Fara í efni
Umræðan

Íslandsmet og Baldvin Norðurlandameistari

Baldvin Þór Magnússon eftir að hann setti Íslandsmet í 1500 metra hlaupi innanhúss á Reykjavíkurleikunum á dögunum. Skjáskot af RÚV.

Bald­vin Þór Magnús­son úr Ungmennafélagi Akureyrar varð í dag Norður­landa­meist­ari í 3.000 metra hlaupi inn­an­húss, stórbætti eigið Íslandsmet frá því í janúar og náði í leiðinni lágmarki fyrir Evrópumeistaramótið í mars.

Norðurlandamótið fer fram í Espoo í Finnlandi. Baldvin hljóp vegalengdina í dag á 7:39,94 mín. – 7 mínútum og 39,4 sekúndum. Metið frá því í janúar var 7:45,13 mín. þannig að hann bætti það um hvorki meira né minna en tæpar sex sekúndur!

Annar í hlaupinu í dag varð Norðmaðurinn Filip Ingebrigsten, fyrr­ver­andi Evr­ópu­meist­ari í 1.500 metra hlaupi. Þeir Baldvin háðu mikið einvígi í Espoo og kom Norðmaðurinn þremur sekúndubrotum á eftir okkar manni í mark; Ingebrigsten hljóp á 7:39,97 mín­út­um og tryggði sér einnig þátttökurétt á EM sem fram fer í Hollandi 6.-9. mars. 

Óhætt er að segja að Baldvin byrji árið með glæsibrag. Íslandsmetið var það þriðja sem hann setur frá áramótum; Baldvin bætti metið í 3.000 m hlaupi öðru sinni í dag sem fyrr segir og hann sló einnig eigið met í 1.500 metra hlaupi á Reykjavíkurleikunum fyrir hálfum mánuði.

Baldvin á níu Íslandsmet

Baldvin Þór á nú Íslandsmet í fimm greinum utanhúss:

  • 1500 m – 3:39,90 mín – sett í júlí 2024
  • 3000 m – 7:49,68 mín – sett í júlí 2023
  • 5000 m – 13:20,34 mín – sett í apríl 2024
  • 5 km götuhlaup – 13:42,00 mín – sett í mars 2024
  • 10 km götuhlaup – 28:51,00 mín – sett í október 2023

Hann á fjögur Íslandsmet innanhúss:

  • 1500 m – 3:41,05 - 4. febrúar 2024
  • 1 míla – 3:59,60 - 14. janúar 2023
  • 3000 m – 7:39,94 - 9. febrúar 2025
  • 5000 m – 13:58,24 - 24. febrúar 2023

Gott að eldast

Kristín Áslaug Guðmundsdóttir skrifar
19. janúar 2026 | kl. 08:00

Hafirðu ekkert gott að segja er betra að þegja!

Hlín Bolladóttir skrifar
16. janúar 2026 | kl. 11:25

Samstaða í ferðaþjónustu aldrei mikilvægari

Halldór Óli Kjartansson skrifar
13. janúar 2026 | kl. 06:00

Ríkisrekinn byggðahalli

Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson skrifar
12. janúar 2026 | kl. 13:00

35% aukning í millilandaflugi um Akureyrarflugvöll

Ásthildur Sturludóttir skrifar
09. janúar 2026 | kl. 17:45

Akureyrarflugvöllur - Brú milli Norðurlands og umheimsins

Sigrún Björk Jakobsdóttir skrifar
07. janúar 2026 | kl. 11:45