Dagfarsprúður kennari umbreytist í varnarrisa
Á daginn er Ingvar Þór Jónsson dagfarsprúður stærðfræði- og eðlisfræðikennari á fimmtugsaldri á Akureyri. Í frítímanum umbreytist hann í risa í vörninni og á heimsmet á meðal íshokkímanna, hefur spilað fyrir íslenska íshokkílandsliðið á 23 Heimsmeistaramótum. Þannig hefst grein sem Henrik Manninen skrifaði og birtist á vef Alþjóða íshokkísambandsins, IIHF, í liðinni viku, undir yfirskriftinni Ingvar Þór Jónsson: Járnkarl Íslands.
Hætti og byrjaði aftur
Ingvar Þór er Akureyringum að góðu kunnur enda hefur hann menntað margt ungmennið sem sóst hefur eftir þekkingu í stærðfræði og eðlisfræði í Menntaskólanum á Akureyri. Þar hefur Ingvar starfað um árabil. Hann hefur líka menntað og þjálfað margan íshokkímanninn, bæði sem þjálfari og samherji í Skautafélagi Akureyrar og íslenska landsliðinu í meira en aldarfjórðung.

Íslandsmeistari með SA Víkingum 2025. Ingvar Þór Jónsson í hópi félaga sinna sem starfa í kringum liðið. Jóhann Þór Jónsson, úr heilbrigðisteymi SA, Leifur Ólafsson, liðsstjóri og þúsundþjalasmiður, Ingvar Þór, Sheldon Reasbeck þjálfari, Sigurður Sveinn Sigurðsson, formaður Skautafélags Akureyrar, og Ari Gunnar Óskarsson, liðsstjóri og þúsundþjalasmiður. Mynd: Skapti Hallgrímsson.
Hann er að auki reyndasti íshokkímaður Akureyrar og þótt mun víðar væri leitað. Eftir tímabilið 2024-2025 fannst honum komið gott og lagði skautana á hilluna, eða svo héldu flestir, en svo birtist hann aftur á svellinu síðastliðið haust og spilaði með SA Víkingum í vetur, ákvað að taka slaginn áfram. En þó hann hafi spilað með SA Víkingum í Toppdeildinni og í Evrópukeppni er landsliðsferlinum lokið.
Grípum aftur niður í umfjöllun IIHF. „En nú virðist hin íslenska saga komin á lokakaflann,“ skrifar Manninen og vísar þar til þess að þó svo Ingvar Þór hafi birst með SA Víkingum á alþjóðlegum vettvangi í fyrstu umferð riðlakeppni Continental Cup í Vilníus í Litháen í haust dragi hann sig í hlé frá alþjóðlegum keppnum. „Mér finnst ég enn ráða við það stig sem íshokkíið er á hér á Íslandi, en á sama tíma gæti ég staðið í vegi fyrir framförum yngri leikmanna ef þeir fá færri mínútur á ís,“ segir Ingvar Þór, í lauslegri þýðingu blaðamanns. Hann kveðst einnig í hreinskilni efast um að líkaminn myndi þola fullan kraft í heila leiktíð.
Fyrsti landsleikurinn 1999
Ingvar Þór spilaði fyrsta landsleik sinn 18 ára gamall í D-deild Heimsmeistaramótsins sem fram fór í Krugersdorp í Suður-Afríku í apríl 1999. Rúmlega aldarfjórðungi síðar var hann fyrirliði íslenska landsliðsins sem spilaði í A-riðli 2. deildar Heimsmeistaramótsins í Belgrad í Serbíu í lok apríl 2024.

Á löngum ferli hefur Ingvar Þór verið leiðtogi og þrátt fyrir stóra sigra eins og 30-0 og stór töp eins og 0-20 er aldrei tími til að láta sér leiðast. Þessi langi ferill hefur getið af sér góða vináttu, ferðalög til fimm heilsálfa til að spila íshokkí í löndum á borð við Ástralíu, Mexíkó og Suður-Kóreu, svo dæmi séu tekin. Á þessum langa ferli hefur hann líka verið liðsfélagi leikmanna sem eru synir fyrrum liðsfélaga hans í landsliðinu, auk þess að hafa þjálfað marga þeirra. Einn af reyndari leikmönnum SA Víkinga nú um stundir, Andri Már Mikaelsson, var á meðal drengja sem Ingvar Þór þjálfaði, næst urðu þeir liðsfélagar í meistaraflokki og landsliðinu og spiluðu saman á 14 Heimsmeistaramótum og fjórum Continental Cups.
Um Ingvar segir Andri Már í grein Manninens: „Ingvar er þannig leikmaður sem gerir alla í kringum sig betri og hefur róandi nærveru, svo segja má að hann sé hinn íslenski Nicklas Lidstrom.“
Heimsmethafi útileikmanna
Ingvar Þór á að baki 23 Heimsmeistaramót með íslenska landsliðinu, sem gerir hann að heimsmethafa á meðal skautara, en búlgarskur markvörður, Konstantin Mihailov, er með fimm móta forystu á Ingvar, spilaði í markinu á 28 Heimsmeistaramótum á tímabilinu 1985 til og með 2014. Eistlendingurinn Lauri Lahesalu kemur næstur Ingvari með 22 mót, en hefur lokið sínum landsliðsferli. Suður-afrískur leikmaður, Jack Valadas, 41 árs að aldri, á möguleika á að fara fram úr Ingvari, en hann spilaði á sínu 21. móti í Tyrklandi í fyrra.

Ingvar Þór Jónsson þegar hann varð fimmti í kjöri íþróttamanns Akureyrar 2020. Mynd: Þórir Tryggvason
Íslenska landsliðið er í 34. sæti á styrkleikalista IIHF, en besti árangur Ingvars og íslenska landsliðsins náðist 2014 þegar hann var fyrirliði landsliðsins. Íslenska liðið tapaði þá aðeins einum leik í A-riðli 2. deildar og vann til silfurverðlauna á eftir frábæru liði Eistlands. Ingvar Þór var þar valinn besti varnarmaður mótsins eftir frábæra viku hjá honum og landsliðinu.
Hliðstæða við umbreytingu Clarks Kent
Landsliðsþjálfarinn á þeim tíma, Tim Brithen, segir um Ingvar í áðurnefndri umfjöllun: „Ingvar er fæddur leiðtogi, en leiðtogahæfileikar hans felast ekki í því að vera sá háværasti eða sýnilegasti, heldur um það að vera alltaf til staðar fyrir liðsfélagana og halda áfram baráttunni þegar aðrir gætu misst vonina. Þó svo Ingvar sé rólegur, afslappaður og hógvær mátti einnig sjá eldinn í augum hans á þessu Heimsmeistaramóti í Belgrad. Þegar hitnaði í kolunum framan við markið okkar mátti auðveldlega sjá hliðstæðu milli hans og Clarks Kent að breytast í Súpermann.“
Í lokin spyr Manninen hvert leyndarmálið að baki þessum langa ferli Ingvars Þórs sé, núna þegar tjaldið er að falla eftir langan og virtan feril á alþjóðavettvangi. „Stutta svarið er að ég hef algjörlega notið þess að spila í þessum mótum og líða eins og atvinnuíþróttamanni í tvær vikur. Ég hef líka verið heppinn með góða heilsu, að minnsta kosti í kringum mótin. Leikstíll minn hjálpar líklega einnig þar sem ég reiði mig frekar á ákvarðanatöku og staðsetningar en hæfni eða kraft,“ sagði Ingvar Þór Jónsson að lokum í umfjöllun Manninens á vef IIHF.
Jaðarsetning eldri borgara?
Spörum okkur ekki til óbóta
Mannhvelið: þar sem drengir verða karlmenn
Hvað gerðist með „sérlausn“ Írlands?