Fara í efni
Pistlar

Þrautseigja Þórs þrátt fyrir áföll

Stigahæstar í Þórsliðinu í gær, Yvette Adriaans með 29 stig og Emilie Ravn með 27. Myndir: Guðjón Andri Gylfason.

Þór tapaði öðrum leik sínum á móti Fjölni í undanúrslitum umspils 1. deildar og Bónusdeildar kvenna í körfubolta í gær. Lokatölur urðu 95-90 fyrir Fjölni, sem nú leiðir einvígið 2-0, en vinna þarf þrjá leiki til að fara áfram í úrslit. 

Leikurinn var jafnari en fyrsti leikur liðanna. Þórsliðið hafði forystuna lengst af fyrri hálfleiknum, en aldrei þó meira forskot en sjö stig. Liðin skiptust þó reglulega á því að leiða leikinn. Fjölnir náði frumkvæðinu í upphafi seinni hálfleiksins, komst átta stigum yfir, en eins og í fyrri hálfleiknum skiptust liðin á forystunni. Þegar leið á fjórða leikhlutann var munurinn í kringum fjögur til sex stig og hélst þannig út leikinn. 

Þrátt fyrir fámennan hóp Þórs og að Emma Karólína Snæbjarnardóttir, sem nýlega var valin besti leikmaður deildarinnar, gat aðeins spilað rúmar fjórar mínútur í upphafi leiks, og liðið með aðeins tvo varamenn, var leikurinn jafn og lítill munur þegar upp var staðið. Með Emmu úr leik var liðið því komið í sömu stöðu og í fyrsta leiknum á Akureyri, aðeins ein á bekknum til að koma inn og því lítið um tækifæri til að hvíla lykilmenn. Þrjár í Þórsliðinu spiluðu enda allar 40 mínúturnar. Þrátt fyrir það náði Fjölnir ekki að stinga af og í raun ótrúlegt hve jafn leikurinn var miðað við þá stöðu sem Þórsliðið er komið í.

Yvette Adriaans var stigahæst í Þórsliðinu með 29 stig, Emilie Ravn næst með 26 stig og Chloe Wilson með 17 stig og 13 fráköst, en þessar þrjár spiluðu allar mínútur leiksins. Yvette hitti vel í leiknum, var með 66% nýtingu í tveggja stiga skotum, 4 af 6, og 77% í þriggja stiga skotum, 7 af 9. Hjá Fjölni var það Leilani Kapinus sem var atkvæðamest að venju, skoraði 30 stig og tók 13 fráköst.

Heilstu tölur leikmanna Þórs, stig/fráköst/stoðsendingar:

  • Yvette Adriaans 29/9/37 framlagspunktar
  • Emilie Ravn 26/5/1
  • Chloe Wilson 17/13/4
  • Sigurlaug Eva Jónasdóttir 7/1/5
  • Karen Lind Helgadóttir 6/6/4
  • Hjörtfríður Óðinsdóttir 5/2/0

Þriðji leikur liðanna í einvíginu verður í Íþróttahöllinni á Akureyri á mánudag, annan í páskum. Þór verður að vinna þann leik til að halda sér inni í einvíginu, en Fjölnir getur klárað einvígið með sigri í þriðja leiknum.

Tölfræði leiksins

Gráelri frá Evrópu – Annar hluti

Skapti Hallgrímsson skrifar
01. apríl 2026 | kl. 08:30

Búskapur á Hraunfelli

Jóhann Árelíuz skrifar
29. mars 2026 | kl. 06:00

Landnám skógarfugla

Sigurður Arnarson skrifar
25. mars 2026 | kl. 11:00

Gildi – þinn innri áttaviti

Hrafnhildur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar
24. mars 2026 | kl. 09:00

Hús dagsins: Aðalstræti 54 og 54a

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
23. mars 2026 | kl. 06:00

Skammtað í aska

Jóhann Árelíuz skrifar
22. mars 2026 | kl. 06:00