Þetta er ritað í tilefni þess að nú stendur yfir Vitundarvakning um geðrækt og sjálfsvígsforvarnir, sérstaklega hjá öldruðum.
Í Gulum september 2025 er lögð áhersla á að auka meðvitund fólks um mikilvægi geðræktar og sjálfsvígsforvarna með kærleika, aðgát og umhyggju að leiðarljósi.
Nokkrar staðreyndir um aldraða:
- Árið 2030 verður einn af hverjum sex jarðarbúa eldri en 60 ára.
- Einmanaleiki og félagsleg einangrun eru helstu áhættuþættir fyrir skerðingu á geðheilsu eldri en 60 ára. Þessi þekking gefur okkur öllum hvatningu til að sinna vel þeim eldri og hafa þannig bein forvarnaráhrif gegn geðsjúkdómum eða sjálfsvígum.
- Einn af hverjum sex aldraðra verður fyrir ofbeldi.
- U.þ.b. 14% þeirra sem eru yfir sextugt þjást af geðsjúkdómi.
- Í þessum aldurshópi standa geðsjúkdómar fyrir um 11% þess tíma sem lifað er með hindrun á lífsgæðum.
- Margir aldraðir eru í álagsmiklu umönnunarhluverki vegna langvarandi veikinda maka, t.d. Alzheimer sjúkdóms.
- Sjálfsvígstíðni aldraðra, eldri en 75 ára, var hærri en í öllum öðrum aldurshópum í nýlegri erlendri rannsókn.
- Vísbendingar eru um að tíðnin í þessum aldurshópi fari vaxandi.
- Aðgengi aldraðra að heilbrigðisþjónustu er oft erfiðara en annarra.
Einkenni hjá öldruðum sem ættu að leiða til læknisrannsóknar og meðferðar:
- Breytingar á geðslagi, úthaldi og matarlyst.
- Gleðileysi.
- Breytingar á svefni, of lítill eða lengdur.
- Að vera á nálum og geta ekki einbeitt sér.
- Áhyggjur af minnstu hlutum.
- Reiðiköst og pirringur.
- Þrálátir verkir eða hægðavandamál.
- Aukin áfengis,- eða lyfjanotkun.
- Sorg og svartsýni.
- Lífsleiði og uppgjöf.
- Árátta og þráhyggja.
- Óviðeigandi tal eða breyttur persónuleiki.
- Ofskynjanir eða ranghugmyndir.
Við flestum geðsjúkdómum hjá öldruðum eru til árangursríkar meðferðir og í mörgum tilfellum má búast við fullum bata.
Ólafur Þór Ævarsson er geðlæknir