Vonir Þórs/KA dvína eftir jafntefli
Þróttur og Þór/KA gerðu markalaust jafntefli í dag á heimavelli Þróttar í Laugardalnum í efstu deild kvenna í knattspyrnu. Heimaliðið var talsvert meira með boltann í leiknum og gerði oft harða hríð að marki norðankvenna en varnir Þórs/KA héldu og fá færi sköpuðust. Jafnteflið þýðir að vonir Þórs/KA um að enda í efstu sex sætum deildarinnar dvínuðu talsvert og raunar er styttra niður í fallsæti.
Leikurinn var í jafnvægi framan af en smátt og smátt náði Þróttur tökum á leiknum. Fram að hléi einkenndist leikurinn af mikilli stöðubaráttu og lítið gerðist nálægt marki liðanna. Varnarleikur Þórs/KA var skipulagður og sterkur og liðið gaf fá færi á sér.
Þór/KA fékk besta færi leiksins
Sóknarþungi Þróttara jókst enn í seinni hálfleik en það var Þór/KA sem fékk engu að síður langbesta færi leiksins. Eftir lipra skyndisókn fékk Margrét Árnadóttir boltann alein á auðum sjó og lék í átt að marki Þróttar. Hún hugðist fara framhjá Mollee Swift í markinu en Mollee náði snertingu á boltann, sem fór í fótinn í Margréti og þaðan framhjá markinu.

Alessandra Augur var örugg í marki Þórs/KA í dag. Mynd: Ármann Hinrik
Þrátt fyrir að stjórna leiknum lengst af náðu Þróttarar ekki að brjóta varnir Þórs/KA á bak aftur og fáar af fjórtán hornspyrnum sköpuðu hættu. Arna Sif Ásgrímsdóttir fyrirliði var besti leikmaður vallarsins og hafði í nógu að snúast við að stöðva sóknir Þróttar og koma boltanum burt áður en hætta skapaðist. Bak við vörnina stóð Alessandra Augur í markinu og greip inn í þegar á þurfti að halda.
Veik von um að ná 6. sætinu
Þór/KA er enn í 7. sæti deildarinnar eftir jafnteflið, nú með 19 stig. Þróttarar og Grindavík/Njarðvík eru í sætunum fyrir ofan, síðustu öruggu sætum efri hlutans, með 22 stig. Markatala Þórs/KA er best þessara þriggja liða og vonir Þórs/KA um að ná 6. sætinu í lokaumferðinni felast í því að vinna FH á útivelli og treysta á að í það minnsta annaðhvort Þróttur eða Grindavík/Njarðvík tapi sínum leik.
Fram er með 19 stig eins og Þór/KA, eftir sigur í dag og Víkingur vann líka sinn leik og er með 17 stig í 9. sæti. Valur er með 16 stig í 10. og neðsta sæti en á leik gegn FH til góða. Botnbaráttan er því orðin afar hörð.
Þór/KA: Alessandra Dorothy Augur – María Dögg Jóhannesdóttir, Karen Hulda Hrafnsdóttir, Arna Sif Ásgrímsdóttir, Angela Mary Helgadóttir – Hulda Ósk Jónsdóttir (Lauren Adrienne Lapomarda 59.), Margrét Árnadóttir, Elizabeth Moore, Hildur Anna Birgisdóttir (Halla Bríet Kristjánsdóttir 93.), Karen María Sigurgeirsdóttir (Amalía Árnadóttir 59.) – Erin Flurey (Birgitta Rún Finnbogadóttir 93.).
Þór/KA á einn leik eftir þar til deildinni verður skipt í tvennt, gegn FH á útivelli. Sex efstu halda áfram keppni um Íslandsmeistaratitilinn og þau fjögur neðri berjast áfram um að halda sér í deildinni. Tvö þau neðstu að lokinni þessari „framlengingu“ falla.
- Sunnudag 6. september 14:00
FH - Þór/KA
Óskhyggjan og veruleikinn
Virðir Alþingi úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst?
NEI
Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land