Fara í efni
Umræðan

Fyrsti fundur nýrrar bæjarstjórnar í dag

Mynd: akureyri.is

Bæjarstjórn Akureyrar kemur í dag saman til síns fyrsta fundar að afloknum sveitarstjórnarkosningunum í maí. Meginefni fundarins snýst um að kjósa í nefndir og ráð og tilnefna fulltrúa í hinar ýmsu stjórnir, auk þess að fara yfir siðareglur og samskiptasáttmála kjörinna fulltrúa Akureyrarbæjar.

Framsóknarflokkur, L-listinn og Sjálfstæðisflokkur mynduðu nýjan meirihluta í bæjarstjórninni á mettíma að kosningum afloknum og skipting helstu valdastóla hefur þegar verið kunngjörð. Berglind Ósk Guðmundsdóttir frá Sjálfstæðisflokki er bæjarstjóri, Gunnar Már Gunnarsson frá Framsóknarflokki verður forseti bæjarstjórnar og Óðinn Svan Óðinsson frá L-lista verður forseti bæjarráðs. Einnig hefur verið gengið frá formennsku í öðrum helstu nefndum og ráðum, eins og akureyri.net hefur greint frá.

Fundur bæjarstjórnar hefst kl. 16 í dag í fundarsal á 1. hæð ráðhússins við Geislagötu og er öllum opinn. Dagskrá fundarins í heild má sjá hér og auk þess verður fundurinn tekinn upp og upptaka gerð aðgengileg að fundi loknum. Á þessari síðu má sjá upptökur af fundum bæjarstjórnar Akureyrar.

Sagan, umhverfið og sundlaugin á Kristnesi ómetanleg lífsgæði!

Jón Hlöðver Áskelsson skrifar
30. október 2026 | kl. 18:00

Játningar nýliða

Kristín Helga Schiöth skrifar
30. október 2026 | kl. 18:00

Erum við ráðalaus gegn einmanaleika?

Sóley Björk Stefánsdóttir skrifar
29. október 2026 | kl. 15:15

Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm

Björn Snæbjörnsson skrifar
27. október 2026 | kl. 10:00

Brú yfir byggðaföllin eða mjaltavél Icelandair?

Þóroddur Bjarnason skrifar
26. október 2026 | kl. 17:30

Loftbrúin má ekki missa flugið

Njáll Trausti Friðbertsson skrifar
23. október 2026 | kl. 17:15