Fara í efni
Umræðan

Helgi kjörinn formaður Skógræktarfélagsins

Helgi Þórsson er nýr formaður Skógræktarfélags Eyfirðinga.

Helgi Þórsson frá Kristnesi var kosinn formaður Skógræktarfélags Eyfirðinga á aðalfundi þess á dögunum. Fráfarandi formaður, Sigurður Hólm Sæmundsson, gaf ekki kost á sér fram.

Í stjórn eru sjö aðalmenn og þrír til vara. Hver stjórnarliði er kosinn til þriggja ára í senn og hver varastjórnarliði er kosinn til eins árs í senn. Hin nýja stjórn er þannig skipuð:

Formaður: Helgi Þórsson.

Varaformaður: Sigurður Hóm Sæmundsson.

Ritari: Helga Ösp Jónsdóttir

Gjaldkeri: Rebekka Kristín Garðarsdóttir.

Meðstjórnendur: Sigurður Arnarson, Gunnar Már Gunnarsson og Ásgeir Þór Ásgeirsson.

Varamenn: Tryggvi Marinósson, Alfa Dröfn Jóhannsdóttir og Ísak Már Jóhannesson.

„Um leið og við óskum þessu fróma fólki velfarnaðar í starfi viljum við þakka fráfarandi stjórn gott og óeigingjarnt starf í þágu skógræktar í Eyjafirði. Sérstakar þakkir fá Guðríður Gyða Eyjólfsdóttir, Óli Þór Jónsson og Pétur Halldórsson fyrir sinn hlut, en þau gengu úr stjórn. Öll munu þau þó halda áfram að sinna verkefnum fyrir félagið þegar á þarf að halda,“ segir í tilkynningu frá félaginu.

Játningar nýliða

Kristín Helga Schiöth skrifar
30. október 2026 | kl. 18:00

Sagan, umhverfið og sundlaugin á Kristnesi ómetanleg lífsgæði!

Jón Hlöðver Áskelsson skrifar
30. október 2026 | kl. 18:00

Erum við ráðalaus gegn einmanaleika?

Sóley Björk Stefánsdóttir skrifar
29. október 2026 | kl. 15:15

Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm

Björn Snæbjörnsson skrifar
27. október 2026 | kl. 10:00

Brú yfir byggðaföllin eða mjaltavél Icelandair?

Þóroddur Bjarnason skrifar
26. október 2026 | kl. 17:30

Loftbrúin má ekki missa flugið

Njáll Trausti Friðbertsson skrifar
23. október 2026 | kl. 17:15