Fara í efni
Umræðan

Íslandsklukkan glumdi 24 sinnum

Gerður Björk Sigurðardóttir, nýnemi í hjúkrunarfræði við Háskólann á Akureyri, hringir Íslandsklukkunni í morgun. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Íslandsklukkunni, hinu fallega listaverki Kristins E. Hrafnssonar á lóð Háskólans á Akureyri, var hringt fyrir hádegi í dag og markaði athöfnin upphaf skólaársins. Klukkan glumdi 24 sinnum, einu sinni fyrir hvert ár aldarinnar.

Það var Gerður Björk Sigurðardóttir, nýnemi í hjúkrunarfræði, sem fékk það hlutverk að hringja klukkunni, eftir að dr. Áslaug Ásgeirsdóttir , nýr rektor háskólans, ávarpaði viðstadda stuttlega. Áslaug tók við embætti 1. júlí í sumar og var þetta hennar fyrsta opinbera ávarp í starfi. 

Dr. Áslaug Ásgeirsdóttir ávarpaði viðstadda í morgun. Hún tók við embætti rektors Háskólans á Akureyri 1. júlí. Mynd: Skapti Hallgrímsson
 _ _ _

  • Íslandsklukka, verk Kristins E. Hrafnssonar, myndlistarmanns, var gerð til minningar um 1000 ára kristnitökuafmæli, landafundi í Vesturheimi og sögu þjóðarinnar í stóru og smáu. Akureyrarbær efndi til samkeppni um útilistaverk árið 1999, samkeppnin var öllum opin og bárust 62 tillögur. Akureyrarbær afhenti Háskólanum á Akureyri útilistaverkið til afnota árið 2001.

Bókasöfnin okkar

Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar
28. september 2026 | kl. 06:00

Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein

Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar
27. september 2026 | kl. 06:00

Meistaravík, Akureyri og nýtt öryggishlutverk á norðurslóðum

Njáll Trausti Friðbertsson skrifar
23. september 2026 | kl. 20:00

Hvað ef það væri samfélagsgarður við Mýrarveg?

Eyrún Gígja Káradóttir skrifar
22. september 2026 | kl. 19:00

Ónýtt drasl-fólkið

Helgi Þórsson skrifar
15. september 2026 | kl. 20:00

Björgunarþyrla á Akureyri – staða máls

Njáll Trausti Friðbertsson skrifar
13. september 2026 | kl. 19:30