SA sækir SR heim – Þór mætir Snæfelli
Tveir leikir á dagskrá dagsins í dag og konur í eldlínunni í báðum. Komið er að öðrum leik í einvígi SA og SR um Íslandsmeistaratitil kvenna í íshokkí og lokaleik kvennaliðs Þórs í körfubolta í 1. deildinni.
Þurfa sigur til að fara upp fyrir Fjölni
Kvennalið Þórs í körfubolta leikur lokaleik sinn í 1. deildinni á þriðjudag þegar Snæfell úr Stykkishólmi kemur í heimsókn í Íþróttahöllina á Akureyri. Úrslitin í þessum leik ráða því hvort Þór endar í 2. eða 3. sæti deildarinnar, en liðið þarf sigur til að endurheimta 2. sætið af Fjölni.
- 1. deild kvenna í körfubolta
Íþróttahöllin á Akureyri kl. 19:15
Þór - Snæfell - Útsending: KKÍ TV á Sýn
Áskriftarsjónvarp
Óháð úrslitunum í leik Þórs og Snæfells er klárt að Þór og Fjölnir mætast í undanúrslitum umspilsins um laust sæti í Bónusdeildinni. Í því umspili eru liðið í 9. sæti Bónusdeildarinnar, sem er Hamar/Þór og liðin í 2., 3. og 4. sæti 1. deildarinnar. Liðin tvö í Árnessýslunni, Hamar/Þór og Selfoss mætast og svo Þór og Fjölnir, en eina sem er óráðið hvort þessara liða byrjar á heimavelli.
Búast má við spennandi leik í Laugardalnum
Annar leikur í úrslitaeinvígi Toppdeildar kvenna í íshokkí verður í Skautahöllinni í Laugardal á þriðjudagskvöld. SA vann fyrsta leikinn fyrir norðan á laugardag, 1-0, og má því búast við jafnri og spennandi viðureign í Laugardalnum á þriðjudag. Takist SA að vinna á liðið möguleika á að landa Íslandsmeistaratitlinum í þriðja leik á Akureyri á fimmtudagskvöld.
- Toppdeild kvenna í íshokkí
Úrslit, leikur 2
Skautahöllin í Laugardal kl. 19:45
SR - SA - Útsending: icehockeyiceland.tv
Áskrift að rás eða stökum leikjum
Jaðarsetning eldri borgara?
Spörum okkur ekki til óbóta
Mannhvelið: þar sem drengir verða karlmenn
Hvað gerðist með „sérlausn“ Írlands?