Fara í efni
Umræðan

Nemendur úr VMA meðal norrænna frumkvöðla

Íslensku þátttakendurnir á Arctic Youth Championship í Tromsö í Noregi. Mynd: vma.is.

Nemendur af viðskipta- og hagfræðibraut Verkmenntaskólans á Akureyri (VMA) stóðu sig afar vel á alþjóðlega frumkvöðlamótinu Arctic Youth Championship sem fram fór í Tromsø í Noregi dagana 18. til 20. maí. Þátttakan kom í kjölfar vörumessu ungra frumkvöðla sem haldin var í apríl, þar sem nemendur VMA kynntu þrjú fyrirtæki. Í framhaldinu fengu þau boð um að taka þátt í mótinu, sem er haldið á vegum Ungt Entreprenørskap Arktis og JA Ungra frumkvöðla. Þar komu saman nemendur frá Íslandi, Noregi, Svíþjóð og Finnlandi til að kynna hugmyndir sínar, taka þátt í dómaraviðtölum, sviðskynningum og samstarfsverkefnum.

Í frétt á vefsíðu VMA kemur fram að skólinn sendi tvö fyrirtæki til leiks, VEX og Holy Shrimp, sem bæði vöktu athygli fyrir hugmyndir sínar og framsetningu. Fyrirtækið VEX náði sérstaklega góðum árangri og hlaut þriðja sæti í samfélagsfrumkvöðlaverðlaunum mótsins fyrir verkefni sitt sem snýr að geðheilsu og stuðningi við ungt fólk. Verkefnið vakti mikla athygli fyrir samfélagslega nálgun, nýsköpun og metnað.

Holy Shrimp kynnti hins vegar hugmynd sína um frostþurrkaðar íslenskar rækjur sem próteinríkt og hollt snakk úr íslensku hráefni. Verkefnið vakti einnig athygli þátttakenda og dómara þar sem áhersla er lögð á nýsköpun, sjálfbærni og aukna verðmætasköpun úr íslensku sjávarfangi. 

Þá hlaut Orri Sær Ottósson sérstaka viðurkenningu sem hluti af alþjóðlegu teymi sem var valið besti samstarfshópur mótsins. Viðurkenningin var veitt fyrir framúrskarandi samvinnu og þátttöku í alþjóðlegu hópverkefni mótsins. 

Að sögn Írisar Ragnarsdóttur, kennara og fagstjóra viðskipta- og hagfræðibrautar VMA, eru verkefni sem þessi afar mikilvæg fyrir nemendur. Þar fá þeir tækifæri til að æfa sig í framkomu, kynna hugmyndir sínar á erlendu tungumáli, vinna með fólki frá öðrum löndum og byggja upp tengslanet sem getur nýst þeim síðar. Íris hefur kennt frumkvöðlafræðiáfangann í VMA í vetur og fór með nemendunum til Tromsø. Í fréttinni á vef VMA segir Íris að nemendurnir hafi lagt gríðarlega mikla vinnu í verkefnin sín og staðið sig ótrúlega vel. „Það hefur verið virkilega gaman að fylgjast með þeim vaxa í þessu ferli og þeir voru skólanum og landinu til mikils sóma í Tromsø. Það má með sanni segja að framtíðin sé björt hjá þessum öflugu VMA-frumkvöðlum,“ segir Íris Ragnarsdóttir í fréttinni.

Indverskur matur og kvíðaspurningin

Inga Dagný Eydal skrifar
10. október 2026 | kl. 06:00

Réttlát kjördæmaskipan og ofríki stærðfræðinganna

Þóroddur Bjarnason skrifar
07. október 2026 | kl. 15:00

Mikilvægi endurhæfingar í hvetjandi og náttúrulegu umhverfi

Jón Hlöðver Áskelsson skrifar
06. október 2026 | kl. 13:00

Uppbyggingarsjóður: Oft fyrsta já-ið sem kemur góðum hugmyndum af stað

Díana Jóhannsdóttir og Örlygur Hnefill Örlyggson skrifa
05. október 2026 | kl. 15:00

Fróðlegir fundir í kjördæminu

Sigurjón Þórðarson skrifar
05. október 2026 | kl. 07:15

Öflugt atvinnulíf þarf gott aðgengi að lóðum

Sunna Hlín Jóhannesdóttir skrifar
30. september 2026 | kl. 20:15