Fara í efni
Umræðan

KA tekur á móti KR, Þór sækir Stjörnuna heim

Ágúst Eðvald Hlynsson fagnar marki sínu gegn Stjörnunni í fyrri leik Þórs og Stjörnunnar í vor. Til hægri er Ívar Arnbro Þórhallsson, markvörður KA, en væntanlega mun mæða mikið á honum þegar marksæknir KR-ingar koma norður. Myndir: Ármann Hinrik.

Akureyrarliðin í Bestu deild karla í knattspyrnu eiga bæði leik í dag og í báðum leikjum koma þjálfarabreytingar við sögu. Fimm af sex leikjum 20. umferðar deildarinnar fara fram í dag og ef til vill skýrast línur eitthvað aðeins.

KA frumsýnir væntanlega nýjan þjálfara gegn KR-ingum í dag, en félagið tilkynnti núna í vikunni um ráðningu Eiðs Smára Guðjohnsen í stöðu aðalþjálfara við hlið Hallgríms Jónassonar. Þórsarar spila innanhúss í dag, mæta Stjörnunni í Miðgarði í Garðabæ þar sem framkvæmdir eru að hefjast við að endurnýja gervigrasið á Stjörnuvellinum. Stjarnan sagði upp samningi við Jón Þór Hauksson, sem ráðinn var fyrr í sumar eftir að Jökull Elísabetarson var látinn fara frá félaginu. 

Nú styttist mjög í tvískiptingu deildarinnar og spennan eykst í baráttu neðstu liða þegar 20. umferðin verður spiluð. Eins og staðan er núna eru eftirtalin lið fyrir neðan strik: 7. Valur 23 stig, 8. Stjarnan 21 stig, 9. ÍBV 17 stig, 10. FH 17 stig, 11. KA 16 stig, 12. Þór 15 stig.

Marksæknir KR-ingar koma norður

KA á heimaleik og fær hina marksæknu KR-inga í heimsókn norður, en Vesturbæjarliðið hefur skorað 67 mörk í 19 leikjum það sem af er mótinu. KR er í 2. sæti deildarinnar með 40 stig og hafa aðeins dregið á topplið Víkings.

KA situr í 11. sæti deildarinnar með 16 stig, stigi meira og sæti ofar en grannarnir úr Þorpinu, en Akureyrarliðin eru bæði í fallsætum deildarinnar.

  • Besta deild karla í knattspyrnu, 20. umferð
    KA-völlur (Greifavöllurinn, sunnan við KA-heimilið) kl. 17
    KA - KR

Fyrri leikur KA og KR í þessum hluta deildarkeppninnar fór fram á Meistaravöllum, heimavelli KR, í lok maí og var sannkölluð markaveisla þar sem KR-ingar unnu, 5-3.

Aðrir leikir sem KA á eftir fyrir skiptingu deildarinnar: Fram (ú), Breiðablik (h)

Innanhússleikur í Garðabænum

Þór situr enn í botnsæti deildarinnar eftir tap í síðustu tveimur leikjum, er með 15 stig úr 19 leikjum. Þór sækir Stjörnuna heim í dag, en Garðbæingar eru ekki langt undan í töflunni. Að loknum 19 umferðum er Stjarnan í 8. sætinu með 21 stig. Leikstað hefur verið breytt og verður leikurinn spilaður innanhúss, í Miðgarði í Garðabæ. Ástæðan er að framkvæmdir við endurnýjun gervigrass á Stjörnuvellinum eru að hefjast.

  • Besta deild karla í knattspyrnu, 20. umferð
    Miðgarður í Garðabæ kl. 17
    Stjarnan - Þór

Fyrri leikur liðanna fór fram á Akureyri í lok maí og höfðu gestirnir úr Garðabænum betur, 3-1.

Aðrir leikir sem Þór á eftir fyrir skiptingu deildarinnar: ÍBV (ú), FH (h)

Hvað þýðir Já fyrir bændur?

Stefán Magnússon skrifar
21. ágúst 2026 | kl. 17:30

Viltu minni verðbólgu og lægri vexti?

Hjörtur J. Guðmundsson skrifar
21. ágúst 2026 | kl. 09:40

Hvað sparar Akureyrarbær með upptöku evru? Svar: um 400 mkr á ári

Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
16. ágúst 2026 | kl. 10:30

„Þúsund þorskar á færibandinu ...

Óli Rúnar Ástþórsson skrifar
13. ágúst 2026 | kl. 17:00

Stærð þjóðar

Pétur Björgvin Þorsteinsson skrifar
12. ágúst 2026 | kl. 06:00

Yrði Evrópusambandið bjargvættur eða bölvaldur landsbyggðanna?

Þóroddur Bjarnason skrifar
12. ágúst 2026 | kl. 06:00