Fara í efni
Umræðan

VMA leigir húsnæði í Rósenborg á haustönn

Ásta Flosadóttir aðstoðarskólameistari VMA, Benedikt Barðason skólameistari VMA, Kristín Jóhannesdóttir, sviðsstjóri fræðslu- og lýðheilsusviðs Akureyrarbæjar, og Ída Jensdóttir, forstöðumaður skrifstofu fræðslu- og lýðheilsusviðs Akureyrarbæjar. Mynd af vef VMA.

Verkmenntaskólinn (VMA) hefur tekið hluta jarðhæðar Rósenborgar (gamla skólahús Barnaskóla Akureyrar) á leigu fram að áramótum. Þar verður kennsla fyrir nemendur á sérnámsbraut skólans.

Ítrekað hefur verið fjallað um mikinn húsnæðisvanda sem VMA býr við; skólinn er þétt setinn og því þarf að kenna nokkra áfanga í þröngum og ófullnægjandi rýmum. Á vef skólans er rifjað upp að fyrir rúmum tveimur árum var undirritaður í VMA samningur sveitarfélaganna í Eyjafirði um viðbyggingu við skólann sem kveður á um að þau fjármagni 40% byggingarkostnaðar á móti 60% frá ríkinu og að VMA er einn þeirra verknámsskóla „sem ríkið hefur gefið vilyrði um úrbætur í húsnæðismálum en ekkert liggur fyrir um hvenær byggingarframkvæmdir gætu hafist.“

Í ljósi þess að sjaldan eða aldrei hefur hópur nýnema við skólann verið jafn stór eða um 270 nemendur hefur reynst mikil áskorun að koma öllum fyrir í skólanum og því var leitað til Akureyrarbæjar um möguleika á leigu á húsnæði í Rósenborg. Frá leigusamningi var gengið sl. föstudag í Rósenborg – sjá myndir hér – og kveður hann á um leigu á rýmum á jarðhæð Rósenborgar fram að áramótum. „Þessi er vænst að eilítið muni rýmkast til í VMA í byrjun vorannar eftir brautskráningu í desember,“ segir á vef skólans.

VMA hefur nú þegar tekið umrætt rými í Rósenborg í notkun og verður þar kennsla fyrir hádegi á föstudögum fyrir nemendur á 2., 3. og 4. ári sérnámsbrautar skólans.

Indverskur matur og kvíðaspurningin

Inga Dagný Eydal skrifar
10. október 2026 | kl. 06:00

Réttlát kjördæmaskipan og ofríki stærðfræðinganna

Þóroddur Bjarnason skrifar
07. október 2026 | kl. 15:00

Mikilvægi endurhæfingar í hvetjandi og náttúrulegu umhverfi

Jón Hlöðver Áskelsson skrifar
06. október 2026 | kl. 13:00

Uppbyggingarsjóður: Oft fyrsta já-ið sem kemur góðum hugmyndum af stað

Díana Jóhannsdóttir og Örlygur Hnefill Örlyggson skrifa
05. október 2026 | kl. 15:00

Fróðlegir fundir í kjördæminu

Sigurjón Þórðarson skrifar
05. október 2026 | kl. 07:15

Öflugt atvinnulíf þarf gott aðgengi að lóðum

Sunna Hlín Jóhannesdóttir skrifar
30. september 2026 | kl. 20:15