Fara í efni
Pistlar

Ferjan er í slipp – aukaflug á þorrablót

Fjórar kynslóðir Grímseyjarkvenna, talið frá vinstri: Brá Svafarsdóttir, óskírð Ragnarsdóttir, Unnur Ingólfsdóttir og Gyða Thorsteinsson. Mynd: Halla Ingólfsdóttir - tekin af Facebook-síðu Akureyrarbæjar.
Árlegt þorrablót Grímseyinga er á dagskránni í kvöld. Þar sem Grímseyjarferjan Sæfari er í slipp hefur verið gripið til þess ráðs að bjóða upp á aukaflug til Grímseyjar í dag. Frá þessu er sagt á Facebook-síðu Akureyrarbæjar.
 
Grímseyingar eru ekkert að láta hjátrú um ólukku þegar föstudagur og 13. dagur mánaðarins fara saman. Í kvöld verður nefnilega einn af hápunktum skemmtanalífsins í Grímsey á hverju ári, þorrablótið, hefðbundið trogþorrablót þar sem hver gestur eða fjölskylda kemur með sínar eigin kræsingar á blótið. Mikið er lagt upp úr skreytingum og skemmtiatriðum, hljómsveit úr landi til að spila fyrir dansi fram eftir nóttu. Þar sem ferjusiglingar liggja niðri er boðið upp á aukaflug til Grímseyjar í dag og aftur til baka á sunnudag. 

Verk gömlu meistaranna

Jóhann Árelíuz skrifar
12. apríl 2026 | kl. 06:00

Birki og beit

Sigurður Arnarson skrifar
08. apríl 2026 | kl. 08:00

Hús dagsins: Hafnarstræti 35

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
07. apríl 2026 | kl. 22:00

Þegar lífið hægir á manni

Guðrún Arngrímsdóttir skrifar
07. apríl 2026 | kl. 08:00

Höfðingsskapur á Hofi

Jóhann Árelíuz skrifar
05. apríl 2026 | kl. 06:00

Af húsaflutningum Ferðafélags Akureyrar

Hjalti Jóhannesson skrifar
04. apríl 2026 | kl. 10:30