Fara í efni
Umræðan

Garðar Atli komst í úrslit í spjótkasti á EM

Garðar Atli Gestsson úr Ungmennafélagi Akureyrar tryggði sér í morgun sæti í úrslitum í spjótkasti á sínu fyrsta stórmóti – Evrópumeistaramóti 17 ára og yngri. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Garðar Atli Gestsson úr Ungmennafélagi Akureyrar (UFA) komst í morgun í úrslit í spjótkasti á Evrópumeistaramóti 17 ára og yngri (EMU18) sem fram fer í Rieti á Ítalíu. Hann var nálægt sínum besta árangri; kastaði 64,94 metra í morgun en lengsta kast hans er 65,35 m sem tryggði Garðari Atla þriðja sæti og bronsverðlaun á Áskorendamóti Evrópu í Mónakó í lok maí.

Til að komast í úrslit á EM þurfti að kasta 67 metra eða vera í hópi þeirra 12 sem köstuðu lengst. Fimm rufu 67 m múrinn þannig að sjö aðrir komust áfram og Garðar Atli var sá 12. og síðasti inn í úrslit, næstur á eftir honum var Tyrki sem kastaði 70 sentimetrum styttra.

Ítalinn Antonio di Palma kastaði lengst í morgun, 73,28 m, Natan Kowalski frá Póllandi 69,96 og Finninn Jere Murto 69,86 m. Murto á lengsta kast allra í hópnum – spjót hans sveif 80,24 m fyrr á þessu ári.

Keppendur fengu þrjú köst í morgun, ekki sex eins og hefðbundið er á stórmótum. Garðar Atli kastaði 64,94 m í fyrstu tilraun, annað kast hans var ógilt og það þriðja mældist 63,11 m.

Keppt verður til úrslita í spjótkastinu á morgun.

Sagan, umhverfið og sundlaugin á Kristnesi ómetanleg lífsgæði!

Jón Hlöðver Áskelsson skrifar
30. október 2026 | kl. 18:00

Játningar nýliða

Kristín Helga Schiöth skrifar
30. október 2026 | kl. 18:00

Erum við ráðalaus gegn einmanaleika?

Sóley Björk Stefánsdóttir skrifar
29. október 2026 | kl. 15:15

Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm

Björn Snæbjörnsson skrifar
27. október 2026 | kl. 10:00

Brú yfir byggðaföllin eða mjaltavél Icelandair?

Þóroddur Bjarnason skrifar
26. október 2026 | kl. 17:30

Loftbrúin má ekki missa flugið

Njáll Trausti Friðbertsson skrifar
23. október 2026 | kl. 17:15