Fara í efni
Pistlar

Akureyri.net langmest notaði staðarmiðillinn

Nærri fjórðungur þeirra sem nota staðbundna fjölmiðla til fréttalesturs velja Akureyri.net til að nálgast fréttir (23,2%) . Þetta kemur fram í niðurstöðum víðtækrar könnunar sem Maskína vann fyrir Fjölmiðlanefnd um hatursorðræðu, skautun, upplýsingaóreiðu og traust, þar sem m.a. var spurt út í notkun staðbundinna fjölmiðla til fréttalesturs.

Í tilkynningu á vef Fjölmiðlanefndar segir:

Á eftir Akureyri.net koma miðlarnir Skessuhorn og Bæjarins besta/bb.is en 15% þátttakenda kvaðst nota þann fyrrnefnda til að nálgast fréttir og 14,2% þann síðarnefnda. Álíka margir, eða 14%, sögðust nota Víkurfréttir í sama tilgangi en heldur færri sögðust nota Austurfrétt/Austurgluggann (12,7%), Vikublaðið (11,2%), Feyki (8,9%) og Eyjafréttir (6,4%). Fæstir sögðust nota Tígul (4,7%), DB blaðið (1,6%) og Bæjarblaðið Jökul (0,9%). Um það bil einn af hverjum fjórum, eða 24%, kvaðst nota aðra fjölmiðla en þá sem taldir voru upp í þessum hluta könnunarinnar.

Á vef Fjölmiðlanefndar segir einnig:

Könnunin var lögð fyrir Þjóðgátt Maskínu, sem er þjóðhópur fólks (e. panel) sem dreginn er með tilviljun úr Þjóðskrá. Könnunin fór fram á netinu. Svarendur eru af öllu landinu og á aldrinum 18 ára og eldri. Við úrvinnslu voru gögnin vegin til samræmis við tölur Hagstofunnar þannig að hópurinn sem svarar endurspeglar þjóðina út frá kyni, aldri og búsetu. Við vigtun gagna getur birst örlítið misræmi í fjöldatölum og hlutföllum sem orsakast af námundun.

Gagnaöflun fór fram dagana 5.-11. desember 2024 og voru svarendur 951 talsins.

Bræðrafell

Hjalti Jóhannesson skrifar
07. mars 2026 | kl. 06:00

Málabraut, er það ekki bara eitthvað hobbí?

Orri Páll Ormarsson skrifar
06. mars 2026 | kl. 06:00

Þróun skógarbotnsins

Sigurður Arnarson skrifar
04. mars 2026 | kl. 08:30

Edda og ADHD greiningin

Ólafur Þór Ævarsson skrifar
02. mars 2026 | kl. 12:30

Hús dagsins: Lundargata 9

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
01. mars 2026 | kl. 06:00

Innra með okkur öllum er Birtíngur

Rakel Hinriksdóttir skrifar
27. febrúar 2026 | kl. 13:00