Fara í efni
Pistlar

Hetjurnar njóta aftur góðs af „Sjally Pally“

Ein milljón, gjörið svo vel! Söfnunarféð afhent í fyrra, frá vinstri: Viðar Valdimarsson meðstjórnandi í píludeild Þórs, Helga Ósk meðstjórnandi í Hetjunum, Tinna Hermannsdóttir, formaður Hetjanna og Davíð Örn Oddsson, formaður píludeildar Þórs.

Píludeild Þórs endurtekur leikinn frá því á síðasta ári og stendur fyrir góðgerðarleik í tengslum við opna Akureyrarmótið sem haldið verður í Sjallanum um næstu helgi, á föstudag og laugardag. Í fyrra færði píludeildin Hetjunum – félagi langveikra barna á Norðurlandi, eina milljón króna að gjöf eftir mótið og það fé sem safnast í góðgerðarleiknum nú rennur aftur til Hetjanna.

Opna Akureyrarmótið í Sjallanum er fjölmennasta pílumót landsins ár hvert – kallað Sjally Pally, með vísan í sjálft heimsmeistaramótið sem jafnan fer fram í Alexandra Palace í London, Ally Pally.

Hæsta mögulega skor sem hægt er að fá í pílu er 180, þegar öllum þremur pílum í hverri umferð er kastað í reit sem kallast þrefaldur 20. Í hvert skipti sem keppandi nær 180 á Sjally Pally tryggir hann Hetjunum 5.000 krónur, þökk sé fjórum styrktaraðilum sem píludeildin hefur samið við; það eru Eyjabiti, Tengir, Coca Cola og Skógarböðin.
 
Í fyrra náðu keppendur 180 stigum í 116 skipti. Þar með söfnuðust 580 þúsund krónur en styrktaraðilarnir bættu um betur og hækkuðu upphæðina í eina milljón. Þórsarar binda vonir við að keppendur nái 180 stigum oftar en í fyrra. „Nú setjum við traustið yfir á keppendur að safna sem mestum pening í góðgerðarmál!“ segir í tilkynningu frá píludeildinni.

Birki og beit

Sigurður Arnarson skrifar
08. apríl 2026 | kl. 08:00

Hús dagsins: Hafnarstræti 35

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
07. apríl 2026 | kl. 22:00

Þegar lífið hægir á manni

Guðrún Arngrímsdóttir skrifar
07. apríl 2026 | kl. 08:00

Höfðingsskapur á Hofi

Jóhann Árelíuz skrifar
05. apríl 2026 | kl. 06:00

Af húsaflutningum Ferðafélags Akureyrar

Hjalti Jóhannesson skrifar
04. apríl 2026 | kl. 10:30

Ha, er þetta frænka ÞÍN?

Orri Páll Ormarsson skrifar
03. apríl 2026 | kl. 11:00