Hvernig er jafnvægið?
HEILSA – 29
Hvenær prófaðir þú síðast að standa á öðrum fæti? Eða ganga eftir ójöfnu undirlagi án þess að þurfa að horfa stöðugt niður fyrir þig? Við hugsum ekki mikið um hvernig jafnvægið okkar er, enda treystum við á það án þess að veita því sérstaka athygli, en gott jafnvægi er mikilvægur hluti af líkamlegri getu okkar. Það gerir okkur kleift að standa stöðug, samhæfa hreyfingar og bregðast við þegar eitthvað óvænt gerist. Rétt eins og við þjálfum vöðvastyrk og úthald getum við þjálfað jafnvægið.
Jafnvægi er meira en að standa á öðrum fæti
Jafnvægið byggir á samspili margra kerfa líkamans. Augun gefa heilanum upplýsingar um umhverfið, jafnvægiskerfið í innra eyranu skynjar hreyfingar og stöðu höfuðsins og skynnemar í vöðvum og liðum veita upplýsingar um stöðu og hreyfingar líkamans.
Heilinn vinnur úr þessum upplýsingum og stýrir vöðvunum þannig að við getum haldið jafnvægi, hvort sem við stöndum kyrr, göngum eða þurfum að bregðast við óvæntri hreyfingu.
Við reiðum okkur til dæmis á jafnvægið þegar við göngum niður stiga, stígum yfir hindrun eða göngum á hálku. Ef við hrösum skiptir ekki aðeins máli að hafa nægan styrk heldur líka að geta brugðist hratt við og náð aftur jafnvægi.
Jafnvægið þarf líka þjálfun
Með aldrinum geta orðið breytingar á skynjun, vöðvastyrk og viðbragðsgetu sem hafa áhrif á jafnvægið. Þessar breytingar gerast oft hægt og við tökum líklega ekki eftir þeim fyrr en ákveðnar athafnir verða erfiðari en áður.
Aldurinn er þó ekki eina skýringin. Hreyfivenjur okkar og þær áskoranir sem við gefum líkamanum hafa líka áhrif. Fólk á öllum aldri ætti að huga að jafnvæginu.
Almenn hreyfing er mikilvæg fyrir heilsuna en hún reynir ekki endilega á alla þá þætti sem góð jafnvægisstjórn byggist á. Til að bæta jafnvægið þurfum við að velja æfingar sem reyna sérstaklega á það. Þær þurfa þó hvorki að vera flóknar né erfiðar. Að standa á öðrum fæti eða færa þyngdina hægt á milli fóta eru dæmi um einfaldar æfingar sem geta reynt á jafnvægið.
Eitt af því sem ég mæli gjarnan með er að prófa að fara í sokkana standandi. Þetta er einföld hversdags hreyfing sem reynir bæði á jafnvægi, hreyfigetu og stjórn á líkamanum. Ef þú getur það ekki í dag er það ekkert tiltökumál, en þá er um að gera að byrja að æfa sig smám saman. Byrjaðu til dæmis á því að standa á öðrum fæti með stuðning nálægt og prófa síðan að lyfta öðrum fætinum og halda jafnvægi á meðan. Með tímanum geturðu aukið áskorunina og jafnvel náð því að fara í sokkana án þess að setjast niður.
Önnur einföld leið er að standa á öðrum fæti á meðan þú burstar tennurnar. Styddu þig við eitthvað í upphafi ef þarf og auktu áskorunina eftir því sem getan batnar. Svona geturðu nýtt hversdagslegar athafnir til að þjálfa jafnvægið án þess að taka frá sérstakan tíma.
Fjölbreytt þjálfun fyrir fjölbreyttar aðstæður
Við tengjum líkamsrækt gjarnan við það að byggja upp styrk og bæta úthald. En góð líkamleg geta felur í sér fleira. Við þurfum að geta samhæft hreyfingar, skynjað stöðu líkamans, fært þyngdina á milli fóta og brugðist við breytingum í umhverfinu.
Þess vegna er gagnlegt að vinna með styrk, hreyfigetu, jafnvægi og samhæfingu í þjálfuninni. Þessir þættir styðja hver annan en hver þeirra þarf líka að fá viðeigandi þjálfun. Við getum til dæmis verið með góðan vöðvastyrk en samt átt erfitt með að halda jafnvægi við ákveðnar aðstæður.
Með því að flétta markvissum jafnvægisæfingum inn í fjölbreytta þjálfun getum við bætt stjórn á líkamanum og undirbúið okkur betur fyrir þær ólíku hreyfingar sem daglegt líf krefst. Markmiðið er að byggja upp líkamlega getu sem nýtist okkur í daglegu lífi því gott jafnvægi snýst ekki eingöngu um að geta staðið lengi á öðrum fæti. Það snýst líka um að geta haldið stöðugleika á hreyfingu, aðlagast ólíku undirlagi og brugðist við þegar við missum jafnvægið.
Gott jafnvægi getur aukið öryggi okkar í daglegum athöfnum og veitt okkur meira sjálfstraust til að hreyfa okkur og taka þátt í því sem okkur finnst skemmtilegt. Markviss jafnvægisþjálfun, sérstaklega samhliða styrktarþjálfun, getur einnig dregið úr fallhættu hjá eldra fólki og hjálpað því að viðhalda sjálfstæði sínu.
Það jákvæða er að jafnvægið er þjálfanlegt alla ævi. Með reglulegri þjálfun og hæfilegum áskorunum er hægt að bæta jafnvægi og líkamsstjórn, jafnvel þótt við séum komin á efri ár.
Við þurfum því ekki að bíða eftir því að jafnvægið fari að bregðast áður en við förum að sinna því. Með því að sinna jafnvæginu reglulega getum við stuðlað að því að halda í þá dýrmætu getu að hreyfa okkur af öryggi og sjálfstæði sem lengst.
Guðrún Arngrímsdóttir er ÍAK einkaþjálfari, jógakennari og markþjálfi með diplómu í jákvæðri sálfræði ásamt því að vera önnur eigenda Sjálfsræktar heilsumiðstöðvar. Pistlar hennar og Hrafnhildar Reykjalín Vigfúsdóttur birtast annan hvern þriðjudag á akureyri.net.
Akureyrin í Þorvaldi
Hús dagsins: Hafnarstræti 67; Skjaldborg
Hraunfellsbræður
Birkið í Trjáræktarstöðinni afhjúpað – Haustið kjaftar frá