Fara í efni
Pistlar

Mygla í húsnæði SAk á Kristnesi

Mygla hefur fundist á Kristnesspítala í Eyjafjarðarsveit, þar sem endurhæfinga- og öldrunarlækningadeild Sjúkrahússins á Akureyri (SAk) er til húsa.  Ekki er þó gert ráð fyrir að skerða þurfi þjónustu vegna þessa eins og er.

Eftir að grunur vaknaði um rakaskemmdir, og vegna einkenna starfsfólks, var verkfræðistofan Efla fengin til að taka sýni og niðurstöður sýndu vöxt myglusveppa í hluta þeirra sýna sem tekin voru í hluta húsnæðisins, skv. upplýsingum sem akureyri.net aflaði sér hjá SAk.

Aðallega er um að ræða rými starfsfólks, skrifstofur, fundaherbergi og geymslur, en einnig í rýmum sem nýtt voru í þjónustu við skjólstæðinga í stuttan tíma í einu. Óskað hefur eftir frekari sýnatöku og reiknað með að af henni verði í næstu viku.

Ekki er gert ráð fyrir að skerða þurfi þjónustu í bráð, sem fyrr segir, en áfram verður unnið að greiningu á stöðunni sem og áætlun til úrbóta.

Edda og ADHD greiningin

Ólafur Þór Ævarsson skrifar
02. mars 2026 | kl. 12:30

Hús dagsins: Lundargata 9

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
01. mars 2026 | kl. 06:00

Innra með okkur öllum er Birtíngur

Rakel Hinriksdóttir skrifar
27. febrúar 2026 | kl. 13:00

Evrópskt gráelri - Fyrsti hluti

Sigurður Arnarson skrifar
25. febrúar 2026 | kl. 10:00

Við getum gert „allt“ … en ekki „allt á sama tíma“

Hrafnhildur Reykjalín skrifar
24. febrúar 2026 | kl. 09:00

Epískar hörmungar í Freyvangi!

Rakel Hinriksdóttir skrifar
23. febrúar 2026 | kl. 16:00