Fara í efni
Pistlar

Gildi – þinn innri áttaviti

HEILSA – 12

Við eyðum oft miklum tíma í að hugsa um hvað við viljum gera, bæta eða ná. Við setjum okkur markmið, skipuleggjum dagana okkar og reynum að halda utan um allt sem við viljum sinna. Sjaldnar gefum við okkur tíma til þess að staldra við grunnspurninguna sem liggur undir þessu öllu saman: Á hverju byggi ég líf mitt?

Eitt það mikilvægasta sem við getum gert fyrir okkur sjálf er einmitt að skoða þennan grunn.

Ef við ímyndum okkur stórt, fallegt og heilbrigt tré, með kraftmikinn stofn og falleg laufblöð, þá vitum við að það á djúpar og sterkar rætur sem halda því stöðugu, sama hvernig veðrið leikur við það. Ræturnar sjást ekki alltaf, en þær skipta þó öllu máli.
Gildin okkar eru einmitt þessar rætur.

Í jákvæðri sálfræði og markþjálfun er unnið markvisst með gildi sem grunn að vellíðan og stefnu í lífinu. Gildi eru lifandi leiðarljós sem móta hvernig við hugsum, hegðum okkur og tökum ákvarðanir á hverjum degi. Við getum líka líkt þeim við innbyggðan áttavita sem vísar okkur leið, sérstaklega þegar við stöndum frammi fyrir vali eða óvissu.

Gildi eru þó ekki bara hugmyndir eða falleg orð. Þau birtast í því hvernig við lifum. Í því hvernig við verjum tíma okkar og orku, hvernig við tölum við okkur sjálf og hvernig við mætum öðrum.

  • Ef tengsl eru okkur mikilvægt gildi, þá birtist það í því að vera raunverulega til staðar.
  • Ef heilsa er gildi, þá snýst það ekki aðeins um hreyfingu heldur líka um hvíldina sem við leyfum okkur.
  • Og ef heiðarleiki skiptir okkur miklu máli, þá getur það þýtt að þurfa að eiga samtöl sem eru óþægileg en nauðsynleg.

Við finnum líka oft skýrt fyrir gildunum okkar þegar þau eru ekki virt og það er í raun frábær leið til þess að bera kennsl á þau.

  • Ef virðing er mikilvægt gildi getur það farið strax í taugarnar á okkur þegar einhver talar yfir okkur eða hlustar ekki.
  • Ef réttlæti er okkur mikilvægt gildi, þá finnum við fyrir vanlíðan þegar við verðum vitni að ósanngirni.
  • Ef áreiðanleiki er hátt skrifaður þá situr það í okkur þegar fólk stendur ekki við orð sín.

Viðbrögðin sem við finnum fyrir eru áttavitinn okkar að gefa til kynna hvað skiptir okkur raunverulega máli. Það merkilega er nefnilega að við þurfum ekki alltaf að kunna að nefna gildin okkar til að finna fyrir þeim. Þau birtast í líðan okkar. Þegar við erum í samræmi við þau finnum við oft fyrir ró, skýrleika og tilgangi. En þegar við fjarlægjumst þau getur eitthvað farið að togast á og við finnum fyrir pirringi, óánægju eða þeirri tilfinningu að vera ekki alveg í takt við okkur sjálf. Að við sitjum ekki nógu vel í okkur sjálfum eða stöndum aðeins til hliðar við okkur.

Þegar gildin okkar eru skýr verður margt einfaldara. Ákvarðanir skýrast, við finnum betur hvað við viljum verja tíma okkar og orku í og hvar við þurfum að setja mörk. Við þurfum síður að draga okkur áfram í rétta átt því stefnan verður einfaldlega skýrari. Samhliða því upplifum við aukinn tilgang og meiri sátt.

Að fá skýrari sýn á eigin gildi er eitthvað sem getur skilað sér margfalt til baka. Við viljum jú öll standa sterk í okkur sjálfum og blómstra í lífinu.

Það eru til margvíslegar leiðir til þess að fá dýpri innsýn í gildin sín, t.d. með einföldu sjálfsprófi á netinu eða í samtali við markþjálfa eða ráðgjafa sem sérhæfir sig í slíku. Eða einfaldlega með því að skoða hvenær okkur líður vel og hvaða gildi eru í heiðri á þeim augnablikum.

Gildi eru ekkert nýtt fyrirbæri. Samfélög, stofnanir og heilir menningarheimar byggja á ákveðnum gildum sem segja: „Þetta skiptir okkur máli.“ Þau móta stefnu, ákvarðanir og hvernig við viljum vera í heiminum. Það sama gildir um okkur sem einstaklinga.

Gildin okkar birtast á ýmsa vegu í daglegu lífi okkar hvort heldur sem við erum meðvituð um þau eða ekki. Ef við lifum eftir þeim, þá er líklegra að okkur líði vel. Ef við förum gegn þeim er líklegra að okkur líði verr.

Sjálfsrækt snýst ekki endilega um að bæta einhverju nýju við.
Stundum snýst hún einfaldlega um að auka eigin lífsgæði með því að kynnast því betur sem nú þegar býr innra með okkur, og rækta það.

Hrafnhildur Reykjalín er heilsuráðgjafi, PCC vottaður kennari í markþjálfun með diplómu í jákvæðri sálfræði auk fjölbreyttrar menntunar í andlegri og líkamlegri heilsu og önnur eigenda Sjálfsræktar heilsumiðstöðvar. Pistlar hennar og Guðrúnar Arngrímsdóttur birtast annan hvern þriðjudag á akureyri.net.

Hús dagsins: Aðalstræti 54 og 54a

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
23. mars 2026 | kl. 06:00

Skammtað í aska

Jóhann Árelíuz skrifar
22. mars 2026 | kl. 06:00

Haldið á brattann

Hjalti Jóhannesson skrifar
21. mars 2026 | kl. 06:00

Tær var sú fegurð, A 7359

Orri Páll Ormarsson skrifar
20. mars 2026 | kl. 10:00

Öskubuska, Elle Woods og Sandy í Grease

Rakel Hinriksdóttir skrifar
19. mars 2026 | kl. 13:00

Tré ölrakóngsins – Fyrri hluti

Sigurður Arnarson skrifar
18. mars 2026 | kl. 08:30