Fara í efni
Umræðan

Sex hætta – tvö hafa kennt í VMA frá stofnun

Starfsmennirnir sex sem láta nú af störfum. Frá vinstri: Jóhann Björgvinsson, Erna H. Gunnarsdóttir, Hálfdán Örnólfsson, Ingimar Árnason, Þorsteinn Krüger og Jóhannes Áslaugsson. Mynd: Hilmar Friðjónsson.

Sex starfsmenn Verkmenntaskólans á Akureyri láta af störfum nú í vor, þar af tveir kennarar sem hafa starfað við skólann síðan hann var settur á stofn árið 1984 – í rúma fjóra áratugi.

Á síðasta starfsmannafundi skólaársins, síðastliðinn miðvikudag, var sexmenningunum sérstaklega þakkað fyrir farsæl störf sín við skólann og þeim færðar gjafir á þessum tímamótum, að því er segir á vef VMA í gær.

„Tveir af starfsmönnunum, Erna Hildur Gunnarsdóttir enskukennari og Hálfdán Örnólfsson, samfélagsgreina- hagfræði-, tölvugreina- og stærðfræðikennari, hafa starfað við skólann frá upphafi eða frá því að hann var settur á stofn árið 1984,“ segir á vef skólans.

„Hinir fjórir starfsmennirnir sem nú láta af störfum eru Ingimar Árnason kennari vélstjórnar- og raungreina, Jóhann Björgvinsson kennari vélstjórnargreina, Jóhannes Áslaugsson stuðningsfulltrúi og Þorsteinn Krüger samfélagsgreinakennari.“

Ekki nýr skóli – ungur skóli

Í gær voru 162 nemendur brautskráðir frá VMA við hátíðlega athöfn í Hofi. Nánar um það síðar, en Benedikt Barðarson skólameistari sagði í upphafi brautskráningarræðu sinnar að nú væru ákveðin þáttaskil í starfi skólans, og vísaði þá til starfsmannanna tveggja.

„Nú eru að láta af störfum síðustu starfsmennirnir sem hófu störf við stofnun VMA á því merka ári heimsbókmenntanna, 1984, en það eru þau Hálfdán og Erna. Því tilkynni ég, hér og nú, með þessum orðum að VMA hefur opinberlega slitið barnsskónum. Við erum ekki lengur nýr skóli – heldur ungur skóli,“ sagði Benedikt.

Svæðisborgin Akureyri

Sigurjón Þórðarson skrifar
13. júlí 2026 | kl. 06:00

Evrópusambandið, meira en tollabandalag

Steinar Harðarson skrifar
10. júlí 2026 | kl. 18:00

Við erum kölluð til kosninga

Gunnar Már Gunnarsson skrifar
09. júlí 2026 | kl. 15:00

Akureyri heilsar þér með bros á vör

Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar
02. júlí 2026 | kl. 21:00

Húsnæðiserfiðleikar ungs fólks innan ESB

Hjörtur J. Guðmundsson skrifar
02. júlí 2026 | kl. 20:45

Drífum í að stytta hringveginn

Jóhannes Gunnar Bjarnason skrifar
02. júlí 2026 | kl. 14:30