Vendipunktur í Vestmannaeyjum?
Takist Þórsurum að halda sæti sínu í Bestu deild karla í fótbolta munu þeir vafalítið horfa til leiksins á Hásteinsvelli í Vestmannaeyjum í dag sem algjörs vendipunkts í fallbaráttunni.
Þeim tókst að knýja fram sannkallaðan baráttusigur á ÍBV, 1-0, þar sem Sigfús Fannar Gunnarsson skoraði sigurmarkið seint í fyrri hálfleik, eftir að Eyjamenn höfðu brennt af vítaspyrnu.
ÍBV sótti nær látlaust í seinni hálfleik, sérstaklega eftir að Þór missti Bjarna Guðjón Brynjólfsson af velli með rautt spjald, en Þórsarar vörðust með kjafti og klóm, og öllu öðru tiltæku, og innbyrtu sín dýrmætustu þrjú stig á þessu tímabili.
Loksins unnu þeir lykilleik gegn einu af liðunum sem þeir eru að berjast við og uppskeran er sú að Þórsarar eru komnir úr fallsæti, í það minnsta til morguns, og skilja KA eftir á botni deildarinnar.

Sigfús Fannar Gunnarsson gerði sigurmarkið mikilvæga í Eyjum í dag. Hann skoraði fyrsta mark sitt í sumar gegn Stjörnunni í síðustu umferð og hefur því skorað i tveimur leikjum í röð. Mynd: Ármann Hinrik.
FH og Þór eru nú með 18 stig hvort í níunda og tíunda sætinu, ÍBV er með 17 stig í ellefta sætinu og KA, sem sækir Fram heim á morgun, er komið í neðsta sætið með 16 stig. FH tekur á móti Keflavík á morgun en ljóst er að þessi fjögur lið verða í neðri hlutanum þegar deildinni verður skipt í tvennt að lokinni 22. umferðinni um næstu helgi. Valur og Stjarnan eru líklegust til að fylgja þeim þangað en ÍA og Keflavík eru líka í baráttunni um að forðast þau örlög.
Máttu engan veginn tapa
Þetta var leikur sem Þórsarar urðu að vinna. Eitt stig hefði verið skárra en ekkert en ósigur gegn Eyjamönnum á þessum tímapunkti hefði gert stöðu liðsins ansi svarta fyrir lokasprettinn í deildinni.
Aron Birkir Stefánsson var maður leiksins hjá Þór en hann varði hvað eftir annað vel í seinni hálfleiknum eftir að hafa þurft lítið að beita sér í þeim fyrri. Vörnin fyrir framan hann stóð ágætlega fyrir sínu og liðið hélt markinu hreinu í þriðja sinn í síðustu sex leikjunum, sem segir eitthvað. Miðverðirnir Yann Emmanuel Affi og Gyrðir Hrafn Guðbrandsson ná vel saman og Kevin Vazquez var öflugur sem varnartengiliður fyrir framan þá. Sennilega nýtist hann Þórsurum betur þar en sem bakvörður. Reynsla Spánverjans gæti haft úrslitaþýðingu fyrir Þórsara í fallslagnum harða sem er framundan næstu vikurnar.
En í heildina séð voru það viljinn og baráttan, frá fremsta manni til þess aftasta, sem færðu Þór þessi dýrmætu stig. Nú á liðið eftir sex svona leiki, gegn liðunum í neðri hlutanum, og það gætu hæglega orðið sex slagsmálaleikir í svipuðum dúr og þessi.
Þrjár breytingar
Sigurður Heiðar Höskuldsson þjálfari Þórs gerði þrjár breytingar frá tapleiknum gegn Stjörnunni í 20. umferðinni. Birgir Ómar Hlynsson kom í vörnina í stað Ásbjörns Líndal Arnarssonar sem var ekki í hópnum vegna meiðsla og þeir Vilhelm Ottó Biering Ottósson og Sigfús Fannar Gunnarsson komu í stað Einars Freys Halldórssonar og Atla Sigurjónssonar sem hófu leik á varamannabekknum.
Einar er með spelku vegna handarbrots sem hann varð fyrir í leiknum við ÍA en hún kom þó ekki í veg fyrir að hann tæki þátt í leiknum gegn Stjörnunni í síðasta leik.
Aðstæður í Eyjum voru fínar, sól og léttur vindur þegar leikurinn hófst. Sigurður Heiðar lofaði kraftmiklum Þórsurum í viðtali við Sýn fyrir leik og hans menn stóðu við það með hörkupressu á heimamenn frá upphafsflautinu.

Kevin Vazquez var öflugur sem varnartengiliður í Þórsliðinu í dag. „Sennilega nýtist hann Þórsurum betur þar en sem bakvörður. Reynsla Spánverjans gæti haft úrslitaþýðingu fyrir Þórsara í fallslagnum harða sem er framundan næstu vikurnar,“ segir Víðir Sigurðsson í umfjölluninni. Mynd: Ármann Hinrik
Gerði aðra tilraun til að skora
Victor Bertomeu áttu tvö skot að Eyjamarkinu á upphafsmínútunum og fyrirliðinn Aron Birkir Stefánsson markvörður reyndi að endurtaka ævintýrið frá KR-leiknum á 12. mínútu og skaut óvænt á mark ÍBV úr aukaspyrnu skammt utan eigin vítateigs. Ari í Haraldsstovu, markvörður ÍBV, var með allt á hreinu og greip boltann auðveldlega!
Skyldi Aron vera fyrsti markvörðurinn í sögu deildarinnar sem á tvö markskot frá eigin vallarhelmingi á sama tímabilinu?
Um miðjan fyrri hálfleik voru birtar tölur um heppnaðar sendingar og þær sýndu hversu lítið slík tölfræði segir um gang leikja. ÍBV var þá með 153 slíkar gegn 27 frá Þór, þrátt fyrir að Þórsarar ættu síst minna í leiknum og hefðu sýnt meiri sóknartilburði en heimamenn! En þær gáfu þó kannski vísbendingu um að leikmenn Akureyrarliðsins mættu alveg hitta aðeins oftar á samherja.
Hrækti á vítapunktinn og Vicente skaut framhjá
En á 28. mínútu fengu Þórsarar á sig slysalega vítaspyrnu. Birgir Ómar Hlynsson ætlaði að hreinsa frá í vítateig Þórs, Sigurður Arnar Magnússon teygði sig eftir boltanum í sömu andrá og Þórður Þ. Þórðarson dómari var algjörlega viss um að Birgir hefði sparkað í hann í leiðinni. Victor Bertomeu krækti sér í gult spjald fyrir að hrækja á vítapunktinn!
Spánverjinn Vicente Valor, miðjumaður ÍBV, tók vítaspyrnuna en skaut framhjá marki Þórs. Kannski setti Victor landi hans bölvun á punktinn með hrákanum?
Sigfús skoraði aftur
Þórsarar brutu ísinn á lokamínútu fyrri hálfleiks. Vilhelm Ottósson tók aukaspyrnu á hægri kantinum og sendi boltann inn í markteiginn fjær þar sem Sigfús Fannar Gunnarsson skoraði af miklu harðfylgi. Þórsarar voru því með dýrmæta 1-0 forystu í hálfleik.
Sigfús skoraði þar með í öðrum leiknum í röð en markahæsti leikmaður liðsins í 1. deildinni í fyrra, þá með 15 mörk, hafði ekki náð að finna netmöskvana í ár, fyrr en í Stjörnuleiknum á dögunum.
Sigurður Heiðar tók Victor Bertomeu af velli í hálfleik, líklega vegna gula spjaldsins, og setti Einar Frey Halldórsson inn á í staðinn.
Sigfús Fannar var aftur ágengur þegar Einar Freyr var í aðalhlutverki í góðri sókn Þórs á 53. mínútu og Ari markvörður ÍBV þurfti að hafa talsvert fyrir því að verja skot Sigfúsar vinstra megin úr vítateignum.
Arnór Ingi Kristinsson hægri bakvörður ÍBV fékk fyrsta alvöru færi Eyjamanna, fyrir utan vítaspyrnuna, á 57. mínútu þegar hann slapp inn í vítateiginn hægra megin en Aron Birkir var snöggur út á móti honum og varði vel.
Eiður Atli Rúnarsson átti síðan skalla á mark Þórs eftir hornspyrnu á 63 mínútu en Aron Birkir varði auðveldlega. Fyrirliðinn gerði enn betur tveimur mínútum síðar þegar hann varði mjög vel frá Omari Sowe sem var kominn í gott færi í miðjum vítateig Þórs.
Barið að dyrum
Orðasambandið „að banka á dyrnar“ er í tísku í umfjöllun um fótbolta um þessar mundir og það mátti alveg nota um Eyjamenn sem sóttu áfram og sænski miðvörðurinn Mattias Edeland átti skalla rétt framhjá Þórsmarkinu. Stuttu áður hafði Sigurður Heiðar gert samtals þrjár breytingar á Þórsliðinu og sent þá Atla Sigurjónsson, Peter Inga og Fannar Daða inn á völlinn.
Aron Lucas Vokes lamdi hressilega á Þórshurðina skömmu síðar þegar hann átti hörkuskot í utanverða stöngina vinstra megin.
Sigurður kippti síðan Vilhelm Ottó af velli þegar tíu mínútur voru eftir en piltur var þá kominn með gult spjald og síðasta séns að auki hjá ÞÞÞ.
Bjarni í brasi og Þórsarar manni færri
En Bjarni Guðjón Brynjólfsson kom Þórsurum heldur betur í vandræði á 82. mínútu. Hann tók þá illa við sendingu frá Aroni Birki markverði og felldi í kjölfarið Sesar Örn Harðarson sem kom á ferðinni og hirti boltann af honum. Rautt spjald á Bjarna Guðjón og Þórsarar stóðu uppi tíu gegn ellefu á lokakaflanum, en ennþá með forystuna í leiknum.
Aron Birkir hélt markinu áfram hreinu þegar hann varði skalla frá Sesari Erni af stuttu færi á 87. mínútu og síðan hornspyrnu frá Vicente sem var hreinlega markskot. Alex Freyr Hilmarsson fyrirliði ÍBV skallaði í þverslána og yfir og jöfnunarmarkið lá svo sannarlega í loftinu. Í sex mínútna uppbótartímanum skaut Vicente yfir mark Þórs úr góðu færi. Það var síðasti séns heimamanna, tíu Þórsarar vörðust og börðust og fögnuðu innilega ríkulegri uppskeru þegar Þórður flautaði til leiksloka.
Lið Þórs: Aron Birkir Stefánsson – Birgir Ómar Hlynsson (Peter Ingi Helgason 71.), Gyrðir Hrafn Guðbrandsson, Yann Emmanuel Affi, Vilhelm Ottó Biering Ottósson (Sverrir Páll Ingason 80.) – Bjarni Guðjón Brynjólfsson, Kevin Vazquez, Christian Jakobsen – Ágúst Eðvald Hlynsson (Fannar Daði Malmquist Gíslason 67.), Victor Bertomeu (Einar Freyr Halldórsson 46.), Sigfús Fannar Gunnarsson (Atli Sigurjónsson 67.)
21 umferð er að baki hjá Þórsurum og liðið á því aðeins einn leik eftir þar til deildinni verður skipt í tvennt. Sex efstu halda áfram baráttu um Íslandsmeistaratitilinn og mætast innbyrðis í einfaldri umferð, rétt eins og sex neðstu liðin gera. Tvö neðstu að þeirri viðbót lokinni falla.
Lokaleikur Þórs fyrir skiptinguna er heimaleikur gegn FH, sem er núna í 9. sæti en mætir Keflavík á morgun, sunnudag.
- Sunnudag 6. september 14:00
Þór - FH
Virðir Alþingi úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst?
Óskhyggjan og veruleikinn
NEI
Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land