Fara í efni
Umræðan

Þórsarar áfram neðstir eftir 12. tapið

Elvis Okello Bwomono varnarmaður Keflvíkinga spyrnir knettinum frá nánast af marklínu, eftir að markvörður Keflvíkinga hafði misst fyrirgjöf Atla Sigurjónssonar framhjá sér þegar Ágúst Eðvald Hlynsson truflaði hann. Mynd: Ármann Hinrik.

Þórsarar töpuðu 2:0 gegn Keflvíkingum á heimavelli í efstu deild karla, Bestu deildinni, í dag. Leikurinn var sá fyrsti í 19. umferð deildarkeppninnar og ljóst að Þórsarar verða áfram í botnsætinu eftir þessa umferð. Keflvíkingar styrktu hins vegar stöðu sína í baráttunni um sæti í efri helmingi deildarinnar áður en henni verður skipt upp.

Þórsarar byrjuðu leikinn vel í dag og spiluðu fínan fótbolta framan af. Keflvíkingar voru hins vegar þéttir og gáfu fá færi á sér. Þórsarar fengu í raun bara eitt gott marktækifæri þennan fyrsta hálftíma leiksins sem þeir stjórnuðu gangi mála. Það var á 11. mínútu þegar Ágúst Eðvald Hlynsson sendi boltann fyrir markið frá hægri og Victor Bertomeu var einn á auðum sjó í góðu færi en skalli hans fór framhjá markinu.

Keflvíkingar með mark upp úr þurru

Keflvíkingar komust yfir á 32. mínútu og óhætt er að segja að markið hafi komið upp úr engu. Eiður Orri Ragnarsson lét vaða fyrir utan vítateig hægra megin og þéttingsfast skot hans hafnaði uppi í markhorninu fjær. Glæsilegt skot og óverjandi fyrir Aron Birki Stefánsson í markinu.

Eftir þetta jafnaðist leikurinn en Bartomeu komst samt í gott færi á 40. mínútu eftir sendingu frá Christian Jakobsen en Ásgeir Orri Magnússon í marki Keflvíkinga varði glæsilega. Í heildina var fyrri hálfleikurinn fremur tíðindalítill en Þórsarar voru þó líklegri til afreka lengst af en tókst ekki að komast gegnum Keflavíkurmúrinn. Glæsimark Eiðs Orra skildi liðin að.

Seinni hálfleikur var ekki mikið líflegri og Keflvíkingar gerðu vel í að verja forskotið. Þórsarar komust ekkert áleiðis en gestirnir fengu álitlegustu marktækifærin. Skoruðu reyndar mark með skalla eftir hornspyrnu á 77. mínútu en rangstaða var dæmd á Marin Mudrazija sem stóð framan við Aron Birki og truflaði hann. Líklega réttur dómur.

Eina tækifæri Þórsara sem eitthvað kvað að var þegar Ásgeir Orri í Keflavíkurmarkinu missti lausa fyrirgjöf Atla Sigurjónssonar framhjá sér og samherji hans þurfti að hreinsa boltann nánast á marklínu.

Þórsarar nýttu allar skiptingar sínar í seinni hálfleiknum í von um að hleypa lífi í sóknarleikinn en allt kom fyrir ekki, ógnin var lítil sem engin. Á 87. mínútu gerðu gestirnir út um leikinn eftir hraða sókn þegar Þórsarar voru fáliðaðir til baka. Eiður Orri var við miðlínu þegar hann fékk sendingu inn fyrir, hann skeiðaði upp völlinn og var ekki kominn upp að vítateig þegar hann lagði knöttinn laglega í nærhornið framhjá Aroni Birki.

Enn syrtir í álinn hjá Þór

Þegar á heildina er litið var sigur Keflvíkinga sanngjarn, þeir voru betri aðilinn í leiknum eftir að þeir komust yfir í fyrri hálfleik. Þórsarar léku ágætlega framan af leik en virtust missa móðinn eftir að Keflavík komst yfir. Þrátt fyrir ýmiss konar tilraunir og innáskiptingar náðu þeir aldrei að gera vörn gestanna almennilega skráveifu og til að vinna knattspyrnuleik er nauðsynlegt að geta skorað mörk. Nú bíða Þórsara þrjár viðureignir gegn liðum sem eru skammt fyrir ofan í töflunni og það er lífsnauðsynlegt að fá sem flest stig úr þeim leikjum, áður en deildinni verður skipt upp, til að eiga einhverja möguleika á að halda sætinu í deildinni.

Lið Þórs: Aron Birkir Stefánsson – Gyrðir Hrafn Guðbrandsson, Yann Emmanuel Affi, Ásbjörn Líndal Arnarsson (Peter Ingi Helgason (78.), Bjarni Guðjón Brynjólfsson – Þorri Ingólfsson (Aron Ingi Magnússon 67.), Kevin Vazquez Comesaña (Birgir Ómar Hlynsson (86.), Christian Jakobsen – Ágúst Eðvald Hlynsson, Victor Bertomeu (Sigfús Fannar Gunnarsson (78.), Fannar Daði Malmquist Gíslason (Atli Sigurjónsson 67.).

Leikskýrslan á vef KSÍ

Staðan í deildinni


19 umferðir eru að baki og því þrír leikir eftir þar til deildinni verður skipt í tvennt. Sex efstu halda áfram baráttu um Íslandsmeistaratitilinn og mætast innbyrðis í einfaldri umferð, rétt eins og sex neðstu liðin gera. Tvö neðstu að þeirri viðbót lokinni falla.

Þórsarar hafa unnið fjóra leiki í sumar, gert þrjú jafntefli og tapað 12 leikjum.

Í fyrstu umferð unnu þeir Val á útivelli, og hafa síðan unnið Fram, Víking og Breiðablik á heimavelli.

Jafnteflin eru þrjú, gegn FH úti, KR heima og KA úti og Þórsarar hafa tapað fyrir KR, Breiðabliki, Víkingi, Keflavík, Fram og ÍA á útivelli en KA, ÍA, Stjörnunni, ÍBV, Val og Keflavík heima.

Næsti leikur er á útivelli gegn Stjörnunni sem er núna í 8. sæti, en síðustu leikirnir fyrir skiptingu eru gegn liðum sem einnig eru í neðri hlutanum.

  • Sunnudag 23. ágúst 17:00
    Stjarnan - Þór
  • Sunnudag 30. ágúst 16:00
    ÍBV - Þór
  • Sunnudag 6. september 14:00
    Þór - FH

„Þúsund þorskar á færibandinu ...

Óli Rúnar Ástþórsson skrifar
13. ágúst 2026 | kl. 17:00

Stærð þjóðar

Pétur Björgvin Þorsteinsson skrifar
12. ágúst 2026 | kl. 06:00

Yrði Evrópusambandið bjargvættur eða bölvaldur landsbyggðanna?

Þóroddur Bjarnason skrifar
12. ágúst 2026 | kl. 06:00

Freistað með okkar eigin peningum

Hjörtur J. Guðmundsson skrifar
07. ágúst 2026 | kl. 15:00

Hvað gæti ESB gert fyrir Norðurland?

Halldór Jörgen Olesen skrifar
06. ágúst 2026 | kl. 15:00

Ísland og ESB: Horft af brúnni

Þorvaldur Gylfason skrifar
04. ágúst 2026 | kl. 12:30