Fara í efni
Umræðan

Hafdís Íslandsmeistari í ólympískri þríþraut

Hafdís Sigurðardóttir hjólreiðakona úr Hjólreiðafélagi Akureyrar fær ekki nóg af því að vinna Íslandsmeistaratitla. Um liðna helgi varð hún Íslandsmeistari í ólympískri þríþraut þegar Reykjavíkurþríþrautin var þreytt. Þríþrautin samanstóð af þúsund metra sjósundi, 40 kílómetra hjólreiðum og tíu kílómetra hlaupi. 

Stutt er síðan Hafdís vann Íslandsmeistaratitil í tímatöku í hjólreiðum fimmta árið í röð, auk þess að vinna til silfurverðlauna í götuhjólreiðum og criterium-hjólreiðum. Hún ákvað síðan á föstudag að taka þátt í Reykjavíkurþríþrautinni og gerði það með stæl, sigraði í kvennaflokki eftir mikla spennu. Hafdís, sem samkvæmt frétt Þríþrautasambands Íslands keppti undir merkjum UFA-Norðurljóssins, var með samanlagðan tíma 2:12:59 klst., tæpum tveimur mínútum betri tíma en næsta kona, Sara Árnadóttir úr Ægi. Ásta Rún Ingvadóttir úr Ægi náði 3. sætinu.

Fyrsta keppnisgreinin var stytt um 500 metra, að því er fram kemur í frétt Þríþrautasambandsins. Syntir voru tveir 500 metra hringir frá Skarfakletti. „Þrátt fyrir frábærar aðstæður og spegilsléttan sjó var keppnin stytt úr 1.500 metrum í 1.000 metra þar sem samanlagður hiti sjávar og lofts var rétt undir viðmiðunarmörkum í reglum ÞRÍ fyrir styttingu. Sjávarhiti mældist um 11,5 gráður en lofthiti um 10 gráður,“ segir í frétt Þríþrautasambandsins.

Þetta er í fyrsta skipti sem Íslandsmótið í ólympískri þríþraut fer fram í Reykjavík og í fyrsta skipti sem hjólreiðahlutinn fer fram á vegum þar sem lokað er fyrir bílaumferð, en hjólaðir voru fimm átta kílómetra hringir á Sæbrautinni og síðan hlaupið frá Skarfakletti meðfram Sæbrautinni, framhjá Hörpu og til baka, samtals tíu kílómetrar.

Rætt var við Hafdísi í íþróttafréttum Rúv og má sjá viðtal við hana í umfjöllun á ruv.is - smellið á myndina til að opna umfjöllun og viðtal við Hafdísi.

Hafdís Sigurðardóttir hefur bikarinn á loft, Íslandsmeistari í ólympískri þríþraut. Til hægri er Sara Árnadóttir úr Ægi, sem vann til silfurverðlauna og Ásta Rún Ingvadóttir sem vann bronsið. Myndin er af Facebook-síðu móður Hafdísar.

Evrópusambandið, meira en tollabandalag

Steinar Harðarson skrifar
10. júlí 2026 | kl. 18:00

Við erum kölluð til kosninga

Gunnar Már Gunnarsson skrifar
09. júlí 2026 | kl. 15:00

Akureyri heilsar þér með bros á vör

Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar
02. júlí 2026 | kl. 21:00

Húsnæðiserfiðleikar ungs fólks innan ESB

Hjörtur J. Guðmundsson skrifar
02. júlí 2026 | kl. 20:45

Drífum í að stytta hringveginn

Jóhannes Gunnar Bjarnason skrifar
02. júlí 2026 | kl. 14:30

Við ætlum að leggja okkar af mörkum

Óðinn Svan Óðinsson, Sunna Hlín Jóhannesdóttir og Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifa
25. júní 2026 | kl. 17:00