Spenna fram undan og fleiri greinar vakna
Með haustinu breytist framboð af íþróttaviðburðum. Fótboltinn á reyndar enn eftir nokkrar vikur, spennuþrungnar vikur fyrir stuðningsmenn Akureyrarliðanna í Bestu deildunum. Að auki er eitt Akureyrarlið í baráttu um að vinna 5. deildina. En nú er allt að fara af stað á fjölum íþróttahúsanna og á svellinu líka. Handboltalið bæjarins hefja leik á næstu dögum, sem og kvennaliðið í íshokkí.
FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER - handbolti
Handboltavertíðin er hafin, undirbúnings- og æfingamótum lokið, búið að útkljá hver er meistari meistaranna og keppni í efstu deildum karla og kvenna er á næsta leiti. Umfjöllun um veturinn fram undan, breytingar hjá Akureyrarliðunum og jafnvel spádóma um niðurstöðu er á dagskrá í vikunni.
- Handbolti
Olísdeild karla, 1. umferð
Kórinn kl. 19
HK - KA
LAUGARDAGUR 5. SEPTEMBER - fótbolti, handbolti, íshokkí
Íþróttadeild akureyri.net hefur ekki fjallað sérstaklega um keppni í 5. deild karla í knattspyrnu, en þar eiga Akureyringar reyndar fulltrúa engu að síður. Lið Hamranna er þar á góðri leið með að vinna sig upp um deild. Liðunum í 5. deild var skipt í tvo riðla og tvö efstu lið hvors riðils komast áfram í undanúrslit. Hamrarnir unnu sinn riðil og mættu Smára, sem endaði í 2. sæti hins riðilsins, í fyrri undanúrslitaviðureign um liðna helgi í Kópavogi. Niðurstaðan varð jafntefli, 2-2. Seinni leikur liðanna fer fram á Akureyri á laugardag. Sigurliðið mætir annaðhvort Skallagrími eða Stokkseyri í úrslitaleik um deildarmeistaratitil 5. deildar, en bæði lið úrslitaleiksins fara upp í 4. deild.
- Fótbolti
5. deild karla, undanúrslit, seinni leikur
Greifavöllurinn á Akureyri (KA-völlur) kl. 15
Hamrarnir - Smári
Umfjöllun um veturinn fram undan, breytingar hjá Akureyrarliðunum og jafnvel spádóma um niðurstöðu er á dagskrá í vikunni.
- Handbolti
Olísdeild karla, 1. umferð
Lambhagahöllin í Úlfarsárdal kl. 16
Fram - Þór
Íshokkífólk er komið af stað og stutt í að keppni á Íslansdmótunum í meistaraflokkunum, Toppdeildunum, hefjist. Konurnar byrja núna í vikunni, en karlarnir síðar í mánuðinum. Umfjöllun um kvennalið SA er á dagskrá í vikunni þar sem farið verður yfir breytingar á liðinu og fleira.
- Íshokkí
Toppdeild kvenna
Skautahöllin á Akureyri kl. 16:45
SA - SR
SUNNUDAGUR 6. SEPTEMBER - fótbolti
Spennan magnast á lokaspretti Bestu deilda kvenna og karla í knattspyrnu fyrir tvískiptingu deildanna. Akureyrarliðin eru öll í baráttu í neðri hluta deildanna og þurfa sárlega á sigrum að halda á jöfnum og spennandi lokaköflum á haustdögum. Þór/KA er í 7. sæti Bestu deildar kvenna með 19 stig að loknum 17 umferðum. KA er í 12. sæti Bestu deildar karla með 16 stig þegar 21 umferð er lokið, en Þór í 10. sætinu með 18 stig. Bæði liðin eiga heimaleik á sama tíma í lokaumferðinni fyrir tvískiptingu deildarinnar.
- Fótbolti
Besta deild karla, 22. umferð
Greifavöllurinn á Akureyri (KA-völlur) kl. 14
KA - Breiðablik - Fótbolti
Besta deild karla, 22. umferð
VÍS-völlurinn á Akureyri (Þórsvöllur, gervigras) kl. 14
Þór - FH - Fótbolti
Besta deild kvenna, 10. umferð
Kaplakrikavöllur í Hafnarfirði kl. 14
FH - Þór/KA
Stöður í deildum og leikjadagskrár
Lesendur eru hvattir til að minna á íþróttaviðburði hvers kyns sem fram undan eru í meistaraflokkum, sérstaklega ef eitthvað verður út undan og gleymist í þessari vikulegu yfirferð í vikubyrjun hér á akureyri.net – sendið tölvupóst í haraldur@akureyri.net ef koma þarf slíkum upplýsingum á framfæri.
Fögnum saman á Akureyrarvöku!
Óskhyggjan og veruleikinn
Virðir Alþingi úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst?
NEI