Kjarnafæðimót kvenna: Þór/KA með tvö efstu lið
Þór/KA og Þór/KA2 mættust í Boganum í gær í lokaleik kvennadeildar Kjarnafæðimótsins. Þór/KA hafði 3-1 sigur, en liðin enda í tveimur efstu sætum mótsins.
Erin Flurey kom Þór/KA yfir á 9. mínútu eftir sendingu frá Margréti Árnadóttur. Það var eina mark fyrri hálfleiksins. Hildur Anna Birgisdóttir jafnaði fyrir Þór/KA2 þegar tæpar níu mínútur voru liðnar af seinni hálfleiknum. Emelía Blöndal Ásgeirsdóttir sendi þá háan bolta inn á teiginn, boltinn fór af Íseyju Ragnarsdóttur áfram til vinstri þar sem Hildur Anna var mætt og skoraði af stuttu færi. Átta mínútum eftir mark Hildar Önnu náði Bríet Fjóla Bjarnadóttir aftur forystunni fyrir Þór/KA eftir að Hulda Björg Hannesdóttir sendi boltann inn fyrir vörnina. Á 74. mínútu rak Hulda Ósk Jónsdóttir endahnútinn á sigurinn þegar hún fékk boltann eftir að Harpa Jóhannsdóttir hafði varið frá Bríeti Fjólu.
Lokatölurnar urðu því 3-1. Þór/KA endar með 12 stig, vann alla sína leiki, reyndr einn með þeim hætti að andstæðingurinn gaf leikinn. Þór/KA2 vann þrjá leiki, gegn Dalvík, Tindastóli og Völsungi, en eini tapleikurinn var gegn Þór/KA í gær.
Búskapur á Hraunfelli
Landnám skógarfugla
Gildi – þinn innri áttaviti
Hús dagsins: Aðalstræti 54 og 54a