Fara í efni
Umræðan

Garðar Atli varð í 12. sæti í spjótkasti á EM

Mynd: Skapti Hallgrímsson

Garðar Atli Gestsson úr Ungmennafélagi Akureyrar (UFA) varð í 12. sæti í spjótkasti á Evrópumeistaramóti 17 ára og yngri (EMU18) í Rieti á Ítalíu. Hann var nokkuð frá sínu besta í úrslitunum í morgun; kastaði lengst 57,37 metra, spjótið sveif hins vegar 64,94 m eftir lengsta kast hans í undankeppninni í gær og besti árangur Garðars Atla er 65,35 m sem tryggði honum þriðja sæti og bronsverðlaun á Áskorendamóti Evrópu í Mónakó í lok maí.

Finninn Jere Murto hafði mikla yfirburði í keppni dagsins, kastaði rúmum 10 metrum lengra en næsti maður. Lengsa kast Finnans mældist 80,41 m, annar varð Bretinn Edward Scott með 70,02 m og þriðji Jevin Rasanayagam frá Sviss með 69,06.

Garðar Atli kastaði 57,37 m í fyrstu umferð, gerði annað kastið ógilt og spjótið sveif 51,92 m í þriðju tilraun. Hann kastaði ekki oftar því aðeins átta bestu fengu þrjú köst til viðbótar.

Játningar nýliða

Kristín Helga Schiöth skrifar
30. október 2026 | kl. 18:00

Sagan, umhverfið og sundlaugin á Kristnesi ómetanleg lífsgæði!

Jón Hlöðver Áskelsson skrifar
30. október 2026 | kl. 18:00

Erum við ráðalaus gegn einmanaleika?

Sóley Björk Stefánsdóttir skrifar
29. október 2026 | kl. 15:15

Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm

Björn Snæbjörnsson skrifar
27. október 2026 | kl. 10:00

Brú yfir byggðaföllin eða mjaltavél Icelandair?

Þóroddur Bjarnason skrifar
26. október 2026 | kl. 17:30

Loftbrúin má ekki missa flugið

Njáll Trausti Friðbertsson skrifar
23. október 2026 | kl. 17:15