Fyrstu skóflustungur nýrra stúdentagarða
Fyrstu skóflustungurnar að nýjum stúdentagörðum Félagsstofnunar stúdenta við Háskólann á Akureyri (FÉSTA) voru teknar síðdegis í dag. Stúdentagarðarnir munu rísa við Norðurslóð 3, 5 og 7, en liggja meðfram Dalsbrautinni, frá Borgarbraut upp að Norðurslóð. Þar munu verða 62 litlar íbúðir og 64 einstaklingsherbergi í þremur húsum. Miðað er við að fyrsti áfanginn, Þingvellir, þar sem verða 64 einstaklingsherbergi, verði tilbúinn í júlí 2028 þannig að stúdentar geti flutt inn þá um haustið, en verkinu í heild á að ljúka 2029.

Að skóflustungum teknum. Stór stund í sögu Háskólans á Akureyri og Félagsstofnunar stúdenta. Mynd: Haraldur Ingólfsson.
Fulltrúar FÉSTA, Háskólans á Akureyri, Akueyrarbæjar, Háskóla Íslands, arkitektanna, verktaka, stúdenta, fjölmiðla og fleiri komu saman á hól við Norðurslóð síðdegis í dag þar sem teknar voru fyrstu skóflustungurnar að þremur nýjum og glæsilegum byggingum undir stúdentaíbúðir sem rísa munu á næstu árum. Þau sem munduðu skóflurnar voru Áslaug Ásgeirsdóttir, rektor Háskólans á Akureyri, Berglind Ósk Guðmundsdóttir, bæjarstjóri á Akureyri, Aðalbjörn Jóhannsson, forseti Stútendafélags HA og stjórnarmaður í FÉSTA, og Böðvar Ingi Guðjónsson, nýnemi í sálfræði.
Full þörf á viðbótarhúsnæði
Jóhannes Baldur Guðmundsson, framkvæmdastjóri FÉSTA, sagði þetta stóran dag fyrir samfélagið, háskólasamfélagið, Akureyrarbæ og stúdenta fyrst og fremst. Um fjögur ár eru síðan gerð var könnun meðal framhaldsskólanema á Akureyri og víðar til að greina þörfina og í framhaldi af því hófst undirbúningur að þessum framkvæmdum. Full þörf er á þessum byggingum að sögn Jóhannesar og Höllu Margrétar Tryggvadóttur, stjórnarformanns FÉSTA, þar sem allt það húsnæði sem í boði er fyrir stúdenta hefur verið fullnýtt mörg undanfarin ár.
Nú þegar hefur verið tekin ákvörðun um sölu á tveimur af þeim eignum sem FÉSTA á og nýtir í dag undir stúdentaíbúðir, annarri blokkinni í Kjalarsíðu 1 og húsinu Útsteini í Skarðshlíð 46. Verkefni stjórnar á næstu misserum er að vinna að sölu á þessum eignum. Salan á þessum tveimur eignum verður þegar upp er staðið hluti af fjármögnun nýbygginganna, en framkvæmdirnar eru þó nú þegar fjármagnaðar 100% í gegnum Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
Kostar um 4,5 milljarða króna
Arkitektastofan Nordic Office of Architecture sigraði í samkeppni um hönnun stúdentagarðanna. Kostnaðaráætlun við byggingu þeirra var rúmir 4,7 milljarðar króna. Lægsta tilboð í verkið átti K16 ehf., upp á rétt tæpa 4,5 milljarða króna, eða 94,8% af kostnaðaráætlun. Akureyri.net hefur áður fjallað um hönnun og útlit bygginganna sem munu rísa - sjá hér.

Hér sést yfir það svæði þar sem þrjár nýbyggingar FÉSTA munu rísa á næstu þremur árum, séð úr Klettaborginni. Mynd: Haraldur Ingólfsson.
Byggingaframkvæmdum á að vera lokið sumarið 2029, eins og áður segir. Alls er um 6.700 fermetra að ræða. Í byggingunum verða 62 litlar íbúðir og 64 einstaklingsherbergi, ásamt stoðrýmum og aðstöðu starfsfólks. Byggingarnar nefnast Þingvellir, Sólvellir og Akurvellir. Þingvellir er byggingin í miðjunni, sjá myndir neðst í fréttinni, en þar verða eingöngu einstaklingsherbergi ásamt sameiginlegum rýmum og aðstöðu.
Helstu undirverktakar K16 við verkið verða Rafmenn, Blikkrás, Norðurlagnir og GV gröfur.
Vel á annað hundrað íbúðareiningar
FÉSTA rekur fyrir nokkuð á annað hundrað stúdentaíbúða og herbergja á nokkrum mismunandi stöðum í bænum; í Drekagili, Kjalarsíðu, Klettastíg, Skarðshlíð og Tröllagili.
- Kjalarsíða 1A - 20 íbúðir
- Kjalarsíða 1B - 20 íbúiðir
- Klettastígur 2 og 4 - 19 íbúðir
- Klettastígur 6 - þrjár íbúðir, hver með fjórum einstaklingsherbergjum
- Skarðshlíð 46 - sex íbúðir og 22 einstaklingsherbergi
- Drekagil 21 - 29 íbúðir
- Tröllagil 29 - 35 íbúðir
Myndir úr verðlaunatillögunni að hönnun stúdentagarðanna:


Birta og Salka – fyrir okkur öll
Fögnum saman á Akureyrarvöku!
Óskhyggjan og veruleikinn
Virðir Alþingi úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst?