Fara í efni
Umræðan

Baráttan í Bestu deildunum harðnar

Akureyrarliðin í Bestu deildunum eiga öll leiki í vikunni, KA reyndar tvo, útileik í dag og heimaleik á sunnudag. Þór/KA á sömuleiðis heimaleik á föstudag, en Þór spilar í Garðabænum á sunnudag.

MÁNUDAGUR 17. ÁGÚST - fótbolti

Í kvöld lýkur 19. umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu, og eru þá eftir aðeins þrjár umferðir fyrir tvískiptingu deildarinnar. Líkur á að Akureyrarliðin nái upp í efri hlutann fyrir skiptinguna fara þverrandi, en vissulega möguleiki með frábærum endaspretti og hagstæðum úrslitum annarra leikja. Baráttan snýst því meira um að ná sér í stig og færast ofar í töfluna, vera í betri stöðu þegar baráttan um að forðast fall nær hámarki í lokaumferðunum fimm eftir skiptingu.

KA er sem stendur í 11. sæti deildarinnar með 15 stig, en á leikinn við Val inni á næstu lið. ÍBV er næsta lið með 17 stig, þá FH með 20. KA sækir Val heim í kvöld, en Valur er ekki langt undan heldur, situr í 7. sætinu með 22 stig.

  • Besta deild karla í knattspyrnu, 19. umferð
    N1 völlurinn að Hlíðarenda
    Valur - KA

Fyrri leikur Vals og KA í þessum hluta deildarkeppninnar fór fram á Akureyri í maí og þar höfðu Valsmenn betur, 1-0. 

Aðrir leikir sem KA á eftir fyrir tvískiptingu deildarinnar: KR (h), Fram (ú), Breiðablik (h)

FÖSTUDAGUR 21. ÁGÚST - fótbolti

Þór/KA hefur fært sig ofar í töflunni í Bestu deild kvenna í knattspyrnu með tveimur sigrum í röð og þremur sigrum í síðustu fjórum leikjum, situr nú í 6. sæti deildarinnar með 18 stig þegar þremur umferðum er ólokið fyrir tvískiptingu deildarinnar. Valur er í 9. sæti deildarinnar með 13 stig.

Fram undan er bæði hörð barátta við að forðast fall, sem og barátta um að halda sér á meðal efstu sex liða og spila þannig í efri hlutanum eftir tvískiptingu deildarinnar. Að loknum 15 umferðum er Grindavík/Njarðvík í 5. sæti með 19 stig, síðan Þór/KA í 6. sætinu með 18 stig, Þróttur næst, einnig með 18 stig en verri markamun en Þór/KA. Þá kemur Fram í 8. sætinu með 16 stig, Valur með 13 og Víkingur í botnsætinu með 11 stig. Taflan getur því verið fljót að breytast í lokaumferðunum fyrir tvískiptingu og raunar ekki svo langt upp í 3. og 4. sætið heldur því þar eru ÍBV með 24 stig og Stjarnan með 23.

  • Besta deild kvenna í knattspyrnu, 17. umferð
    Þórsvöllur (VÍS-völlurinn, gervigras á ásnum) kl. 18
    Þór/KA - Valur

Fyrri leikur Þórs/KA og Vals fór fram að Hlíðarenda um miðjan júní og endaði með markalausu jafntefli.

Aðrir leikir sem Þór/KA á eftir fyrir tvískiptingu deildarinnar: Þróttur (ú), FH (ú).

SUNNUDAGUR 23. ÁGÚST - fótbolti

Fjórir leikir 20. umferðar Bestu deildar karla í knattspyrnu fara fram sunnudaginn 23. ágúst, þar á meðal eiga bæði Akureyrarliðin leik. KA á heimaleik og fær hina marksæknu KR-inga í heimsókn, en Vesturbæjarliðið hefur skorað 67 mörk í 19 leikjum það sem af er mótinu. KR er í 2. sæti deildarinnar með 40 stig og hafa aðeins dregið á topplið Víkings.

KA situr í 11. sæti deildarinnar með 15 stig þegar þetta er skrifað, en þegar kemur að leiknum á sunnudag er möguleiki að liðið hafi fært sig upp um eitt sæti og úr fallsæti með sigri á Val í 19. umferðinni mánudaginn 17. ágúst. 

  • Besta deild karla í knattspyrnu, 20. umferð
    KA-völlur (Greifavöllurinn, sunnan við KA-heimilið) kl. 17
    KA - KR

Fyrri leikur KA og KR í þessum hluta deildarkeppninnar fór fram á Meistaravöllum, heimavelli KR, í lok maí og var sannkölluð markaveisla þar sem KR-ingar unnu, 5-3.

Aðrir leikir sem KA á eftir fyrir skiptingu deildarinnar: Fram (ú), Breiðablik (h)

- - -

Þór situr enn í botnsæti deildarinnar eftir tap í síðustu tveimur leikjum, er með 15 stig úr 19 leikjum. Þór sækir Stjörnuna heim á sunnudag í 20. umferðinni, en Garðbæingar eru ekki langt undan, eiga að vísu leik til góða gegn Fram í kvöld, þegar þetta yfirlit birtist á mánudegi. Að loknum 18 leikjum er Stjarnan í 8. sætinu með 21 stig.

  • Besta deild karla í knattspyrnu, 20. umferð
    Stjörnuvöllurinn (Samsung-völlurinn í Garðabæ) kl. 17
    Stjanan - Þór

Fyrri leikur liðanna fór fram á Akureyri í lok maí og höfðu gestirnir úr Garðabænum betur, 3-1.

Aðrir leikir sem Þór á eftir fyrir skiptingu deildarinnar: ÍBV (ú), FH (h)

Hvað sparar Akureyrarbær með upptöku evru? Svar: um 400 mkr á ári

Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
16. ágúst 2026 | kl. 10:30

„Þúsund þorskar á færibandinu ...

Óli Rúnar Ástþórsson skrifar
13. ágúst 2026 | kl. 17:00

Stærð þjóðar

Pétur Björgvin Þorsteinsson skrifar
12. ágúst 2026 | kl. 06:00

Yrði Evrópusambandið bjargvættur eða bölvaldur landsbyggðanna?

Þóroddur Bjarnason skrifar
12. ágúst 2026 | kl. 06:00

Freistað með okkar eigin peningum

Hjörtur J. Guðmundsson skrifar
07. ágúst 2026 | kl. 15:00

Hvað gæti ESB gert fyrir Norðurland?

Halldór Jörgen Olesen skrifar
06. ágúst 2026 | kl. 15:00