Fara í efni
Pistlar

Akureyri.net auglýsir eftir blaðamanni

Akureyri.net hefur auglýst eftir reyndum blaðamanni í fullt starf.

Núverandi eigendur endurvöktu miðilinn fyrir þremur og hálfu ári, umfangið hefur aukist jafnt og þétt og tímabært er að fjölga á ritstjórninni.

Skapti Hallgrímsson, annar eigenda og ritstjóri Akureyri.net, var lengi vel eini fastráðni starfsmaðurinn en snemma á þessu ári var Rakel Hinriksdóttir fastráðin í 50% starf og Haraldur Ingólfsson hefur verið lausráðinn blaðamaður í um það bil hálfu starfi. Vefurinn státar auk þess að afragðs góðum og vinsælum pistlahöfundum og nýtur liðsinnis nokkurra prýðilegra ljósmyndara. 

Ráðgjafafyrirtækið Mögnum sér um málið fyrir Eigin herra ehf., útgáfufélag Akureyri.net. Auglýsing fyrirtækisins er svohljóðandi:

  • Vefmiðillinn Akureyri.net leitar að reyndum, öflugum og hugmyndaríkum blaðamanni sem er tilbúinn að vera „oftast sólarmegin“ – óháð veðri og vindum.
  • Við leitum að aðila sem er góður í samskiptum og með gott fréttanef, hefur auk þess brennandi áhuga á málefnum liðandi stundar og er tilbúinn að taka þátt í áframhaldandi uppbyggingu miðilsins.
  • Helstu verkefni eru hefðbundin frétta- og greinaskrif auk mannlífsviðtala.
  • Akureyri.net er spennandi fjölmiðill sem nýir eigendur endurvöktu í nóvember 2020 og fjallar alla daga ársins í máli og myndum um Akureyri og Akureyringa, hvar sem þeir eru niðurkomnir í heiminum.
  • Miðillinn hefur náð góðri fótfestu, heimsóknir undanfarið eru um 10.000 á dag að meðaltali og einstakir gestir (IP tölur) allt að 90.000 á mánuði.
  • Slagorð Akureyri.net er Oftast sólarmegin.
  • Umsóknarfrestur er til og með 19. júní 2024
  • Umsókn skal fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda.
  • Nánari upplýsingar veita Sigríður Ólafsdóttir sigga@mognum.is og Skapti Hallgrímsson skapti@akureyri.net
  • Sótt er um á www.mognum.is

Eyðum tómlæti í garð Hámundar heljarskinns!

Orri Páll Ormarsson skrifar
24. júlí 2026 | kl. 06:00

Áhrif ísaldar á gráelrideildina

Sigurður Arnarson skrifar
22. júlí 2026 | kl. 12:30

Hafþyrnir - Hinn þyrnótti hestaljómi

Sigurður Arnarson skrifar
15. júlí 2026 | kl. 11:30

Hús dagsins: Sigtún; eldra íbúðarhús

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
14. júlí 2026 | kl. 09:00

Þarf sumarið að vera fullkomið?

Hrafnhildur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar
14. júlí 2026 | kl. 06:00

Er hægt að spila fótbolta svona?

Orri Páll Ormarsson skrifar
10. júlí 2026 | kl. 11:00