Fara í efni
Umræðan

Íshokkí: Alltaf metnaður til að vinna titla

Emil Alengård, nýr þjálfari meistaraflokks- og U18 liða SA, og Elísabet Inga Ásgrímsdóttir, formaður hokkídeildarinnar. Mynd: Haraldur Ingólfsson.

Kvennalið Skautafélags Akureyrar í íshokkí hefur leik á Íslandsmótinu, Toppdeildinni, í dag. SA-konur taka þá á móti liði Skautafélags Reykjavíkur í Skautahöllinni á Akureyri og hefst leikurinn kl. 16:45, en þessi lið unnu hvort sinn titilinn í vor. SA vann deildarmeistaratitilinn, en SR vann einvígið um Íslandsmeistaratitilinn. Áhorfendur geta því væntanlega búist við hörkuviðureign strax í upphafi móts.

Nokkrar breytingar hafa orðið á liði SA eins og gengur og gerist á milli tímabila. Stærstu fréttirnar komu snemmsumars þegar tilkynnt var um heimkomu Sunnu Björgvinsdóttur eftir nokkurra ára dvöl og spilamennsku við góðan orðstír í Svíþjóð. Þá hefur Hilma Bóel Bergsdóttir tekið fram skautana að nýju og kemur aftur heim til SA frá Fjölni, en hún tók sér hlé frá hokkíinu í fyrravetur.

Sunna Björgvinsdóttir er komin aftur heim í SA eftir nokkurra ára dvöl og spilamennsku við góðan orðstír í Svíþjóð.

Enn heldur SA áfram að reiða fram ungar og efnilegar hokkíkonur sem eiga erindi og reyna fyrir sér erlendis. Tvær öflugar landsliðskonur sem spiluðu stórt hlutverk í liði SA í fyrravetur, þær Kolbrún Björnsdóttir og Aðalheiður Anna Ragnarsdóttir hafa yfirgefið herbúðir SA og freista gæfunnar á nýjum slóðum. Þá er Amanda Ýr Bjarnadóttir flutt aftur til Danmerkur, en hún spilaði hluta úr síðasta tímabili með SA eftir dvöl í Danmörku.

Erfiðara að komast inn en áður

Lið SA er sem fyrr blanda af eldri og reyndari leikmönnum og svo mörgum ungum og efnilegum stelpum sem berjast um sæti í hópnum og liðinu. Fjölgun iðkenda hjá félaginu og framfarir yngri leikmanna hefur orðið til þess að erfiðara er að komast inn í meistaraflokkshópinn en var áður.

Eftir því sem næst verður komist mun ein af þeim eldri í leikmannahópnum leggja meistaraflokksskautana á hilluna, Eva María Karvelsdóttir, og eflaust verður eitthvað mismunandi af hve miklum krafti og hvenær þær koma á fullu inn í tímabilið núna. Anna Sonja Ágústsdóttir er í pásu vegna anna við búskapinn, en vonandi sést hún aftur á svellinu þegar vetrar.

Bæði liðin í leik dagsins eru með erlendar hokkíkonur í markinu og báðar komnar með reynslu hér á landi. Shawlee Gaudreault er mætt til Akureyrar enn eitt árið og Julianna Thomson verður áfram á milli stanganna hjá Reykjavíkurfélaginu.

Kærkomið tækifæri að ráða sig til SA

Nýr þjálfari er við stjórnvölinn hjá SA, Emil Alengård, og mun stjórna báðum meistaraflokksliðunum, sem og U18 liðum SA. Emil þekkir vel til íslenskra hokkíleikmanna. 

Emil þekkir að sjálfsögðu til starfsins og andans hjá Skautafélagi Akureyrar þó hann hafi alist upp í Svíþjóð. Hann á íslenska móður og sænskan föður og um það leyti sem hann var að banka á dyrnar hjá U18 landsliði Svíþjóðar hafði Viðar Garðarsson, framkvæmdastjóri ÍHÍ, samband við hann með þá hugmynd að leika fyrir Ísland. Sú hugmynd varð að veruleika og á nokkrum mánuðum spilaði Emil með þremur íslenskum landsliðum á Heimsmeistaramótum, U18, U20 og A-landsliðinu.

Emil á einnig að baki reynslu af þjálfun í Svíþjóð þar sem hann var aðstoðarþjálfari karlaliðsins hjá stórliði AIK og þjálfari U18 og U20 liða félagsins. Hann hefur undanfarin sex ár starfað sem yfirþjálfari hjá Fjölni, en það freistaði hans að koma norður enda er sambýliskona hans frá Akureyri og þau höfðu rætt um það að flytja norður. Það var því kærkomið tækifæri þegar þjálfarastaðan hjá SA losnaði í vor.

Einkenni klúbbsins passar við þjálfarann

Emil segir að einkenni félagsins – eða identity – passa vel við það sem hann sjálfur stendur fyrir, það er að leggja hart að sér og vinna mikið til að ná árangri. Hann segir það vera númer eitt. Hann kveðst vilja leggja áherslu á að bæta og þróa spil með pökkinn, en einnig afísæfingar, að hjálpa leikmönnum og leiðbeina, hvað er gott að gera fyrir og eftir æfingar, og þegar það er frí. 

Emil Alengård mættur á ísinn í Skautahöllinni á Akureyri. Hann á örugglega eftir að setja mark sitt á leik Akureyrarliðanna. Mynd: Haraldur Ingólfsson. 

Metnaður innan SA hefur auðvitað alltaf staðið til þess að vinna titla og Emil mun að sjálfsögðu leggja áherslu á að ná árangri með liðum klúbbsins. „Ég veit að SA vill vinna gullið í lok tímabilsins og ég hef ekki þurft að nefna það neitt mikið,“ segir hann í spjalli við tíðindamann frá akureyri.net. Hann veit fullvel að þegar hann er í SA er búist við árangri og titlum. Um kvennalið SA segir hann: „Þetta er stór hópur og leikmenn í hópnum sem sýna mikinn dugnað sem hpkkíleikmenn. Ég vil að hópnum líði vel, vera með góðar æfingar og hafa gaman. En ég veit þegar ég er hjá SA þá er búist við árangri. Ég vil líka leggja áherslu á að leikmenn bæti sig. Hvern einasta dag erum við að æfa til að bæta okkur og það er alltaf eitthvað sem við getum bætt,“ segir Emil og segir metnað leikmanna og félagsins vera mikinn.

Elísabet Inga Ásgrímsdóttir, formaður íshokkídeildar SA, er með tíðindamanni og Emil í spjallinu og tekur undir með Emil að það sé metnaður hjá leikmönnum og félaginu. Mér finnst leikmenn koma brattir inn og ákafir í tímabilið. Það er líka afmælisár hjá félaginu, sem er að verða 90 ára. Mér finnst fólk bæði karla- og kvennamegin heilt yfir er spennt fyrir tímabilinu, nýir þjálfarar og fólk kemur af ákafa inn í þetta. Og ætla sér að vinna. Það er tónninn,“ segir Elísabet enda hefur það aldrei verið öðruvísi hjá SA, ætlunin er alltaf að vinna.

Emil segir eldri leikmenn með reynslu og leikskilning vera mikilvægan hluta liðsins. Þær yngri hafi grunnskilning á leiknum og hann vilji vinna með framfarir og þróun leikmanna, bæta leikskilning og tækni, vinna með þeim sem íþróttakonum, á ísnum og utan hans. Vinna með það hvert liðið vill stefna. 

Einkenni SA-liða sem Emil vill vinna með er að vilja vinna pökkinn hratt aftur þegar hann tapast, vinna saman í pressu, og stjórna leiknum með pökkinn. 

Meistaraflokkur SA

  • Markverðir
    Aníta Ósk Sævarsdóttir
    Marey Viðja Sigurðardóttir
    Shawlee Gaudreault
  • Varnarmenn
    Arndís Eggerz Sigurðardóttir
    Aþena Elínrós Guðlaugsdóttir
    Freyja Rán Sigurjónsdóttir
    Jónína Guðbjartsdóttir
    Magdaléna Šulová
    Sveindís Marý Sveinsdóttir
    Sylvía Mörk Kristinsdóttir
  • Sóknarmenn
    Aníta Júlíana Benjamínsdóttir
    Arna Sigríður Gunnlaugsdóttir
    Berglind Huld Ríkarðsdóttir
    Bergþóra H Bergþórsdóttir
    Eyrún Arna Garðarsdóttir
    Guðrún Ásta Valentine
    Heiðrún Helga Rúnarsdóttir
    Herborg Rut Geirsdóttir
    Hilma Bóel Bergsdóttir
    Kolbrún María Garðarsdóttir
    Lara Mist Jóhannsdóttir
    Ragnheiður Alís Ragnarsdóttir
    Silvía Rán Björgvinsdóttir
    Sólrún Assa Arnardóttir
    Sunna Björgvinsdóttir

  • Komnar
    Aþena Elínrós Guðlaugsdóttir – úr U16 liði félagsins
    Sunna Björgvinsdóttir – frá Södertälje, Sviþjóð
    Hilma Bóel Bergsdóttir – frá Fjölnir
  • Farnar
    Aåalheiåur Anna Ragnarsdóttir – til Sundsvall, Sviþjóð
    Anna Sonja Ágústsdóttir – í pásu
    Eva María Karvelsdóttir – hætt
    Amanda Ýr Bjarnadóttir – flutt til Danmerkur
    Kolbrún Björnsdóttir – til CP Sharks Mechelen, Belgíu

Það að verja fé til endurhæfingar er fjárfesting

Sólveig Pétursdóttir skrifar
04. september 2026 | kl. 08:30

Hönd í hönd niður um deild?

Þorleifur Ananíasson skrifar
04. september 2026 | kl. 08:30

Stjórnmálin verða að svara þeim sem minnst hafa

Björn Snæbjörnsson skrifar
02. september 2026 | kl. 15:30

Birta og Salka – fyrir okkur öll

Valdís Rut Jósavinsdóttir skrifar
31. ágúst 2026 | kl. 16:00

Fögnum saman á Akureyrarvöku!

Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar
28. ágúst 2026 | kl. 17:17

Virðir Alþingi úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst?

Hjörtur Hjartarson skrifar
27. ágúst 2026 | kl. 18:00