureyri (SAk) greinir frá því í frétt á vef sínum að tveir nýir röntgenlæknar hafi verið ráðnir til starfa á sjúkrahúsinu og munu þeir hefja störf um næstu mánaðamót. Með ráðningu  þeirra er myndgreiningardeild SAk fullmönnuð.

Það eru sérfræðingarnir Bjarki Ívarsson og Sigríður Margrét Möller sem koma til starfa þann 1. apríl næstkomandi. Í fréttinni á vef SAk kemur fram að Bjarki hafi lokið sérnámi í myndgreiningu við háskólasjúkrahúsið í Árósum í Danmörku og hafi starfað bæði hérlendis og erlendis. Sigríður Margrét lauk sínu sérnámi í Noregi og hefur starfað þar í landi sem og hérlendis.

Frostaveturinn 1918

Jóhann Árelíuz skrifar
08. mars 2026 | kl. 15:00

Börkur berst við kerfið

Ólafur Þór Ævarsson skrifar
08. mars 2026 | kl. 13:30

Bræðrafell

Hjalti Jóhannesson skrifar
07. mars 2026 | kl. 06:00

Málabraut, er það ekki bara eitthvað hobbí?

Orri Páll Ormarsson skrifar
06. mars 2026 | kl. 06:00

Þróun skógarbotnsins

Sigurður Arnarson skrifar
04. mars 2026 | kl. 08:30

Edda og ADHD greiningin

Ólafur Þór Ævarsson skrifar
02. mars 2026 | kl. 12:30