Bræðrafell
FERÐAFÉLAG AKUREYRAR 90 ÁRA
Frásögn af afskekktasta gönguskála
FFA í sunnanverðu Ódáðahrauni
Í 38. árgangi Ferða sem kom út árið 1979 var fjallað um byggingu annars gönguskála Ferðafélags Akureyrar. Það var skálinn Bræðrafell sem hafði verið fluttur árið 1977 inn í Ódáðahraun að samnefndu felli um 7,5 km beint vestur af Herðubreið. Björn Sigurðsson á Húsavík sá um flutninginn á Benz vörubíl. Árið 1978 og næstu ár var haldið áfram að ganga frá skálanum þarna inni í Ódáðahrauni.

Gamla Bræðrafell á leiðinni á staðinn. Hér er það statt í Herðubreiðarlindum á palli vörubíls Björns Sigurðssonar á Húsavík.

Gamla Bræðrafell í torfærum í Ódáðahrauni.

Gamla Bræðrafell komið á sinn stað í Ódáðahrauni, fjallið Bræðrafell í bakgrunni.
Gamli Bræðrafellsskálinn var orðinn ansi lúinn undir það síðasta en dugði þó til ársins 2016 og fékk þá að víkja fyrir glæsilegum gönguskála sem ber sama heiti og er nánast eins og Lambi á Glerárdal sem var byggður tveimur árum áður. Bygging nýja gönguskálans fór fram veturinn 2015-2016 og fékkst aðstaða til smíðinnar hjá Samherja í húsnæði Strýtu. Hilmar Antonsson, smiður og þáverandi formaður FFA bar hitann og þungann af smíðinni og öllu skipulagi, líkt og við fleiri skálabyggingar á þessum árum. Við lærðum það af byggingu gamla skálans að rétt væri að hann færi alveg fullbúinn inn í Ódáðahraun með öllum innanstokksmunum, verkfæralager, pottum og pönnum. Þetta er svo gríðarlega afskekkt að það er ekki auðvelt með aðföng þarna, allur akstur er bannaður inn í hraunið á sumrin og alls ekki hægt að treysta á nægan snjó fyrir vélsleða eða bíla að vetri samfara hnattrænni hlýnun. Akstur vestur fyrir Herðubreið og ganga þaðan tekur sjö til átta klukkustundir frá Akureyri hvora leið.

Gamli Bræðrafellsskálinn í litunum sem voru lengst af á honum.
Flutningur nýja Bræðrafells og frágangur þess á staðnum var ógleymanlegt ævintýri þeim sem þátt tóku í því og þurfti mikið skipulag sem Hilmar Antonsson sá að mestu um. Það var hins vegar Sigurbergur Konráðsson hjá fyrirtækinu Skútabergi og félagi hans sem sáu um að aka nýja Bræðrafelli á sinn stað og var það 2. september árið 2016 og fannst þeim sem fylgdust með, það vera ansi mikið afrek. Smíði og flutningi nýja Bræðrafells var annars ítarlegar líst í 76. árgangi Ferða árið 2017. Frá árinu 2017 hefur skálinn verið innan marka Vatnajökulsþjóðgarðs.
Undirritaður hefur verið formaður Bræðrafellsnefndar um margra ára skeið og þetta er einn uppáhaldsstaðurinn hans á fjöllum. Þessi staður er fremur fáfarinn og einstaklega kyrrlátur. Af gestabókinni má ráða að fólk sem þarna gistir er bókstaflega uppnumið af þessu hrikalega umhverfi og verksummerkjum gríðarlegra eldsumbrota sem þarna hafa átt sér stað. Félagið er alltaf með eina til tvær ferðir í skálann og um svæðið á hverju sumri. Skálinn er á lengri útgáfunni af hinum svokallaða Öskjuvegi, gönguleið á milli Herðubreiðarlinda og Svartárkots í Bárðardal. Í ágúst næstkomandi verður boðið upp á sérstaka jarðfræðiferð í fyrsta skipti.

Hilmar Antonsson, þáverandi formaður FFA og yfirsmiður við vígslu nýja skálans 2016.
Segja má að sumarið sé aðeins tveir mánuðir, farið er í opnunarferð um mánaðamót júní-júlí og lokunarferð í upphafi september. Þrátt fyrir þennan stutta opnunartíma, hlutfallslega fáa fótgangandi gesti sem þarna dvelja, og að allt starf er unnið í sjálfboðavinnu er þetta húsnæði skattlagt í hæsta gjaldflokki sem um hótel í byggð væri að ræða.
En ætli myndirnar segi ekki mesta sögu eins og venjulega? Við látum við þær tala sínu máli. Höfundur tók allar nema þær sem sýna flutning gamla Bræðrafells á staðinn sem Sigurgeir B. Þórðarson hefur líklega tekið.
Hjalti Jóhannesson er í ritnefnd Ferða og í afmælisnefnd vegna 90 ára afmælis Ferðafélags Akureyrar.

Jóhanna Steinmarsdóttir sem lengi var í Bræðrafellsnefnd stendur við sína delux-koju.

Innanstokks í gamla Bræðrafellsskálanum sem þótti mjög „kósý“ gististaður.
Þegar gamli Bræðrafellsskálinn var leystur af hólmi var hann orðinn ansi lúinn en fékk þó framhaldslíf sem skógarkofi í Eyjafjarðarsveit.

Það er ekki hægt að hlaupa í næstu búð ef eitthvað smáræði vantar, hluti af lagernum í gamla Bræðrafelli.

Hópur Ferðafélagsfólks í vinnuferð í Bræðrafelli í júní 2010.

Jóhanna Steinmarsdóttir og Hreinn Skagfjörð Pálsson drekka úr Mávastelli þess síðarnefnda.

Gamli Bræðrafellsskálinn kveður Ódáðahraun eftir 39 ára dygga þjónustu.

Teikningar nýja Bræðrafellsskálans og staðsetning.

Þorvaldur Rafn Kristjánsson fær sér í nefið og Sigurgeir Sigurðsson fylgist með.

Það voru talsverðar tofærur sem trukkur Skútabergs þurfti að takast á við og þurfti mikla lagni.

Vignír Víkingsson og Grímur Laxdal í ausandi rigningu við frágang skálans haustið 2016.

Hópur sjálfboðaliða FFA í síðustu vinnuferðinni við frágang skálans haustið 2016.

Innanstokks í nýja Bræðrafelli.

Innanstokks í nýja Bræðrafelli.

Útsýni af pallinum í Bræðrafelli til vesturs, fjallið Bræðrafell blasir við.

Súlur, björgunarsveitin á Akureyri veitti FFA og Vatnajökulsþjóðgarði ómetanlega aðstoð þegar hún flutti nýjan kamar á svæðið um páskana 2024.

Kannski er þetta besta útsýni af kamri á öllu landinu?
Hér er svo grein Árna Jóhannessonar um byggingu gamla Bræðrafells og flutning á staðinn. Greinin birtist, eins og fram kom í upphafi, í 38. árgangi Ferða árið 1979.
Og enn um skálabyggingu
Í 36. árgang Ferða ritaði ég grein um skálabyggingu á þáliðnum vetri 1976-1977. Húsið stóð á lóð Vegagerðarinnar og beið þess að því yrði valinn staður, og vissulega kom fleiri en einn til greina. Stjórn Ferðafélags Akureyrar ákvað að setja það við Bræðrafell, sérkennilegan móbergskoll klofinn og með nál sem gerir það eftirminnilegt þeim er sjá það af leiðinni í Herðubreiðarlindir. Kollóttadyngja með sínum jarðföllum og hraunfarvegum að ógleymdum risavöxnum gíg í kolli, Eggert, Hrútsrönd og ótal aðrar gersemar í hæfilegri fjarlægð til að ganga að frá staðnum, ásamt tillögu náttúruverndarráðs um gönguleiðir á Ódáðahraunssvæðinu, munu hafa ráðið úrslitum um staðarvalið.
Stjórnin skipaði nefnd til að velja húsinu stað við Bræðrafell og kanna hvernig það yrði flutt á staðinn. Nefndin brá þegar við og fann kjörinn stað fyrir húsið og akfæra leið að staðnum. Þeir boruðu í hraunhelluna, sem húsið átti að standa á, og settu festingar fyrir húsið í holurnar. Björn Sigurðsson frá Húsavík og bróðir hans komu svo með húsið á bíl sínum sunnudaginn 25. september. Klukkan fjögur var húsið orðið fast og við sem höfðum fylgt því héldum heim glöð og ánægð í hinu besta veðri.
Næst er það 15. júní 1978 sem er farið til að vinna við húsið. Við komum yfir Lindána eftir miðnættið og ókum fram á 3 hreindýr á eyrunum rétt norðan við Þorsteinsskála. Eftir að hafa gist þar fórum við sem leið liggur vestur fyrir Herðubreið og að uppgöngustaðnum. Aðeins á einum stað þurftum við að sneiða fyrir snjóskafl norður með Herðubreiðartöglunum. Við gengum svo tveir vestur að húsinu og hófumst þegar handa að klæða húsið utan með bárujárni. Félagar okkar þrír gengu á Herðubreið i mjög góðu veðri. Við vorum að ljúka við að klæða seinni gaflinn þegar þeir komu til okkar um kvöldið. Á þjóðhátíðardaginn 17. júní settum við járn á þakið. Við fengum í heimsókn hóp frá Ferðafélagi Akureyrar, og fólkið drakk kaffi í húsinu meðan yfir gekk skörp skúr. Austur í Þorsteinsskála fórum við svo um kvöldið og gistum þar með hópnum í hinu besta yfirlæti. Á heimleið daginn eftir komum við í sæluhúsið við Jökulsá.
Næst er svo farið 27. júní og næstu tvo daga er húsið einangrað og klætt innan eða gengið frá því svo að sæmilegt sé að vera í því. Ekki tókst að gera í stand svefnbálka.
Dagana 5.-7. júlí dvelur svo hópur frá félaginu í húsinu og gengur um nágrennið, en gengur svo í Dreka og sameinast öðrum hóp. Var síðan gengið með Svartá frá upptökum til þess er hún fellur í fögrum fossi nánast í Jökulsá. Ferð þessi þótti takast mjög vel og sannaði gildi þess að hafa hús við Bræðrafell, svæðið þótti forvitnilegt og fjölbreytt.
Við komum svo þarna þrír 7. september gengum frá ytri hurð, sem við bárum frá Herðubreið, og gluggaflekum, En fyrst gengum við frá ofni og gátum látið okkur líða vel við yl frá honum um kvöldið. Við vörðuðum leiðina frá húsinu að fjallsrótunum og höfðum þá i huga vélsleðaferðir. Seinni nóttina hríðaði ofurlítið og var jörð að mestu hvít um morguninn. Austur að bílnum gengum við tímanlega um morguninn og ókum svo vestan Herðubreiðartagla i Dreka. Þar tókum við dýnuverin og gengum frá skálanum undir veturinn. Nokkrir skaflar voru rétt neðan við Dreka en annars var ekki teljandi snjór. Fjöllin voru hvít en sáust varla fyrir hríðaréli sem gekk yfir rétt sem við ókum frá skálanum.
Um leið og haustferð var farin í Þorsteinsskála, á haustjafndægrum 23. september, var ekið með kol vestur fyrir Herðubreið. Vélsleðamenn munu svo koma þeim í skálann í vetur. Þarna um kvöldið var stormur og sandrok. Það var líka rigningarslitur og því fremur óyndislegt veður er við feðgar ókum í myrkri yfir hraunið að Þorsteinsskála. Þar beið okkar matur og kátt fólk. Sunnudaginn 24. september höfðu öll ský flúið, vindar tekið sér hvíld og blessuð sólin brosti við okkur.

Mynd sem birtist með grein Árna Jóhannessonar, Og enn um skálabyggingu, í Ferðum, blaði Ferðafélags Akureyrar, árið 1979. Þar stendur undir myndinni: 18. júní 1978. Bræðrafell. Loftur, Guðmundur, Árni, Sveinbjörn. Jóhannes tók myndina.
Er fólkið hafði fengið morgunverð var gengið um og notið þess unaðar er samspil sólar og haustlita getur töfrað fram. Á heimleiðinni var svo áð í landi Kálfastrandar í Mývatnssveit í dásamlegu veðri. Sú unaðsstund verður trúlega fleirum en mér ógleymanleg. Sú leið sem eðlilegast er að fara að skálanum er að fara í Herðubreiðarlindir. Þaðan er mjög hæg dagleið að ganga hvort sem er norðan eða sunnan Herðubreiðar og svo vestur hraunið að skálanum. Ágætt er að aka að uppgöngustaðnum á Herðubreið og ganga svo vestur yfir hraunið, sem er mjög greitt yfirferðar sandborið og flatt. Stefnan er á Bræðrafellið mitt og er þá farið um eða rétt við gíginn í Flötudyngju. Ekkert vatnsból er nálægt húsinu en fannir endast mjög lengi í gígum og jarðföllum. Í ferð okkar 8. september var snjór bæði í gígnum á Flötudyngju og eins í jarðföllunum vestur við fellið. Það ætti því að vera ástæðulaust að bera með sér vatn þó dvelja skuli þarna. Frá uppgöngunni á Herðubreið og vestur að skálanum er rólegur 3 tíma gangur, leiðin er sem áður sagði greiðfær, brattalaus og fjallasýn er mikil og fögur. Það er von mín að skáli þessi verði oft sóttur heim og margur njóti þess að geta dvalið þar í návist þeirra tíðinda er skeðu fyrir árþúsundum og hafa verið hrikaleg.
Á aðalfundi Ferðafélags Akureyrar sem haldinn var í Hvammi, félagsheimili skáta, var samþykkt tillaga stjórnar félagsins um að skáli þessi skyldi heita Bræðrafell.
Árni Jóhannesson.
Þróun skógarbotnsins
Edda og ADHD greiningin
Hús dagsins: Lundargata 9
Innra með okkur öllum er Birtíngur