Eitt stig KA eftir átta marka flugeldasýningu
KA og Valur gerðu jafntefli, 4:4, í ótrúlegum leik í Bestu deildinni í fótbolta í kvöld, mánudagskvöld. Leiksviðið var Hlíðarendi, heimavöllur Valsara, leikararnir buðu sannarlega upp á stórskemmtilega sýningu og þótt það hljómi ef til vill lygilega hefðu bæði lið getað gert enn fleiri mörk!
Uppskera beggja var eitt stig sem er heldur rýrt fyrir KA-menn því þeir eru þar af leiðandi enn í næst neðsta sæti, einu stigi fyrir ofan Þór. Hafa ber í huga að næstu tvö lið fyrir ofan, ÍBV og FH, hafa aðeins einu stigi meira og enn eru átta leikir eftir; þrír í hefðbundnu deildakeppninni og fimm eftir að deildinni verður skipt í tvennt.
Hallgrímur Jónasson þjálfari KA sagðist, í viðtali fyrir leik, vilja að það sæist að hans lið hefði meiri orku en andstæðingurinn, sem er nýkominn úr erfiðu Evrópuverkefni, og að meira væri í húfi fyrir KA en Val. Honum varð sannarlega að ósk sinni því KA-strákarnir byrjuðu af miklum krafti, voru grimmir og beinskeyttir í fyrri hálfleik og náðu tvisvar tveggja marka forystu. Þeir gerðu tvö fyrstu mörkin, Valur minnkaði muninn en KA bætti því þriðja við fyrir hlé.

Hallgrímur Mar Steingrímsson, sem hér er með boltann í fyrri leiknum við Val í sumar, kom KA í 4:3 með marki þegar rúmar 10 mínútur voru eftir. Adam Ægir Pálsson sem þarna fyrir miðri mynd í Valsbúningnum, átti stoðsendingu á Jakob Snæ Árnason þegar hann gerði fyrsta mark leiksins. Mynd: Ármann Hinrik
Valsmenn gyrtu sig í brók í seinni hálfleik, voru mun ákveðnari en í fyrri hlutanum, en geta ekki síst þakkað fyrir tvennt; annars vegar að framherjinn Patrick Pedersen er að komast í gang á ný eftir langa fjarveru vegna meiðsla, hins vegar að besti varnarmaður KA, fyrirliðinn Hans Viktor Guðmundsson var í leikbanni. Valsmenn nýttu sér það sannarlega að sá hávaxni varnarmaður var fjarverandi og þrjú af mörkum þeirra komu eftir föst leikatriði, eitt eftir horn og tvö eftir langt innkast.
0:1 – Jakob Snær I
KA-menn voru miklu ákveðnari á upphafsmínútunum, vörðust framarlega og slógu Valsmenn út af laginu. Ekki voru nema tæpar fimm mín. liðnar þegar þeir brutu ísinn, Adam Ægir Pálsson (sem kom til KA frá Val í júlí) átti mjög góða sendingu á Jakob Snæ sem snéri á varnarmann og skoraði af stuttu færi.
0:2 – Hallgrímur I
Góður varnarleikur KA fremst á vellinum skilaði aftur góðum árangri eftir stundarfjórðung. Fredrik Schram markvörður Vals lenti í brasi með boltann inni í teig, slök sending hans kom varnarmanni í vandræði og sóknin endaði með því að Hallgrímur Mar Steingrímsson skoraði með skoti utan vítateigs. Ekki fallegasta mark Hallgríms á ferlinum því Schram gerði sjaldgæf mistök þegar hann missti boltann undir sig - en KA-mönnum gæti vitaskuld ekki verið meira sama!

Hallgrímur Jónasson þjálfari KA gat að mörgu leyti verið ánægður með sína menn, sérstaklega í fyrri hálfleik. Mynd: Ármann Hinrik
1:2 – Hólmar Örn
Hólmar Örn Eyjólfsson minnkaði muninn þegar 21 mín. var liðin. Tryggvi Hrafn Haraldsson tók horn frá hægri, fékk boltann aftur og góð fyrirgjöf hans rataði beint á koll Hólmars fyrirliða sem skallaði boltann í markið. Einföld uppskrift.
1:3 – Jakob Snær II
Aftur skoraði hinn nýgifti Jakob Snær Árnason þegar langt var liðið á fyrri hálfleikinn þegar KA-menn sóttu hratt eftir að hafa unnið boltann af heimamönnum. Adam Ægir lék í átt að vítateignum, renndi boltanum út til hægri á Kára Gautason og föst sending hans rataði beint á Jakob Snæ í miðjum teignum sem þakkaði kærlega fyrir sig með því að þruma boltanum í markið.
2:3 – Pedersen I
KA saknaði Hans Viktors úr miðri vörninni sem fyrr segir. Ekki skal lítið gert úr miðvörðunum lungann úr leiknum, Birki Baldvinssyni eða André Römer, en hvorugur er vanur að leika í þeirri stöðu og fyrirliðinn er hávaxnari. Samúel Kári Friðjónsson tók langt innkast á 61. mín., Hólmar Örn virtist fleyta boltanum langra og danski framherjinn – markahæsti leikmaður í sögu Íslandsmótsins – var óvaldaður við fjærstöngina og skoraði.
3:3 – Pedersen II
Sama uppskrift og sex mín. áður. Samúel Kári kastar inn, Hólmar skallar boltann lengri og Patrick Pedersen skorar. Að þessu sinni var hann dauðafrír í miðjum markteignum. Þar sváfu KA-menn illa á verðinum.

Ívar Arnbro Þórhallsson fékk á sig fjögur mörk í kvöld en varði nokkrum sinnum afbragðs vel. Mynd: Sævar Geir Sigurjónsson
3:4 – Hallgrímur II
4:4 – Ótrúlegt, en satt...
KA-menn innan og utan vallar hafa án efa séð þrjú stig í hillingum eftir að Hallgrímur gerði fjórða markið en það var svo sem í takt við þennan ævintýralega leik að heimamenn skyldu jafna. Og mjög vel var að því marki staðið frá sjónarhorni Vals þótt varnarleikur KA væri að sama skapi slakur. Lúkas Logi Heimisson renndi sér framhjá nokkrum varnarmönnum, gaf boltann á Tryggvi Hrafn Haraldsson sem komst óáreittur upp að markteigshorninu vinstra megin og Ívar Arnbro kom engum vörnum við.

Kári Gautason var magnaður í fyrri hálfleiknum í kvöld. Þessi kraftmikli hægri bakvörður kastaði sér í tvígang fyrir skot Valsmanns í dauðafæri og átti einnig sendinguna á Jakob Snæ Árnason þegar hann gerði seinna mark sitt og þriðja mark KA. Mynd: Ármann Hinrik
KA-menn hafa glímt við mikil meiðsli í sumar og tveir urðu að fara yfirgefa völlinn í dag. Jakob Snær fór útaf snemma í sinni hálfleik eftir að hafa orðið fyrir hnjaski seint í þeim fyrri og Guðjón Ernir Hrafnkelsson meiddist og fór út af þegar klukkutími var liðinn.
KA: Ívar Arnbro Þórhallsson – Kári Gautason, André Rømer, Birgir Baldvinsson, Samuel Karl Kroon – Guðjón Ernir Hrafnkelsson (Jakob Héðinn Róbertsson 59.), Jeppe Pedersen (Valdimar Logi Sævarsson 72.), Mikael Breki Þórðarson – Adam Ægir Pálsson (Markús Máni Pétursson 72.), Jakob Snær Árnason (Diego Montiel 52.), Hallgrímur Mar Steingrímsson.
Næsti leikur er á heimavelli gegn KR en þrír síðustu leikirnir fyrir skiptingu eru gegn liðunum í 2., 3. og 4. sæti.
- Sunnudag 23. ágúst 17:00
KA - KR - Sunnudag 30. ágúst 17:00
Fram - KA - Sunnudag 6. september 14:00
KA - Breiðablik
„Þúsund þorskar á færibandinu ...
Stærð þjóðar
Yrði Evrópusambandið bjargvættur eða bölvaldur landsbyggðanna?
Freistað með okkar eigin peningum