Fara í efni
Umræðan

Nýr deildarstjóri Rauða krossins í Eyjafirði

Sigurbjörg Rún Jónsdóttir hefur tekið við stöðu deildarstjóra Eyjafjarðardeildar Rauða krossins.
Sigurbjörg Rún Jónsdóttir hefur tekið við stöðu deildarstjóra Eyjafjarðardeildar Rauða krossins. Sirrý, eins og hún er jafnan kölluð, mætti til starfa í höfuðstöðvum deildarinnar í Viðjulundi 2 á Akureyri á miðvikudaginn var, 1. apríl. „Ég hlakka til að kynnast öllum sjálfboðaliðum og starfsfólki deildarinnar og halda áfram að byggja upp það mikilvæga starf sem deildin sinnir á Norðurlandi,“ segir Sirrý.
 
Sirrý er 57 ára og alin upp á Akureyri. Hún er með BA-gráðu í íslensku, meistaragráðu í mannauðsstjórnun og er einnig markþjálfi. Áður starfaði hún sem verkefnastjóri hjá Háskólanum á Akureyri.
 
Auk Sirrýjar starfa sjö á skrifstofu Eyjafjarðardeildar Rauða krossins, flest í hlutastarfi. Sjálfboðaliðar deildarinnar voru 382 í árslok 2025 og hafa þeir aldrei verið jafnmargir.
 
„Starfslið og sjálfboðaliðar sinna mörgum og fjölbreyttum verkefnum á Eyjafjarðarsvæðinu. Má þar nefna söfnun, flokkun og sölu á notuðum fatnaði, vinaverkefni sem miða að því að rjúfa einangrun fólks, stuðning við flóttafólk, skaðaminnkandi verkefni og málsvarastarf fyrir jaðarsetta hópa,“ segir í tilkynningu frá Rauða krossinum.

Öflugt atvinnulíf þarf gott aðgengi að lóðum

Sunna Hlín Jóhannesdóttir skrifar
30. september 2026 | kl. 20:15

Beinum kastljósinu að atvinnulífinu

Karl Eskil Pálsson skrifar
29. september 2026 | kl. 20:15

Bókasöfnin okkar

Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar
28. september 2026 | kl. 06:00

Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein

Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar
27. september 2026 | kl. 06:00

Meistaravík, Akureyri og nýtt öryggishlutverk á norðurslóðum

Njáll Trausti Friðbertsson skrifar
23. september 2026 | kl. 20:00

Hvað ef það væri samfélagsgarður við Mýrarveg?

Eyrún Gígja Káradóttir skrifar
22. september 2026 | kl. 19:00