Fara í efni
Umræðan

Markaregn en KA og Þór töpuðu bæði

Eiður Smári Guðjohnsen stýrði KA í fyrsta sinn í dag ásamt Hallgrími Jónassyni. Eiður Smári, sem stendur þarna og fylgist með sínum mönnum, bættist við þjálfarateymið í vikunni og er aðalþjálfari ásamt Hallgrími Jónassyni sem situr næst honum. Mynd: Ármann Hinrik

Akureyrarfélögin eru enn í tveimur neðstu sætum Bestu deildarinnar, efstu deildar Íslandsmótsins í knattspyrnu, þegar 20 leikjum er lokið af 22 í hefðbundnu deildarkeppninni. Síðan tekur við fimm leikja„ framlenging“ þar sem neðstu sex liðin berjast áfram um að halda sér í deildinni en tvö neðstu falla.

Mörkum rigndi í leikjum beggja liðanna í dag. KA tók á móti KR í glampandi sól þar sem gestirnir fögnuðu 5:3 sigri en Þór sótti Stjörnumenn heim í Garðabæ. Leikið var innandyra, í Miðgarði, og heimamenn unnu 4:2.

Stjarnan komst í 4:0 áður en Þórsarar löguðu stöðuna og á Greifavellinum var fjörið mikið, eins og jafnan þar sem KR-ingar eru staddir. KR var komið í 2:0 þegar 10 mínútur voru búnar en að næstu 10 liðnum hafði KA jafnað! Gestirnir bættu við síðan tveimur mörkum við fyrir hlé, staðan 4:2 í hálfleik, þeir gerðu fimmta markið snemma í seinni hálfleik en Kári Gautason minnkaði muninn fyrir KA með síðustu spyrnu leiksins. Það var fyrsta mark bakvarðarins knáa fyrir KA.

Staðan í deildinni

Meira síðar

Hvað þýðir Já fyrir bændur?

Stefán Magnússon skrifar
21. ágúst 2026 | kl. 17:30

Viltu minni verðbólgu og lægri vexti?

Hjörtur J. Guðmundsson skrifar
21. ágúst 2026 | kl. 09:40

Hvað sparar Akureyrarbær með upptöku evru? Svar: um 400 mkr á ári

Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
16. ágúst 2026 | kl. 10:30

„Þúsund þorskar á færibandinu ...

Óli Rúnar Ástþórsson skrifar
13. ágúst 2026 | kl. 17:00

Yrði Evrópusambandið bjargvættur eða bölvaldur landsbyggðanna?

Þóroddur Bjarnason skrifar
12. ágúst 2026 | kl. 06:00

Stærð þjóðar

Pétur Björgvin Þorsteinsson skrifar
12. ágúst 2026 | kl. 06:00