Já eða nei við ESG? „Já“, segja KA-menn!
Helstu tíðindi knattspyrnuvikunnar hérlendis komu úr herbúðum KA: Eiður Smári Guðjohnsen bættist við þjálfarateymi meistaraflokks félagsins, síðar var upplýst að hann yrði aðalþjálfari við hlið Hallgríms Jónassonar út keppnistímabilið og svo yrði staðan tekin í haust, eins og Sævar Pétursson framkvæmdastjóri KA orðaði það í viðtali við fótbolta.net á fimmtudaginn. Eiður mætti á fyrstu æfinguna í gær og þeir Hallgrímur stjórnuðu aftur æfingu saman í morgun.
KA-menn, sem fá KR-inga í heimsókn á morgun, eru í 11. og næst neðsta sæti Bestu deildar Íslandsmótsins þegar þrír leikir eru eftir af hefðbundinni deildarkeppni og fimm að auki eftir að deildinni verður skipt í tvennt.
Stuðningsmenn KA gagnrýndu frammistöðu liðsins töluvert á samfélagsmiðlum á dögunum en ráðning Eiðs Smára hefur fallið í góðan jarðveg; KA-fólk lýsir mikilli ánægju með komu hans. Enginn veit hvort meirihluti stuðningsmanna KA eða annarra landsmanna muni krossa við Já eða Nei í kjörklefanum um næstu helgi í þjóðaratkvæðagreiðslu um það hvort Ísland eigi að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið, ESB, en hefðu stuðningsmenn KA verið spurðir hvort þeir vildu ESG í þjálfarateymi félagsins hefði Já verið afgerandi svar miðað við það sem heyrst hefur og sést.
Eiður Smári er einn allra besti knattspyrnumaður Íslandssögunnar, Englands-, Spánar- og Evrópumeistari, og landsliðsfyrirliði um árabil. Hann býr því að gríðarlegri reynslu sem leikmaður og starfaði við þjálfun eftir að skórnir fóru á hilluna en hefur ekki þjálfað síðan 2022 þegar hann var við stjórnvölinn hjá FH. Þá vakti hann mikla athygli sem sérfræðingur á RÚV meðan heimsmeistarakeppnin stóð yfir í sumar. Spennandi verður að sjá hvort einhver fingraför Eiðs Smára sjást á KA-liðinu strax á morgun.

Eiður Smári Guðjohnsen og Hallgrímur Jónasson fylgjast með lærisveinum sínum á æfingu í morgun. Mynd: Skapti Hallgrímsson
Viltu minni verðbólgu og lægri vexti?
Hvað sparar Akureyrarbær með upptöku evru? Svar: um 400 mkr á ári
„Þúsund þorskar á færibandinu ...
Stærð þjóðar