Fara í efni
Umræðan

Ólafur og Rakel unnu Þorvaldsdalsskokkið

Sigurvegarar Þorvaldsdalsskokksins, Ólafur Ingi Sigurðsson (sem hljóp á 2 klst, 21,49 mín.) og Rakel Friðriksdóttir (03:24:10).

Ólafur Ingi Sigurðsson kom fyrstur í mark í Þorvaldsdalsskokkinu sem fram fór í 33. sinn laugardaginn 4. júlí, en fyrst kvenna var Rakel Friðriksdóttir. Vegalengd Þorvaldsdalsskokksins er u.þ.b. 24 km en þar sem leiðaval hlaupara er frjálst getur munað nokkru á heildarvegalengd einstakra hlaupara.

Aðstæður voru góðar, sól og blíða, að því er segir í tilkynningu frá UMSE. Hlaupið hófst við Dagverðartungu kl. 12:00 og fóru 14 hlauparar af stað. Öll úrslit í hlaupinu eru aðgengileg á timataka.net – https://timataka.net/thorvaldsdalsskokkid2026/þþ

Verðlaunahafar í karlaflokki, frá vinstri: Guðmundur Lúther Hallgrímsson sem varð í 3. sæti (2:22:40), sigurvegarinn Ólafur Ingi Sigurðsson (2:21:49) og Ari Björn Jónsson sem lenti 2. sæti (2:22:28).

Brons og silfur. Þóra Sigríður Torfadóttir, til vinstri, varð í 3. sæti í kvennaflokki (4:01:06) og Hafrún Helga Arnardóttir í 2.sæti (4:01:05).

Sagan, umhverfið og sundlaugin á Kristnesi ómetanleg lífsgæði!

Jón Hlöðver Áskelsson skrifar
30. október 2026 | kl. 18:00

Játningar nýliða

Kristín Helga Schiöth skrifar
30. október 2026 | kl. 18:00

Erum við ráðalaus gegn einmanaleika?

Sóley Björk Stefánsdóttir skrifar
29. október 2026 | kl. 15:15

Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm

Björn Snæbjörnsson skrifar
27. október 2026 | kl. 10:00

Brú yfir byggðaföllin eða mjaltavél Icelandair?

Þóroddur Bjarnason skrifar
26. október 2026 | kl. 17:30

Loftbrúin má ekki missa flugið

Njáll Trausti Friðbertsson skrifar
23. október 2026 | kl. 17:15