Attenborough og trjávernd
Í dag á sjálfur David Attenborough, sem þekktastur er fyrir náttúrulífsþætti sína, 100 ára afmæli. Við hjá Skógræktarfélaginu óskum honum að sjálfsögðu til hamingju með daginn. Attenborough þekkir náttúruna betur en flestir og í seinni tíð hefur hann orðið aðgerðasinni til verndar henni. Hann hefur meðal annars barist fyrir vernd skóga og trjáa. Ýmsir viðburðir verða í Bretlandi í tilefni dagsins eins og vænta má. Má nefna göngur í náttúrunni og gróðursetning trjáa.

Í tilefni dagsins og þar sem nú styttist í kosningar viljum við í Skógræktarfélaginu minna á að ekki eru neinar samþyktir í gildi um verndun trjáa á Akureyri. Hér er samþykkt um efnið sem undirrituð var árið 2002. Hún byggir á lögum frá 1997 en þau hafa verið felld úr gildi. Þar með er samþykktin marklaus og gildir ekki lengur.
Í pistli okkar um gróður á lóðarmörkum sögðum við frá þessu og byggingarreglugerð númer 7.2.2 sem nefnist Tré og runnar á lóðum. Hún nær þó ekki yfir trjávernd.
Á Norðymbralandi í norðurhluta Englands er frægur veggur sem nær þvert yfir Stóra-Bretland og kallast Hadríanusarveggurinn. Maður að nafni John Clayton (1792–1890) er talinn hafa plantað garðahlyn við vegginn fyrir meira en öld. Svo bárust þau tíðindi þann 28. september árið 2023 að tréð, sem þá var um 120 ára gamalt, hafði verið fellt. Lögreglan í Norðymbralandi lýsti því strax yfir að um skemmdarverk (an act of vandalism) hefði verið að ræða og hóf viðamikla rannsókn. Þá kom í ljós að tveir menn á fertugsaldri höfðu fellt tréð. Þeir voru kærðir fyrir verknaðinn og 15. júlí 2025 voru þeir báðir dæmdir í fjögra ára og þriggja mánuða fangelsi fyrir skemmdarverkið. Í smíðum er pistill um þetta tré og verður hann birtur við tækifæri.
Við viljum ekki ganga eins langt og gert er í Englandi og dæma menn í meira en fjögra ára fangelsi fyrir að fella tré í óleyfi en við teljum fulla ástæðu til að setja reglugerð um trjávernd á Akureyri. Engum ætti að líðast að fella tré í óleyfi í bæjarlandinu. Okkur þykir þó rétt að nefna að dæmi þess þekkjast. Að minnsta kosti einu sinni hefur slíkur verknaður verið kærður til lögreglu en málið var látið niður falla.
Við teljum einnig að huga þurfi vel að því hvort eðlilegt sé að fella glæsileg tré í einkagörðum sem setja mikinn svip á götumyndina. Það tekur aðeins örskotsstund að fella tré sem vaxið hefur í marga áratugi. Slíkar framkvæmdir eru óafturkræfar og hafa áhrif á umhverfið. Um trjávernd skrifuðum við þennan pistil í júlí síðastliðnum og vísum í hann til frekari fróðleiks. Þar má meðal annars sjá myndir af trjám sem eitt sinn prýddu bæinn.
Við beinum því til væntanlegra fulltrúa í bæjarstjórn að sett verði ný reglugerð um trjávernd á Akureyri svo koma megi í veg fyrir óþarfa skemmdarverk á ásýnd bæjarins. Jafnframt skorum við á kjósendur að impra á efninu þegar kosningaskrifstofur eru heimsóttar. Til hamingju með afmælið, David Attenborough.
Sigurður Arnarson er í stjórn Skógræktarfélags Eyfirðinga og skrifar reglulega pistla á vef félagsins.
Hús dagsins: Sæborg í Glerárþorpi
Að bjarga heyi. Skáldin um landlæsi
Persónuleiki og fíkn
Hversu vel hreyfist þú? Getur verið að þig vanti hreyfanleika?