Fara í efni
Umræðan

Velferðarmálin á Akureyri – Setjum börnin í forgang

Velferðarmálin eru mjög stór og mikilvægur þáttur í rekstri Akureyrarbæjar og því mikilvægt að vel sé staðið að öllu, bæði rekstrarlega og faglega. Mikilvægt er því að rýna stöðugt reksturinn og tryggja eins vel og unnt er að vel sé farið með fé svo unnt sé að veita öllum sem á þurfa að halda góða þjónustu og jafnframt að fjárhagslegur stuðningur renni til þeirra sem mest þurfa á honum að halda.

Rekstur Velferðarsviðs

Á Velsverðarsviði Akureyrarbæjar voru 384 stöðugildi í árslok 2025.

Sviðið velti á árinu rúmlega 6,2 milljörðum, þar af 1,8 í félagsþjónustu og 4,4 í málaflokki fatlaðra.

Rekstur sviðsins var 121,4 milljónum undir rekstraráætlun ársins 2025. Velferðarsviðið er vel rekið og þar er mikil fagþekking og öflugt starfsfólk. Við getum og eigum að vera stolt af því sem vel er gert og horfa fram á veginn og sjá um leið hvar kreppir að og hvar við getum gert enn betur. Sjálfur er ég þakklátur fyrir að hafa fengið tækifærið til að vera þátttakandi í þessu mikilvæga starfi sem fulltrúi í Velferðarráði á kjörtímabilinu sem er að líða.

Margt hefur áunnist

Mjög margt gott hefur náðst fram á kjörtímabilinu sem er að líða og langar mig þar fyrst að nefna innleiðingu á samþættingu þjónustu er lítur að farsæld barna og eins opnun á fjölskylduheimili í samvinnu við barna- og menntamálaráðuneytið. Þá var afar farsælt skref stigið með byggingu þjónustukjarna fyrir fatlaða einstaklinga við Hafnarstræti.

Tekist hefur á kjörtímabilinu að stytta biðlista bæði eftir sérhæfðu húsnæði og húsnæði í félagslega kerfinu. Áform eru einnig um frekari uppbyggingu.

En hvar kreppir að og hvað þurfum við að setja í forgang:

  • Við þurfum að setja börnin og ungmenni í algjöran forgang.
  • Bregðast verður við vaxandi fíknivanda.
  • Rýna þarf eignasafn félagslega húsnæðiskerfisins þar sem tilfinnanlega vantar fleiri minni íbúðir á sama tíma og hluti stærri íbúðir eru að nýtast illa.
  • Halda ótrauð áfram í uppbygging á sérhæfðu húsnæði fyrir fatlaða einstaklinga.
  • Fara enn betur með skattpeningana og gera meira fyrir þá sem þess þurfa mest.

Við þurfum að setja börnin og ungmenni í algjöran forgang

Þó svo innleiðingu samþættrar þjónustu í þágu farsældar barna sé formlega lokið er afar mikilvægt að fylgja því starfi eftir af festu. Akureyrarbær hefur gengt forystuhlutverki í þessari vinnu og í samvinnu við sveitarfélögin innan SSNE hefur bærinn hlotið 70 milljóna styrkur frá ríkinu til tveggja ára til að fylgja þessari vinnu eftir. Markmiðið er að styrkja farsæld og snemmtækan stuðning við börn og fjölskyldur þeirra. Þá spila forvarnir áfram lykilhlutverk í að tryggja vellíðan og farsæld barna ásamt því að stutt sé við þátttöku barna og ungmenna í íþróttum og hreyfingu.

Baráttan við vaxandi fíkniefnavanda

Að mínu mati er þetta mesta ógnin sem við eigum við að glíma sem samfélag í dag. Fíkniefnasala með skipulögðum hætti er staðreynd í okkar annars örugga og friðsæla bæjarfélagi og sífellt fleiri og yngri einstaklingar verða þessum vágesti að bráð. En hvað er til ráða? Sumir segja að baráttan sé töpuð, en við sem samfélag getum ekki litið undan og gefist upp. Það er bara einfaldlega ekki í boði.

Vandinn er vaxandi þrátt fyrir allt það góða starf sem hefur verið unnið í forvörnum á liðnum árum og baráttu lögreglu við að hefta innflutning og sölu fíkniefna. Ofbeldi gegn börnum er einnig vaxandi vágestur og því miður tengist þetta tvennt einnig oft.

Forvarnir á fyrri stigum og sá metnaður sem lagður er nú í innleiðingu á farsæld barna er mjög mikilvægur og má þar engan afslátt gefa á vinnunni framundan. En við þurfum líka ákall og samstöðu allra aðila sem geta komið að því að tryggja börnunum okkar og fjölskyldum þeirra betri framtíð.

Það er heldur ekki bara samfélagið sem á að ala upp börnin okkar, það er okkar megin hlutverk sem foreldra. Við meigum því ekki að horfa framhjá þeim vanda sem steðjar að í samfélaginu. Við verðum að snúa vörn í sókn, sýna ábyrgð og taka þátt með virkum hætti. Sýna samfélaginu áhuga og leggja eitthvað sjálf að mörkum í þessari baráttu fyrir betra samfélagi. Við getum ekki ætlað skólunum og félagsþjónustunni að bjarga öllu.

Lokaorð

Það er margt annnað sem ég gæti sett á blað um velferðarmálin og sem betur fer langflest af því mjög jákvætt því starfið sem unnið er á Velferðarsviðinu er faglegt, metnaðarfullt og um margt til fyrirmyndar í samanburði við önnur sveitarfélög.

Í Velferðarráði hefur vinnan verið málefnaleg og mikil samstaða ríkt þvert á pólitíska flokka á kjörtímabilinu. Langar mig því að þakka samnefndarfólki mínu kærlega fyrir gott og færsælt tímabil í Velferðarráði sem og starfsfólki Velferðarsviðs sem á mikinn heiður skilinn fyrir sína vinnu.

Höldum ótrauð áfram og gerum „gott ennþá betra“.

Hólmgeir Karlsson á sæti í Velferðarráði Akureyrarbæjar og skipar 7. sæti á lista Miðflokksins í komandi sveitarstjórnarkosningunum.

Samgöngur eiga að styðja við vöxt – ekki hamla honum

Arna Rut Gunnarsdóttir og Þórhallur Harðarson skrifa
27. apríl 2026 | kl. 10:50

Treystum kennurum

Stefán Oddur Hrafnsson skrifar
27. apríl 2026 | kl. 10:45

Í skólanum er skemmtilegt að vera – eða hvað?

Hanna Dóra Markúsdóttir skrifar
27. apríl 2026 | kl. 10:40

Gerum það sem virkar gegn ofbeldi

Elvar Fossdal skrifar
27. apríl 2026 | kl. 10:35

Spurt er: Er hægt að gera meira fyrir atvinnulífið?

Gunnar Már Gunnarsson skrifar
27. apríl 2026 | kl. 06:00

Hlíðarfjall verði hjarta vetraríþrótta á Íslandi

Óðinn Svan Óðinsson, Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir og Preben Jón Pétursson skrifa
26. apríl 2026 | kl. 14:45