Fróðlegir fundir í kjördæminu
Vikan sem leið var svo kölluð kjördæmavika hjá þingmönnum sem nýtt er til ferða þeirra og funda í kjördæmum sínum. Þingmönnum í Norðausturkjördæmi var boðið að sækja um þrjátíu fundi með fulltrúum sveitarstjórna, stofnana og fyrirtækja á svæðinu.
Flokka má fjölbreytt skilaboð frá framangreindum aðilum í þrennt; þungur rekstur opinberra stofnanna, samgöngumál og byggðamál.
Þótt ríkisstjórnin sé að bæta verulegu fjármagni til heilbrigðisstofnana var okkur greint frá því að rekstur stofnana væri enn mjög þungur. Ástæðan væri að fjárframlög fylgdu hvorki nýlegum kjarasamningum né því launaskriði sem óneitanlega væri innbyggt í stofnanasmninga.
Skilaboðin frá stjórnendum voru skýr. Stjórnvöld þyrftu að efla og skjóta traustari stoðum undir samninganefndir ríkisins. Tryggja þannig að samningar settu fjárhag stofnana vítt og breitt um landið ekki á annan endann.
Stóraukin framlög til uppbyggingar vegakerfisins
Eðlilega kom fram mikil hvatning til að gera betur í samgöngumálum, enda tók ríkisstjórnin við mikilli innviðaskuld í vega- og samgöngumálum. Þegar núverandi ríkisstjórn tók við lágu um fjörutíu prósent af vegkerfinu undir skemmdum. Ríkisstjórnin hefur bætt verulegum fjármunum í viðhald vega og vetrarþjónustu. Nú er varið um fimm milljörðum króna meira í viðhald en fyrri áætlanir gerðu ráð fyrir og framlög til nýframkvæmda hafa sömuleiðis verið stóraukin.
Stjórnarliðar binda síðan miklar vonir við að nýtt innviðafélag geti leitt af sér enn hraðari uppbyggingu samgöngukerfisins. Ástand vegakerfisins er einn af þeim þáttum sem skerða samkeppnishæfni landsins. Þess vegna er mikill þjóðhagslegur ávinningur af því gera betur í samgöngumálum.
Margþætt byggðamál
Í kjördæmavikunni var umræðan um byggðamál eðlilega af ýmsum toga. Meðal annars var töluvert rætt um skipulag opinberrar þjónustu á borð við lögreglu, skattlagningu og stöðu verslunar í dreifbýli. Frá mínum bæjardyrum séð eru sumar hugmyndir um stjórnsýslusvæði og sameiningar stofnanna gersneyddar þekkingu á staðháttum utan höfuðborgarsvæðisins. Þar er ég er ekki aðeins að tala um þau viðhorf sem koma frá starfshópum stjórnvalda heldur ekki síður frá ýmsum hagsmunasamtökum.
Flest bendir til að rétt sé að endurskoða regluverk um minni skemmtiferðarskip sem koma til landsins eða sigla í kringum landið á sumrin. Þannig að það verði á ný aðlaðandi að koma til smærri hafna eins og til Djúpavogs, Grímseyjar og Siglufjarðar.
Það var áhugavert að upplýsingar um samkeppnisstöðu minni verslana í dreifbýli sem ekki eru hluti af verslanakeðjum. Sömuleiðis um hvernig fasteignafélagið Eik sem er með markaðsráðandi stöðu á Akureyri er sagt mismuna leigutökum á Glerártorgi.
Í framhaldinu er rétt að ræða hvort kröftum Byggðastofnunar væri ekki betur varið í að styðja viðkomandi fyrirtæki í að fá skjótari úrlausn hjá Samkeppniseftirlitinu, í stað þess að veita þeim smávægilegan styrk til að halda úti verslun. Það er stórundarlegt og upplýsandi staða að verslanir á Kópaskeri og Vopnafirði sjái hag í því að vera í beinum innflutningi á vörum frá Búlgaríu og Þýskalandi til þess að ná niður vöruverði.
Það sem ekki var á dagskrá
Það var einnig athyglivert um hvaða mál vikist var undan að ræða. Hvergi var á dagskrá að ræða undirverðlagningu og vigtarreglur á fiski þrátt fyrir að á dagskrá væri umræða um útfærslu á hinum svo kallaða 5,3 prósenta byggða- og strandveiðipotti. Það blasir við að það væri verulegur búhnykkur fyrir sveitarfélögin ef verðlagning á uppsjávarfiski m.a. makríl, loðnu og síld væri eitthvað í átt við það sem hún er hjá næstu nágrönnum Íslendinga í austri. Eins væri það búbót ef þorskur sem seldur er í föstum viðskiptum væri seldur á raunvirði sem fæst fyrir fiskinn á fiskmörkuðum.
Þetta er auðvitað skiljanlegt í ljósi þess mikla þrýstings sem íbúar í sjávarbyggðum víðs vegar um landið eru frá stórum og ráðandi útgerðum. Það hentar þeim ekki að þessi mál séu til umræðu á fundum þingmanna með kjörnum fulltrúum íbúa, sem ég veit að margir hverjir skilja þetta samhengi hlutanna og vildu gjarnan ná fram breytingum.
Að sama skapi var ekkert rætt um mögulega nýja nálgun varðandi stjórn fiskveiða. Til dæmis þann möguleika að gera tilraun með opið svæði til veiða við Grímsey með vistvænum veiðarfærum, til að mynda á um 10 mílna svæði út frá eyjunni. Það væri gott að fá öfluga framtíðarborgarstjórn á Akureyri með á þann vagn að auka frelsi til veiða og tryggja þar með atvinnuuppbyggingu í Grímsey.
Sigurjón Þórðarson er þingmaður Flokks fólksins
Beinum kastljósinu að atvinnulífinu
Bókasöfnin okkar
Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein
Meistaravík, Akureyri og nýtt öryggishlutverk á norðurslóðum