Fara í efni
Pistlar

Mjólkurbikar karla: Þór heima, KA í Fellabæ

Bikarleikir í knattspyrnu eru áberandi á íþróttadagskránni víða um land í dag. Bæði karlaliðin á Akureyri spila í 32ja liða úrslitum í dag, Þór á heimavelli, en KA á útivelli.

Mjólkurbikarkeppni karla í knattspyrnu er hafin fyrir nokkru með forkeppni og komið að 32ja liða úrslitunum þar sem liðin í Bestu deild karla koma inn í pottinn. Fyrstu leikir 32ja liða úrslitanna verða í dag og eiga bæði Þór og KA leik.

Þór fékk heimaleik og fer hann fram í Boganum þar sem frágangi við nýja keppnisvöllinn á svæðinu er ekki lokið. Liðin eru bæði að koma inn í keppnina í 32ja liða úrslitin.

  • Mjólkurbikarkeppni karla í knattspyrnu, 32ja liða úrslit
    Boginn kl. 14
    Þór - FH
  • Útsending: Rúv
    Opin dagskrá

KA leikur í Fellabæ

KA fékk útileik gegn Hetti og er leikið í Fellabæ. Höttur hóf leik í keppninni með 5-0 sigri á Neista frá Djúpavogi, en Neisti hafði áður unnið Einherja á Vopnafirði 5-2. KA kemur inn í keppnina í 32ja liða úrslitunum.

  • Mjólkurbikarkeppni karla í knattspyrnu, 32ja liða úrslit
    Rafey-völlurinn í Fellabæ kl. 14
    Höttur - KA
  • Útsending: Livey.events
    Áskrift að rás eða stökum leikjum

Höttur og KA mætast á Rafey-vellinum, svokallaða, sem er þó betur þekktur undir nafninu Fellavöllur, en völlurinn er í Fellabæ.

Ha, er þetta frænka ÞÍN?

Orri Páll Ormarsson skrifar
03. apríl 2026 | kl. 11:00

Gráelri frá Evrópu – Annar hluti

Skapti Hallgrímsson skrifar
01. apríl 2026 | kl. 08:30

Búskapur á Hraunfelli

Jóhann Árelíuz skrifar
29. mars 2026 | kl. 06:00

Landnám skógarfugla

Sigurður Arnarson skrifar
25. mars 2026 | kl. 11:00

Gildi – þinn innri áttaviti

Hrafnhildur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar
24. mars 2026 | kl. 09:00

Hús dagsins: Aðalstræti 54 og 54a

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
23. mars 2026 | kl. 06:00