Fara í efni
Umræðan

„Þorpararnir sem umkringdu Ráðhúsið“

Sögur úr raunveruleikanum eru afar athyglisverðir þættir á dagskrá Rásar 2 Ríkisútvarpsins um þessar mundir. Ástæða er til að vekja sérstaka athygli á nýlegum þætti sem Helgi Seljan gerði og kallar „Þorpararnir sem umkringdu Ráðhúsið“ – þar fjallar hann um sögu L-listans sem Oddur Helgi Halldórsson stofnaði fyrir bæjarstjórnarkosningarnar 1998.

Þátturinn er bæði fróðlegur og skemmtilegur. Helgi segist í kynningu fjalla um mann „sem þótti ekki nógu fínn fyrir Framsóknarflokkinn, en stofnaði í staðinn stjórnmálaflokk sem varð ekki bara ráðandi afl í bænum heldur er hann nú þriðja elsta stjórnmálaafl á Íslandi og hefur í bráðum tvo áratugi verið í meirihluta.“

Ítarlega er rætt við Odd Helga en fleiri koma vitaskuld við sögu. L-listinn náði þeim einstaka árangri að fá sex menn kjörna í bæjarstjórn í kosningunum 2010 – fékk hreinan meirihluta í 11 manna bæjarstjórn, sem ekkert stjórnmálaafl hafði afrekað fram að því og mun varla gera í framtíðinni. L-listinn hefur verið í meirihluta í bæjarstjórn síðustu 16 ár; fyrst einn frá 2010 til 2014 sem fyrr segir en síðan í samstarfi við ýmsa flokka. Eftir kosningarnar í vor myndaði L-listinn meirihluta með Framsókn og Sjálfstæðisflokki.
 
  • Smellið hér til að hlusta á þáttinn:

„Þorpararnir sem umkringdu Ráðhúsið“

Bókasöfnin okkar

Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar
28. september 2026 | kl. 06:00

Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein

Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar
27. september 2026 | kl. 06:00

Meistaravík, Akureyri og nýtt öryggishlutverk á norðurslóðum

Njáll Trausti Friðbertsson skrifar
23. september 2026 | kl. 20:00

Hvað ef það væri samfélagsgarður við Mýrarveg?

Eyrún Gígja Káradóttir skrifar
22. september 2026 | kl. 19:00

Ónýtt drasl-fólkið

Helgi Þórsson skrifar
15. september 2026 | kl. 20:00

Björgunarþyrla á Akureyri – staða máls

Njáll Trausti Friðbertsson skrifar
13. september 2026 | kl. 19:30