Fara í efni
Umræðan

HM U18 kvenna í íshokkí á Akureyri 2027

Akureyringarnir í U18 landsliðshópi kvenna 2026. Aftari röð frá vinstri: Silvía Rán Björgvinsdóttir aðstoðarþjálfari, Eyrún Arna Garðarsdóttir, Heiðrún Helga Rúnarsdóttir, Magdalena Sulova, Marey Viðja Sigurðardóttir. Fremri röð frá vinstri: Freyja Rán Sigurjónsdóttir, Sylvía Mörk Kristinsdóttir, Kolbrún Björnsdóttir, Ragnheiður Alís Ragnarsdóttir, Sólrún Assa Arnardóttir og Aníta Júlíana Benjamínsdóttir.
A-landslið karla og kvenna, ásamt yngri landsliðunum, U20 og U18 karla og U18 kvenna, taka árlega þátt í Heimsmeistaramótum í íshokkí, þar sem spilað er eftir deildafyrirkomulagi. Staðsetningar mótanna á næsta ári voru ákveðnar í dag á þingi Alþjóða íshokkísambandsins, IIHF, sem haldið er þessa dagana í Zürich í Sviss. Eitt mótanna verður haldið á Akureyri í janúar 2027.
 
Fyrir utan U18 landslið kvenna verða landsliðin á faraldsfæti á Heimsmeistaramótin á komandi ári.
  • A-landslið karla: Bisek í Kyrgistan, 28. mars - 3. apríl 2027
  • A-landslið kvenna: Electranai í Litháen, 8.-14. nóvember 2027
  • U20 karla: Istanbúl í Tyrklandi, 18.-24. janúar 2027
  • U18 karla: Óákveðið, ákvörðun tekin í september
  • U18 kvenna: Skautahöllin á Akureyri, 11.-17. janúar 2027

Ákveðnar breytingar verða gerðar á mótafyrirkomulaginu. A-landsliðin hafa að jafnaði spilað í sínum mótum í aprílmánuði, en eins og sjá má færist mót kvennalandsliðsins til nóvembermánaðar.

Það að verja fé til endurhæfingar er fjárfesting

Sólveig Pétursdóttir skrifar
04. september 2026 | kl. 08:30

Hönd í hönd niður um deild?

Þorleifur Ananíasson skrifar
04. september 2026 | kl. 08:30

Stjórnmálin verða að svara þeim sem minnst hafa

Björn Snæbjörnsson skrifar
02. september 2026 | kl. 15:30

Birta og Salka – fyrir okkur öll

Valdís Rut Jósavinsdóttir skrifar
31. ágúst 2026 | kl. 16:00

Fögnum saman á Akureyrarvöku!

Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar
28. ágúst 2026 | kl. 17:17

Óskhyggjan og veruleikinn

Þorkell Ásgeir Jóhannsson skrifar
27. ágúst 2026 | kl. 18:00