Fara í efni
Umræðan

Valsarar stálu öllum stigunum á Þórsvelli

Akureyringurinn Lillý Rut Hlynsdóttir, fyrirliði Vals og fyrrverandi leikmaður Þórs/KA, tryggði liði sinu þrjú gríðarlega dýrmæt stig með marki í blálokin. Hér berjast hún og Karen María Sigurgeirsdóttir um boltann í kvöld. Mynd: Ármann Hinrik

Það var komið fram á lokamínútu venjulegs leiktíma í viðureign Þórs/KA gegn Val í efstu deild kvenna í knattspyrnu á Þórsvellinum í kvöld þegar eina mark leiksins leit dagsins ljós. Það gerði Lillý Rut Hlynsdóttir fyrir Val – og þar með fóru Valsarar suður yfir heiðar með öll stigin úr leik þar sem Þór/KA var lengst af mun betri aðilinn.

Markið frá Lillý Rut fyrirliða Vals, og fyrrverandi leikmanni Þórs/KA, kom eins og þruma úr heiðskíru lofti þegar allt stefndi í jafntefli – sem gestirnir hefðu án efa verið sáttari við en heimaliðið. Þór/KA byrjaði leikinn vel og hafði töluverða yfirburði í fyrri hálfleik en gekk illa að skapa sér færi. Varla nema tvisvar sem liðið var nálægt því að skapa hættu. Erin Flurey átti skot rétt framhjá úr vítateignum, eftir flott einstaklingsframtak, og ein af fyrirgjöfum Huldu Óskar Jónsdóttur hafnaði í þverslánni. Undir lok hálfleiksins kom eina færi Valsara þegar Sonja Björg Sigurðardóttir – einnig fyrrverandi leikmaður Þórs/KA – átti góðan skalla af markteig eftir fyrirgjöf en boltinn fór rétt framhjá fjærstönginni.

Hulda Ósk Jónsdóttir, til vinstri, var mjög spræk í kvöld – olli Völsurum miklum vandræðum á hægri kantinum, og Arna Sif Ásgrímsdóttir var sem klettur í vörninni að vanda. Á myndinni til hægri er hún ásamt Ísabellu Söru Tryggvadóttur. Myndir: Ármann Hinrik

Eitt færi er nóg til að skora

Gestirnir voru líflegri eftir hlé en Þór/KA réði samt ferðinni og fékk þau færi sem eitthvað kvað að. Margrét Árnadóttir skallaði yfir úr góðu færi af markteig strax í upphafi seinni hálfleiks og skömmu síðar setti Hildur Anna Birgisdóttir boltann yfir markið úr miðjum vítateignum eftir undirbúning frá Erin. Valskonur virtust aldrei líklegar til að skapa sér almennileg færi en það er gömul saga og ný að það þarf ekki nema eitt færi til að skora mark. Á 90. mínútu fékk Valur hornspyrnu, sem misheppnaðist og fór ekki langt. Boltinn barst til Margrétar Brynju Kristinsdóttur fyrir utan vítateig og hún lyfti knettinum í átt að markinu. Lillý Rut var á markteig og náði að stýra boltanum með höfðinu yfir Alessöndru Augur í markinu.

Uppbótartíminn dugði heimaliðinu ekki til að svara fyrir sig en fyrirliðinn Arna Sif Ásgrímsdóttir setti boltann yfir markið með síðustu spyrnu leiksins eftir horn. Sannarlega svekkjandi úrslit fyrir Þór/KA og þvert gegn gangi leiksins. Hins vegar er ekki nóg að spila vel úti á velli ef ekki tekst að skapa marktækifæri og Valsarar náðu að refsa fyrir það.

Erin Flurey skýtur boltanum naumlega framhjá fjærstöng Valsmarksins eftir flott einstaklingsframtak í fyrri hálfleik. Mynd: Ármann Hinrik

Úrslit umferðarinnar slæm fyrir Þór/KA

Úrslitin í þessum leik og öðrum leikjum í umferðinni voru Þór/KA talsvert í óhag í baráttunni um 6. og síðasta sætið í efri hluta úrslitakeppninnar og að slíta sig frá botnbaráttunni. Þróttur og Grindavík/Njarðvík unnu sína leiki og þar að auki unnu Víkingar sinn leik þannig að neðstu liðin, Valur og Víkingur, bættu stöðu sína talsvert.

Með tapinu færðist Þór/KA úr 6. sæti í það 7.  og er ennþá með 18 stig. Þróttarar eru í 6. sæti með 21 stig og Grindavík/Njarðvík er stigi þar á undan í 5. sæti.

Fyrir neðan Þór/KA eru núna Valur og Fram með 16 stig og Víkingur með 14 stig í 10. og neðsta sæti.

Leikskýrslan á vef KSÍ

Staðan í deildinni

Þór/KA: Alessandra Dorothy Augur – María Dögg Jóhannesdóttir (Lauren Adrienne Lapomarda 93.), Karen Hulda Hrafnsdóttir, Arna Sif Ásgrímsdóttir, Angela Mary Helgadóttir (Halla Bríet Kristjánsdóttir 93.) – Hulda Ósk Jónsdóttir (Birgitta Rún Finnbogadóttir 83.), Margrét Árnadóttir, Elizabeth Moore, Hildur Anna Birgisdóttir, Karen María Sigurgeirsdóttir (Amalía Árnadóttir 64.) – Erin Flurey.


Þór/KA á tvo leiki eftir þar til deildinni verður skipt í tvennt, báða á útivelli. Sex efstu halda áfram keppni um Íslandsmeistaratitilinn og þau fjögur neðri berjast áfram um að halda sér í deildinni. Tvö þau neðstu að lokinni þessari „framlengingu“ falla.

  • Laugardag 29. ágúst 14:00
    Þróttur - Þór/KA
  • Sunnudag 6. september 14:00
    FH - Þór/KA

Hvað þýðir Já fyrir bændur?

Stefán Magnússon skrifar
21. ágúst 2026 | kl. 17:30

Viltu minni verðbólgu og lægri vexti?

Hjörtur J. Guðmundsson skrifar
21. ágúst 2026 | kl. 09:40

Hvað sparar Akureyrarbær með upptöku evru? Svar: um 400 mkr á ári

Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
16. ágúst 2026 | kl. 10:30

„Þúsund þorskar á færibandinu ...

Óli Rúnar Ástþórsson skrifar
13. ágúst 2026 | kl. 17:00

Stærð þjóðar

Pétur Björgvin Þorsteinsson skrifar
12. ágúst 2026 | kl. 06:00

Yrði Evrópusambandið bjargvættur eða bölvaldur landsbyggðanna?

Þóroddur Bjarnason skrifar
12. ágúst 2026 | kl. 06:00