Fara í efni
Umræðan

Sjókvíaeldi við Eyjafjörð

Fulltrúar Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í Akureyrarbæ hafa alla tíð verið skýr í afstöðu sinni gagnvart sjókvíaeldi við Eyjafjörð. Á þessu kjörtímabili hefur VG verið eini flokkurinn í bæjarstjórn sem hefur bókað og ítrekað afstöðu sína gegn sjókvíaeldi í firðinum. Sú afstaða mun ekki breytast á komandi kjörtímabili.

Margir sérfræðingar hafa bent á hversu óumhverfisvænt sjókvíaeldi er. Til dæmis er úrgangur frá sjókvíaeldi í Noregi á við skolp frá íbúafjölda sem nemur um tífaldri íbúatölu landsins. Eldi á laxi í sjókvíum getur haft mikil og óafturkræf áhrif á náttúru. Árið 2020 taldi Hafrannsóknarstofnun ástæðu til að banna fiskeldi í sjókvíum í Eyjafirði, vegna stöðu villtra laxfiska, sérstaklega bleikju og einnig mögulegum neikvæðum vistfræðilegum áhrifum á lífríki fjarðarins.

Í frumvarpsdrögum atvinnuvegaráðherra er ekki kveðið á um friðun Eyjafjarðar sem er miður að okkar mati. Þó er tekið fram að afstaða sveitarstjórna hafi áhrif hvort staðbundið bann verði við starfseminni. Það er því gríðarlega mikilvægt að bæjarstjórn Akureyrarbæjar taki skýra afstöðu gegn sjókvíaeldi við fjörðinn, samfélaginu öllu til heilla. Nýting auðlinda á að vera sjálfbær. Leyfum náttúrunni að njóta vafans og fórnum ekki meiri hagsmunum fyrir minni.

Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir er oddviti Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs á Akureyri.

Bókasöfnin okkar

Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar
28. september 2026 | kl. 06:00

Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein

Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar
27. september 2026 | kl. 06:00

Meistaravík, Akureyri og nýtt öryggishlutverk á norðurslóðum

Njáll Trausti Friðbertsson skrifar
23. september 2026 | kl. 20:00

Hvað ef það væri samfélagsgarður við Mýrarveg?

Eyrún Gígja Káradóttir skrifar
22. september 2026 | kl. 19:00

Ónýtt drasl-fólkið

Helgi Þórsson skrifar
15. september 2026 | kl. 20:00

Björgunarþyrla á Akureyri – staða máls

Njáll Trausti Friðbertsson skrifar
13. september 2026 | kl. 19:30