Fara í efni
Pistlar

Hangið aftan í

EYRARPÚKINN - 14

Þegar bílstjórinn elti mig niður Eyrarveginn vætti ég buxurnar og æpti Mamma mamma!

Steini Villa og Rúni Jóhanns hlógu en stóðu mér ekki á sporði þegar ég skutlaði mér á vængjabíl Guðmundar Karls og hékk í suðrað Turni þó doksi æki Norðurgötuna sikksakk.

Gómuðu fáir A 100 þegar yfirlæknirinn spýtti í á Norðurgötuhorni. Þarna kemur Guðmundur Karl á hundrað, teikum hann strákar!

Og fylgdu marblettir á mjöðmum og hnjám og ótal skrámur leik okkar. 

Þarna kemur kolabíllinn! hrópuðum við þegar kolabíllinn kom másandi af Tanganum og mátti fara í langferðir á poka á palli og nutum hvíldar og útsýnis.

Þá voru olíubílarnir vinsælir með stuðarana svo hátt uppi að hanga mátti aftan í þeim standandi en víða stóð grjót úr götum og margt bar að varast auk bráðra ökumanna, ekki síst í Gilinu í hálku með bíla í bak.

Þá vildu vettlingar festast við stuðarana og voru Stebbi Rut og Keli seinheppnir með glófa sína þrátt fyrir hlaup upp alla Tryggvabraut.

Stebbi í Eyrarvegi 16 hnyklaði brýrnar og útmálaði hvurnin hann tæki í rassgatið á okkur sem við smugum kattarlegir kringum gráan Ópel Stefáns sem við kölluðum Stebba á 80.

Best að hanga aftan í á gúmmískóm Iðunnar, svörtu slöngugúmmurunum, því á útlensku skónum urðu hvítir sólarnir svartir þegar menn báru saman brennda botna sína.

En það létum við ekki á okkur fá á Norðurgötuhorninu í veiðilegri stórhríð jólalegri.

Jóhann Árelíuz er rithöfundur og skáld.

  • Hangið aftan í er kafli úr Eyrarpúkanum, gáskafullu skáldverki sem gerist á Eyrinni á Akureyri um miðja síðustu öld. Bókin kom út 2003.

Frostaveturinn 1918

Jóhann Árelíuz skrifar
08. mars 2026 | kl. 15:00

Börkur berst við kerfið

Ólafur Þór Ævarsson skrifar
08. mars 2026 | kl. 13:30

Bræðrafell

Hjalti Jóhannesson skrifar
07. mars 2026 | kl. 06:00

Málabraut, er það ekki bara eitthvað hobbí?

Orri Páll Ormarsson skrifar
06. mars 2026 | kl. 06:00

Þróun skógarbotnsins

Sigurður Arnarson skrifar
04. mars 2026 | kl. 08:30

Edda og ADHD greiningin

Ólafur Þór Ævarsson skrifar
02. mars 2026 | kl. 12:30