Fara í efni
Umræðan

Íshokkí: Leik SA og SR frestað til morguns

Hokkíkonurnar í SA þakka stuðningsfólki að loknum sigri í fyrsta leik einvígisins. Mynd: Rakel Hinriksdóttir.

Uppfært kl. 9:35 á fimmtudegi: Vegna óveðurs hefur þriðja leik í úrslitaeinvígi SA og SR í Toppdeild kvenna í íshokkí verið frestað til morguns og er hann á dagskrá kl. 16:45 (föstudag, 27. mars). 

Þetta þýðir einnig að fjórði leikur liðanna, sem fyrirhugaður var í Skautahöllinni í Laugardal á laugardag, færist yfir á sunnudag, 29. mars.

- - -

Þriðji leikur í úrslitakeppni Toppdeildar kvenna í íshokkí var á dagskránni í Skautahöllinni á Akureyri í kvöld, en leiknum hefur verið frestað til morguns vegna óveðurs. Þessi frestun hefur áhrif á tímasetningu fjórða leiksins, sem átti að vera syðra á laugardag, en hann hefur verið færður yfir á sunnudag. Flautað verður til leiks kl. 16:45 báða dagana.

Staðan í einvíginu er 1-1 og því ljóst að viðureignin fer að minnsta kosti í fjóra leiki. SA vann fyrsta leikinn á Akureyri 1-0, en SR svaraði með 2-1 sigri í öðrum leik eftir framlengingu og vítakeppni.

  • Toppdeild kvenna í íshokkí
    Úrslit, leikur 3, föstudagur 27. mars
    Skautahöllin á Akureyri kl. 16:45
    SA - SR
  • Útsending: icehockeyiceland.tv
    Áskrift að rás eða stökum leikjum

Sjókvíaeldi við Eyjafjörð

Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir skrifar
25. mars 2026 | kl. 13:15

Þegar áhuginn vex hraðar en aðstaðan

Kristján H. Kristjánsson skrifar
25. mars 2026 | kl. 13:10

Hvernig byggjum við upp vinnustaði þar sem fólk dafnar?

Hrefna Guðmundsdóttir skrifar
25. mars 2026 | kl. 13:00

ESB‑umræðan: Ótti, staðreyndir og upplýst ákvörðun

Halla María Sveinbjörnsdóttir skrifar
23. mars 2026 | kl. 06:00

Jaðarsetning eldri borgara?

Benedikt Sigurðarson skrifar
20. mars 2026 | kl. 19:00

Spörum okkur ekki til óbóta

Sunna Hlín Jóhannesdóttir og Sverre Jakobsson skrifa
19. mars 2026 | kl. 21:30