Með stunguskóflu í hönd og tárin í augunum
Nýir stúdentagarðar Félagsstofnunar stúdenta við Háskólann á Akureyri (FÉSTA), sem rísa munu við Norðurslóð, steinsnar frá háskólanum, verða mikil og jákvæð breyting fyrir stúdenta. Sumt af því húsnæði sem nú er í notkun er úr takt við tímann og svarar ekki endilega breyttum áherslum og kröfum sem gerðar eru í dag.
Bæjarstjórinn bjó á stúdentagörðum
Jóhannes Baldur Guðmundsson, framkvæmdastjóri FÉSTA, og Áslaug Ásgeirsdóttir, rektor Háskólans á Akureyri, fluttu stutta tölu fyrir athöfnina við Norðurslóð þegar fyrstu skóflustungurnar voru teknar í síðustu viku og lýstu bæði yfir mikilli ánægju með að nú væri komið að framkvæmdum við stúdentagarðana.

Áslaug Ásgeirsdóttir, rektor Háskólans á Akureyri, Berglind Ósk Guðmundsdóttir bæjarstjóri og Jóhannes Baldur Guðmundsson, framkvæmdastjóri FÉSTA. Myndir: Haraldur Ingólfsson.
Berglind Ósk Guðmundsdóttir, bæjarstjóri á Akureyri, ávarpaði einnig hópinn, en hún tengist verkefninu persónulega sem fyrrverandi nemandi við HA og stjórnarkona í FÉSTA. Hún var ein þeirra fjögurra sem munduðu stunguskóflurnar síðastliðinn miðvikudag.
„Ég er eiginlega með tárin í augunum,“ sagði Berglind Ósk fyrir athöfnina. „Ég flutti hingað til að fara í Háskólann á Akureyri, bjó á stúdentagörðum og var í stjórn FÉSTA í fjögur ár. Ég er svo ótrúlega heppin að fá að vera bæjarstjóri akkúrat núna þegar verið er að taka skóflustunguna að þessu verkefni sem hefur verið rætt síðan við fluttum hingað. Þetta er gríðarlega ánægjulegur dagur og ég er ofboðslega stolt af því að þetta verkefni sé komið á þann stað sem það er komið á í dag.“
Brugðist við breyttum tímum
Með nýjum stúdentagörðum er ekki aðeins brugðist við umframspurn eftir húsnæði fyrir stúdenta heldur er einnig verið að svara breyttum kröfum um tegund og stærð þess húsnæðis sem í boði er. Framboð á minni íbúðum verður stóraukið frá því sem nú er.
Nýju stúdentagarðarnir verða í þremur aðskildum byggingum sem hlotið hafa nöfnin Sólvellir, Þingvellir og Akurvellir. Í tveimur þeirra verða samtals 60 íbúðir, þar af 40 tveggja herbergja og 20 stúdíóíbúðir. Í einni byggingunni, Þingvöllum, verða 64 einstaklingsherbergi með sér baðherbergi, en öðrum sameiginlegum rýmum. Sú bygging er í miðjunni og verður sá hluti nýrra stúdentagarða sem fyrst verður tilbúinn, í júlí 2028, og tekinn í notkun fyrir skólaárið 2028-2029.
- FÉSTA rekur 164 búsetueiningar, þar af eru 74 þriggja herbergja íbúðir en önnur leigurými eru tveggja herbergja íbúðir, stúdíóíbúðir og einstaklingsherbergi
- Nú búa 285 manns í leigurýmum FÉSTA
- Allt húsnæði er í útleigu og stúdentar á biðlista
- Aldur húsnæðis:
- Útsteinn í Skarðshlíð 46 – tekið í notkun 1989
- Klettastígur 2, 4 og 6 – tekið í notkun 1992 og 1993
- Drekagil 21 – tekið í notkun 2000
- Tröllagil 29 – tekið í notkun 2004
- Kjalarsíða 1A og 1B – tekið í notkun 2008 - Leikskólinn Tröllaborgir er rekinn á tveimur neðstu hæðum byggingarinnar í Tröllagili 29. Akureyrarbær leigir húsnæðið og allan búnað af FÉSTA
Tvær byggingar til sölu


Byggingarsvæðið séð úr Klettaborginni, yfir Dalsbrautina. Borgir til vinstri og fjær sés aðens í húsnæði Háskólans. Tölvugerðamyndin hér að neðan sýnir húsin frá nokkurn veginn sama sjónarhorni og efri myndin. Mynd: Haraldur Ingólfsson.

Engin generalprufa fyrir skóflustungurnar!
Skóflustunguathöfnin hafði greinilega ekki verið æfð sérstaklega og eins og sjá má á skemmtilegum myndum hér að neðan skorti nokkuð á samhæfingu fjórmenninganna sem munduðu stunguskóflurnar.
- Sú fyrsta gæti heitið Hvað ungur nemur, gamall temur – stúdentarnir fylgjast með handtökum bæjarstjórans og rektorsins, án þess að hér sé fullyrt að þær Berglind Ósk og Áslaug séu gamlar.
- Forsetinn (SHA) búinn að ná þessu á annarri mynd, en nýneminn aðeins á eftir.
- Einhverjir á meðal viðstaddra gerðu tilraun til að telja í, en enn náðist ekki alveg fullkominn taktur, aftursveiflan hjá bæjarstjóranum tók tíma og rektorinn kastaði sínum hnaus á undan.
- Á fjórðu myndinni er hnaus rektorsins lentur, sálfræðineminn veltir fyrir sér tilveru og sálarháska síns hnauss og hnaus bæjarstjórans næstum orðinn eins og höfuð á forseta stúdentafélagsins.




Myndir: Haraldur Ingólfsson.
Hönd í hönd niður um deild?
Stjórnmálin verða að svara þeim sem minnst hafa
Birta og Salka – fyrir okkur öll
Fögnum saman á Akureyrarvöku!