Fara í efni
Umræðan

Hreiðar hlýtur Grænu kennsluverðlaunin

Hreiðar Þór Valtýsson, dósent við auðlindadeild HA, með viðurkenninguna. Mynd: unak.is.

Háskólinn á Akureyri (HA) hefur veitt árlega viðurkenningu sína fyrir kennslu sem leggur áherslu á sjálfbærni og umhverfismeðvitund, Grænu kennsluverðlaunin. Að þessu sinni hlaut Hreiðar Þór Valtýsson, dósent við auðlindadeild skólans, viðurkenninguna fyrir námskeiðið Sjávarlíffræði.

Í frétt á vefsíðu HA kemur fram að þetta sé í fimmta sinn sem Umhverfisráð Háskólans á Akureyri veitir viðurkenninguna, en markmið hennar er að vekja athygli á kennslu sem stuðlar að aukinni sjálfbærni og umhverfisvitund meðal nemenda.

Námskeið Hreiðars fjallar um vistkerfi hafsins, líffræðilegan fjölbreytileika og sjálfbæra nýtingu sjávarauðlinda. Frá upphafi hefur sjálfbærni verið ein af meginstoðum námsins og meðal annars er fjallað um áskoranir á borð við hlýnun sjávar og mengun af völdum örplasts. Jafnframt er leitast við að efla skilning nemenda á því hvernig eigin ákvarðanir og athafnir geta haft áhrif á umhverfið.

Hreiðar segir viðurkenninguna bæði mikinn heiður og hvatningu til áframhaldandi starfs. „Það er mikilvægt fyrir mig að fá þessi verðlaun og hvetur mig áfram í starfi. Ég tel afar mikilvægt að sem flestir Íslendingar, auðvitað sérstaklega þeir sem starfa í sjávarútvegi, skilji náttúruna sem er að gefa okkur þessa mikilvægu auðlind. Skilningurinn gerir okkur kleift að ganga um hana af virðingu,“ segir Hreiðar í fréttinni á vef HA.

Verkleg kennsla skipar stóran sess í námskeiðinu. Nemendur fara meðal annars í sjóferðir þar sem þeir safna sýnum af sjávarlífverum sem síðan eru rannsökuð á rannsóknarstofu. Einnig fá þeir að kynnast lífríki hafsins með neðansjávardróna, sem gerir þeim kleift að tengja fræðilega þekkingu við raunverulegar aðstæður í hafinu.

Hreiðar Þór starfaði áður sem útibússtjóri Hafrannsóknastofnunar á Akureyri áður en hann hóf störf við HA. Rannsóknir hans beinast meðal annars að vistkerfum hafsins og sjálfbærri nýtingu sjávarauðlinda á norðurslóðum og hann hefur jafnframt komið að fjölmörgum fræðsluverkefnum um sjálfbærar fiskveiðar.

Öflugt atvinnulíf þarf gott aðgengi að lóðum

Sunna Hlín Jóhannesdóttir skrifar
30. september 2026 | kl. 20:15

Beinum kastljósinu að atvinnulífinu

Karl Eskil Pálsson skrifar
29. september 2026 | kl. 20:15

Bókasöfnin okkar

Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar
28. september 2026 | kl. 06:00

Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein

Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar
27. september 2026 | kl. 06:00

Meistaravík, Akureyri og nýtt öryggishlutverk á norðurslóðum

Njáll Trausti Friðbertsson skrifar
23. september 2026 | kl. 20:00

Hvað ef það væri samfélagsgarður við Mýrarveg?

Eyrún Gígja Káradóttir skrifar
22. september 2026 | kl. 19:00